Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 79
Hinn frábæri bak-
vörður NBA-meistara Miami
Heat, Dwyane Wade, íhugar
þessa dagana að leggjast undir
hnífinn til þess að fá varanlegan
bata á meiðslum í öxl en hann fór
úr axlarlið í vikunni.
Að öllu eðlilegu yrði Wade
aðeins frá í sex vikur vegna
meiðslanna en hann íhugar nú að
fara í aðgerð sem sér til þess að
hann mæti sterkari og alveg laus
við öll meiðsli næsta tímabil.
Ef Wade fer í aðgerðina er
ljóst að Miami ver ekki NBA-titil
sinn en liðinu hefur ekki gengið
sem skyldi í vetur og er enn í
baráttu um að komast í úrslita-
keppnina.
Wade frá út tímabilið?
Íslandsmeistarinn í
badminton kvenna, Ragna
Ingólfsdóttir, heldur áfram að
hækka sig á heimslistanum í
einliðaleik kvenna en nýr listi er
kominn út hjá Alþjóðabadminton-
sambandinu. Ragna er komin upp
í 51. sætið á listanum, hún fór upp
um fjögur sæti frá síðasta lista og
hefur alls hækkað sig um 19 sæti
frá áramótum. Ragna byrjaði
tímabilið í 260. sæti og hefur því
hækkað sig um 209 sæti á síðustu
fimm mánuðum. Þessi góða
frammistaða ætti að tryggja
Rögnu sæti á Ólympíuleikunum í
Peking takist henni að vera meðal
fimmtíu bestu spilara heims.
Ragna hækkar
sig enn
Kannski leyndist einn strákur á vellinum
Frjálsíþróttasamband
Íslands hefur valið fjóra kepp-
endur sem keppa fyrir Íslands
hönd á Evrópumeistaramótinu
innanhúss sem fer fram í
Birmingham í Englandi 2. til 4.
mars næstkomandi. Þetta eru
þeir Björn Margeirsson og Óðinn
Björn Þorsteinsson úr FH, Kári
Steinn Karlsson úr Breiðabliki og
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni.
Björn keppir í 1.500 metra hlaupi,
Óðinn í kúluvarpi, Kári í 3.000
metra hlauði og Sveinn í 400
metra hlaupi. Þjálfarar verða
Eggert Bogason og Stefán
Jóhannsson og fararstjóri er Egill
Eiðsson.
Fjórir Íslending-
ar keppa
Atvinnukylfingurinn úr
GKG, Ottó Sigurðsson, reið ekki
feitum hesti frá alþjóðlegu móti í
Portúgal.
Ottó hafnaði í 39. sæti af 53
keppendum en lokahringurinn
hjá honum var mjög slakur en þá
kom hann í hús á fimm höggum
yfir pari. Ottó lék hringina þrjá á
mótinu á 8 höggum yfir pari.
Gekk illa í
PortúgalMiðjumaðurinn Alexey
Kuzmins hjá Akureyri er enn
meiddur og mun ekki geta leikið
með Akureyringum í leiknum
mikilvæga gegn HK um helgina.
Þetta kemur fram á heimasíðu
norðanmanna.
Kuzmins meiddist á olnboga
fyrir um tveim vikum síðan og er
ekki vitað hvenær hann verður til
í slaginn en það er lágmark vika í
endurkomu Lettans.
Enn frá vegna
meiðsla
Það verður spennandi
keppni í Frjálsíþróttahöllinni í
Laugardal í dag þegar fyrsta Bik-
arkeppni FRÍ innanhúss fer fram.
Sex lið taka þátt í keppninni en
þau eru sameiginlegt lið Ármanns
og Fjölnis, Breiðablik, FH, HSK,
HSÞ og ÍR. Það verður keppt um
þrjá bikarmeistaratitla, í karla-
og kvennaflokki sem og saman-
lagt í báðum flokkum. Alls verð-
ur keppt í ellefu greinum og
stigagjöfin er þannig að fyrsta
sæti gefur 6 stig, 2. sætið gefur 5
stig og svo framvegis. Það reynir
á breiddina í bikarnum því hver
keppandi má aðeins taka þátt í
tveimur keppnisgreinum, auk
boðhlaups. Það er því erfitt að
spá um hvaða lið hampar bikur-
unum.
Fyrsta bikarkeppnin innanhúss
Njarðvíkingar eru
aftur komnir á toppinn í Iceland
Express-deild karla eftir 13 stiga
sigur á Keflavík, 70-83, í gær.
Njarðvíkingar héldu Keflavík í 70
stigum og 33% skotnýtingu á
heimavelli og enn ný var það hin
óárennilega Njarðvíkurvörn sem
reynist andstæðingum þeirra óyf-
irstíganleg.
Brenton Birmingham fór fyrir
jöfnu liði Njarðvíkur og var með
17 stig, 9 fráköst og 5 stoðsending-
ar. „Það er alltaf frábært að vinna
Keflavík sama hver staðan er.
Þessi sigur var mjög mikilvægur
fyrir okkur í baráttunni um fyrsta
sætið og nýtist okkur sem vega-
nesti inn í leikinn á móti KR á
mánudaginn,“ segir Brenton sem
liggur ekki á svari spurður um
helsta styrk Njarðvíkurliðsins.
„Við spilum saman sem lið og það
eru allir í okkar liði sem geta
klárað leikina. Við treystum á hver
annan og enginn þarf að vera
stjarnan,“ segir Brenton og varn-
arleikurinn spilar þar stórt hlut-
verk. „Við lokuðum á Snæfell og
ætluðum líka að gera það hér í
Keflavík og við kláruðum það
verkefni,“ sagði Brenton sem
sjálfur hélt Magnúsi Þór Gunnars-
syni í þremur stigum. „Ég hef
tekið mitt varnarhlutverk mjög
alvarlega í vetur og í síðustu leikj-
um hef ég fengið stór verkefni í
vörninni. Magnús er frábær leik-
maður og getur hitnað hvenær
sem er en ég einbeitti mér að því
að gefa honum ekkert,“ sagði
Brenton en Magnús klikkaði á 8 af
9 skotum sínum og var óþekkjan-
legur í leiknum.
Brenton var líka ánægður með
hvernig gekk að eiga við nýja
manninn í Keflavíkurliðinu, Tony
Harris. „Við spiluðum góða vörn á
hann og gerðum honum erfitt
fyrir að fá sín skot,“ sagði Brent-
on um Harris sem var með 15 stig
en hitti aðeins úr 1 af 6 þriggja
stiga skotum. Það má segja að
Sebastian Hermanier hafi stolið
af honum sviðsljósinu en Her-
manier var langbesti maður
Keflavíkurliðsins með 32 stig og
11 fráköst.
Auk Brentons voru þeir jeb
Ivey (15 stig, 5 stosðendingar),
Igor Beljanski (13 stig, 8 fráköst)
og Friðrik Stefánsson (12 stig, 11
fráköst, 4 stosðendingar) allir
traustir og ungu strákarnir, Guð-
mundur Jónsson og Jóhann þór
Ólafsson, skiluðu báðir 9 stigum,
frábærri vörn og miklum baráttu-
anda til liðsins.
Njarðvíkingar unnu 13 stiga útisigur á nágrönnum sínum í Keflavík í gær og end-
urheimtu toppsætið. Tony Harris skoraði 15 stig í sínum fyrsta leik fyrir Keflavík.