Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn s Fimmtudagur 19. maí 1988 Samband fiskvinnslustöövanna: Traust til aðila vinnumarkaðarins Stjórn Sambands fiskvinnslu- stöðvanna sendi frá sér samþykkt í Hafnarfjörður: HUÓP FYRIR BÍL Fjögurra ára gömul stúlka hljóp í veg fyrir bíl í Arnarhrauni í Hafnarfirði á mánudag. Hún fékk heilahristing og áverka á enni, þegar hún skall í götuna, en meiðsli hennar voru þó ekki al- varleg. Hún fékk að fara heim strax af slysavarðstofu, eftir að læknar höfðu gert að sárum hennar og skoðað hana. þj vikunni, þar sem minnt er á að þrátt fyrir leiðréttingu á gengi, þá sé enn tap á fiskvinnslunni. „Stórlækkað verð á íslenskum sjávarafurðum á erlendum mörkuð- um knýr þjóðina að snúa bökum saman til að yfirstíga þá erfiðleika. Ekki er enn Ijóst hvort víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds geri áhrif gengisbreytingarinnar að engu. Fullt traust er borið til aðila vinnumarkað- arins að endurmeta sameiginlega þá breyttu stöðu, sem þjóðarbúið er nú í. Það er lífsnauðsyn að ná árangri í baráttunni við verðbólguna," segir í samþykkt stjórnarinnar. Þá er sagt að endurmeta verði allar fjárfestingar og minnt á að engin framkvæmd er svo nauðsynieg á Islandi að ekki megi fresta henni. Minnkandi þensla, lækkun á erlend- um lántökum og endurskipulagning vaxtakerfis eru forsendur þess að verðbólgan minnki. „Jöfnuður í utanríkisviðskiptum og hallalaus rekstur útflutningsat- vinnuveganna eru markmið sem enginn ríkistjórn getur litið fram hjá. Samband fiskvinnslustöðvanna er reiðubúið til samstarfs við stjórn- völd og verkalýðshreyfinguna til að vinna að lausn þeirra erfiðu vanda- mála, sem við blasa,“ segir stjórnin að lokum. -SÓL Stjórnin nyggst ekki grípa inní Kjarvalsstaöir: Börnin hafa hundrað mál Sýningin „Börn hafa hundraö mál ...“ með undirtextanum: „... en frá þeim tekin níutíu og níu“ og er í vestursal Kjarvalsstaða kemur frá borginni Reggio Emilia á Ítalíu. Hún hefur farið víða um Evrópu og N-Ameríku eftir að hún var fyrst sýnd á Moderna listasafninu í Stokk- hólmi 1986. Þetta er yfirlitssýning um uppeld- isstefnu, sem hefur verið að þróast síðustu þrjá áratugi í Reggio Emilia. Stefnan byggir á frumlegri, lifandi og markvissri aðferðafræði, þar sem öll skilningarvit barnanna eru virkj- uð í þekkingaröflun og tjáningu. Uppeldisstefnan hefur vakið sterk viðbrögð hjá fagfólki og áhuga- mönnum vegna merkilegs árangurs, sem verður augljós í allri sköpun og tjáningu barnanna. Uppeldisfræðingurinn Loris Mal- aguzzi er aðalfrumkvöðull og hug- myndagjafi stefnunnar. Hann gagn- rýnir vestrænt skólakerfi, sem hann segir svifta börnin möguleikanum til alhliða skynjunar á „málunum 100“, en upphefji rökhyggju og kerfishugs- un. Sýningin er viðamikil og saman- stendur af myndverkum og fjölda Ijósmynda með sýningartextum. þj Það stefnir allt í stöðvun á rekstri álversins í Straumvík aðfaranótt n.k. föstudags. Mikið hefur verið rætt um þann gífurlega kostnað sem stöðvun hefði í för með sér og því spurði Tíminn Ragnar Halldórsson, forstjóra ÍSAL, hvort stjórn ís- lenska álfélagsins hafi lagt að ríkisstjórninni að grípa inní deiluna. „Við höfum ekki lagt að henni að gera það. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að hún ætli ekki að koma með neinar ráðstafanir fyrr en um mánaðamót. Maður átti kannski von á því að það kæmu einhverjar ráðstafanir samfara gengisfellingu en svo var ekki,“ sagði Ragnar. