Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Þriðjudagur 9. maí 1989
lllllllllllllHlllllllllllll DAGBÓK
Aðalfundur
Húnvetningafélagsins
Húnvétningafélagið í Reykjavík heldur
aðalfund sinn fimmtudaginn 11. maí kl.
20:00 í Húnabúð, Skeifunni 17.
Aðalfundur Félags
raungreinakennara
Félag raungreinakennara boðar til
aðalfundar í Kvennaskólanum í Reykja-
vík, Fríkirkjuvegi 9, fimmtudaginn 11.
maí kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kristján Jónasson flytur erindi sem
hann nefnir: Hvernig reikna reiknivélar
sínusa og kvaðratrætur.
Stjórnin
Gestafundur
Kvenfélags Kópavogs
Gestafundur verður haldinn fimmtu-
daginn 11. maí í Félagsheimilinu í Kópa-
vogi kl. 20:30. Skemmtiatriði og kaffiveit-
ingar.
Frá Samtökum
herstöðvaandstæðinga
Samtökin boða til fundar á hernáms-
daginn, 10. maí, í Risinu, Hverfisgötu
105 kl. 20:30. Fundurinn er haldinn í
tilefni áætlana um heræfingar hér á landi
í júní. Samtökin vilja skipuleggja mót-
mæli gegn heræfingunum og er skrifstofa
þeirra opin á mánudögum og föstudögum
kl. 14:00-16:00, sími 17966.
BILALEIGA
meö utibu allt i kringurri
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Ðilaleiga Akureyrar
Vortönleikar í Mosfellsbæ
Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ held-
ur vortónleika í Hlégarði þriðjud. 9. maí
kl. 21:00 og Hlégarði miðvikud. 10. maí
kl. 21:00.
Stjórnandi kórsins er Lárus Sveinsson,
undirleikari er Guðrún Guðmundsdóttir.
Einsöngvarar eru: Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Þórður Guðmundsson og Ármann Sig-
urðsson.
Ráðgert er að kórinn fari í söngferð til
Danmerkur og Noregs. Einnig er ráðgerð
heimsókn til vinakórs Stefnis í Levanger
í Noregi.
57 söngmenn syngja f karlakórnum
Stefni. Formaður er Björn Ó. Björgvins-
son.
Orgeltónleikar í
Hallgrímskirkju
Dagana 8.-12. maí verða orgeltónleik-
ar daglega kl. 12:30 frá mánudegi til
föstudags.
Hallgrímskirkja:
Vesper
Vesper. Dagana 8.-12. maí flytja guð-
fræðinemar og félagar úr ísleifsreglunni
tíðagjörð hvern dag kl. 18:00 með kirkju-
gestum.
Minningarkort Styrktarsjóðs
bamadeildar Landakotsspítala
Styrktarsjóður barnadeildar Landa-
kotsspítala hefur látið hanna minningar-
kort fyrir sjóðinn. Sigríður Bjömsdóttir
myndlistarmaður og kennari teiknaði
fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir
selja minningarkortin:
Apótek Seltjamamess, Vesturbæjar-
apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapó-
tek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Ár-
bæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts,
Reykjavfkurapótek, Háaleitisapótek,
Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn.
Blómaverslanimar; Burkni, Borgarblóm,
Melanóra Seltjamamesi og Blómaval
Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrif-
stofu og barnadeild Landakotsspítala.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984,
Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27,
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju,
sími 84035 milli kl. 17:00og 19:00og mun
kirkjuvörður annast sendingu minningar-
korta fyrir þá sem þess óska.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
t
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúð við
fráfall og útför mannsins míns, sonar, föður, tengdaföður og afa
Gísla Guðmundssonar, bifreiðastjóra
Stffluseli 14 (áður Tunguseli 3)
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landsvirkjunar og deildar 11-E á
Landspítalanum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Árnadóttir
Guðmundur Matthíasson
Jóhanna G. Gísladóttir
Guðmundur J. G íslason Ólöf B. Jónsdóttir
Árni J. Steinþórsson Hulda D. Jónasdóttir
og barnabörn.