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, gegnirstöðu iðnaðarráðherra f fjarveru Friðriks Sóphussonar, sem er erlendis. Hann var spurður um afstöðu ríkis- stjórnarinnar. „Ríkisstjórnin fylg- ist auðvitað með þessari kjaradeilu eins og öðrum deilum og það er auðvitað áhyggju efni ef starfsemi áiversins stöðvast. En það hafa engar ákvarðanir verið teknar um að grípa inní þessa deilu,“ sagði Birgir ísleifur. Deiluaðilar í Álverinu við Straumsvík funda í dag hjá ríkis- sáttasemjara í Karphúsinu og fund- ir hafa verið haldnir í vikunni. Lítið hefur miðað í viðræðunum. VSÍ lagði fram tilboð sem starfs- menn í álverinu höfnuðu. „Full- trúar starfsmanna halda því fram að þetta sé verra tilboð en við lögðum fram 25. apríl en við crum ckki þeirrar skoðunar. Manni heyrist af yfirlýsingum þeirra að þeir séu ekkert tilbúnir til að taka tillit til þess hvað önnur félög hafa Þingforseti Kýpur heimsækir ísland Forseti löggjafarþings Kýpur, dr. Vassos Lyssarides, kom hingað til lands 15. maí sl. í boði Alþingis og mun dvelja hér til 19. þ.m. I för með dr. Lyssarides eru kona lians, frú Barbara Cornwall, Michael Attila- des, forstöðumaður alþjóðlegra samskipta þingsins á Kýpur. Dr. Lyssarides er læknir að mennt og heiðursforseti læknasamtakanna í Nikósíu. Á löggjafarþingi Kýpur hefur hann setið síðan landið öðlað- ist sjálfstæði, árið 1960, þar af hefur hann verið forseti þess frá 1985. Dr. Lyssarides var einn fjögurra fram- bjóðenda við forsetakosningar á Kýpur, sem fram fóru fyrr á þessu ári. Meðan á dvöl dr. Lyssardes stend- ur hittir hann forseta íslands, menntamálaráðherra, fjármálaráð- herra og heilbrigðisráðherra. Heimsókninni lýkur með kvöld- verði í boði Alþingis 18. maí. óþh Frá kynningafundi sem haldinn var vegna hátíðahaldanna. F.v. Hörður Hilmarsson í framkvæmdanefnd afmælishátíðarínnar, Gunnar Rafn Sigurðs- son bæjarrítari og Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjórí. aímamynd Pjetur) Hafnarfjörður heldur upp á 80 ára afmæli sitt um næstu mánaðamót, en þann 1. júní eru 80 ár síðan Hafnarfjörður hlaut kaupstaðarréttindi og verður afmælisins minnst með margvíslegum hætti. Hátíðahöldin hefjast á sjúlf- an afmælisdaginn, miðviku- daginn 1. júní með athöfn í Hellisgerði. þar sem málfund- arfélagið Magni mun meðal annars afhenda Hafnarfjarðar- bæ garðinn formlega til varð- veislu og umönnunar. Um kvöldið verður sfðan dagskrá í Hafnarborg, sem er ný lista og menningarmiðstöð í miðbæ Hafnarfjarðar. Þar verður af- mælisins minnst með hátíðleg- um hætti og mun Vigdís Finn- bogadóttir forseti verða viðstödd. 1 Á fimmtudeginum 2. júní verða ýmsar sýningar opnaðar í tengslum við afmælið, s.s. í Byggðasafninu og sýning á skipulagi í Hafnarfirði í' 80 ár, auk þess sem kvik- myndasýningar, um Hafnarfjörð verða í Bæjarbíói. Á föstudeginum 3. júní verður dagur barn- anna en sú dagskrá fer fram í miðbænum. Einn- ig verður afhjúpað lista- verk sern staðsett er á vegg Fiskmarkaðarins, og er sjómönnum og fiskverkunarfólki í Hafnarfirði sérstaklega boðið. Hátíðahöldunum lýk- ur síðan á laugardegin- um 4. júní með fjöl- skylduhátíð í íþróttahúsi Hafnarfjarðar, en há- punkturinn verður alls kyns skemmtiatriði og uppákomur í miðbænum -ABÓ fengið," sagði Ragnar. Hann sagð- ist óttast það að verkfallið gæti dregist á langinn. Sambandsstjórn Vinnuveitenda- sambands fslands hefur veitt fram- kvæmdastjórninni heimild til að leggja verkbann á þá félagsmenn hluteigandi verkalýðsfélaga sem eru starfsmenn ÍSAL og eru þegar í verkfalli. Verkbann þetta kemur aðeins til framkvæmda að til lokun- ar verksmiðjunnar komi, segir í samþykkt stjórnarinnar. Þar segir að VSÍ hafi þegar boðið þeim 10 verkalýðsfélögum sem eru í verkfalli sambærilegar hækkanir á við það sem samist hefur um við almennu verkalýðs- félöizin undanfarið. fallast á meiri hefur samist um við önnur félög. í Ijósi yfirvofandi stöðvunar í rekstrinum er því gripið til verkbanns. Verkbann hefur í megin atriðum tvær afleiðingar. Deilunni lýkur ekki við það að verkfalli sé aflýst nema að verkbanninu sé jafnframt aflýst. Sá ráðningasamningur sem hver starfsmaður gerir við vinnu- veitanda fellur tímabundið niður í verkbanni eins og í verkfalli. Hin afleiðingin er sú að félögum í VSÍ er ekki heimilt að ráða menn í vinnu sem eru í verkbanni. JIH Frá Álverinu í Straumsvík. Yfirvofandi stöðvun á rekstri álversins á miðnætti á morgun: 80 ára afmæli Hafnarfjarðar: Fjögurra 4. uap hátíða

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.