Listasafn íslands:
MYND MÁNAÐARINS
Mynd aprílmánaðar í Listasafni íslands
er MOSIVIÐ VlFILSFELL eftir Jóhann-
es S. Kjarval. Myndin er unnin í olíu árið
1940, stærð hennar er 115 X 143.5 sm og
var hún keypt til Listasafnsins árið 1941.
Mosi við Vífilsfell hangir nú uppi í sal 1.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer fram
í fylgd sérfræðings á flmmtudögum kl.
13:30-14:45 og er leiðsögnin ókeypis.
Listasafnið er opið alla daga kl. 11:00-
17:00 og er veitingastofa hússins opin á
sama tíma.
Pennavinur í Bandaríkjunum
Borist hefur bréf frá 36 ára gömlum
einhleypum manni í Bandaríkjunum, sem
hefur áhuga á að komast í bréfasamband
við lslendinga, - einkum konur, en svarar
öllum bréfum. Hann segist hafa áhuga á
myndatökum, frímerkjasöfnun, mynt-
söfnun, smíði úr tré, ferðalögum og
sportbílum.
Utanáskrift til hans er:
Mr. Jack M. Colbert,
Somerset County Jail
P.O. Box 3000
Somerville,
NJ 08876
USA
Hvítasunnuferðir F.í.
12.-15. maí
Öræfajökull. - Lagt upp frá Virkisá við
Svínafell, gengið upp Virkisjökul, utan í
Falljökli og áfram sem leið liggur á
Hvannadalshnúk (2119 m) Gist í svefn-
pokaplássi á Hofi í Öræfasveit.
Þórsmörk - Fimmvörðuháls
Gengið á skíðum yfir Fimmvörðuháls.
Gönguferðir um Mörkina. Gist í Skag-
fjörðsskála í Langadal.
Snæfellsnes - Snæfellsjökull. Gengið á
Snæfellsjökul (1446 m) og farnar skoðun-
arferðir á iáglendi. Gist í gistiheimilinu
Langaholti, Staðarsveit. Brottför í allar
ferðirnar kl. 20:00 föstudaginn 12. maí.
Upplysingar og farmiðasala á skrifstofu
F.I. Óldugötu 3. Greiðslukortaþjónusta.
TU athugunar fyrir ferðamenn: Um
hvítasunnu verður ekki leyft að tjalda á
umsjónarsvæði Ferðafélagsins í Þórs-
mörk vegna þess hve gróður er skammt á
veg kominn.
Ferðafélag ísiands
Útivist,
Simar 14606 og 23732
, Hvítasunnuferðir
Útivistar 12.-15. maí
1. Skaftafell-Öræfasveit. Svefnpoka-
gisting að Hofi. Skoðunar- og gönguferðir
um þjóðgarðinn ogm.a. ekið að Jökulsár-
lóni.
2. Öræfajökull-SkaflafeU. Gengið á
hæsta fjall landsins og gönguferðir í
Skaftafelli. Gist að Hofi.
3. Snæfellsnes-SnæfeUsjökull. Frábær
gisting á Lýsuhóli. Sundlaug, heitur
pottur. Göngu- og skoðunarferðir um
strönd, fjöll og á Jökulinn eftir vali.
4. Snæfellsnes-Breiðafjarðareyjar.
Sameiginleg ferð nr. 3. Boðið upp á
dagsferðir út í Breiðafjarðareyjar.
5. Þórsmörk og Fimmvörðuháls.
Fimmvörðuháls fyrir þá sem vilja, annars
gönguferðir við allra hæfi um Mörkina.
Góð gisting í Útivistarskálunum Básum.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni
Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
Utanlandsferð - Gönguferð um Jötun-
heima í Noregi. Brottför 18. ágúst, 10
dagar. Takmarkað pláss. Pantið sem
fyrst. Allar upplýsingar á skrifstofunni.
Fararstjóri verður 'Kristján M. Baldurs-
son.
vertu í takt við
Tímann
AUGLÝSINGAR 686300
Afgreiésla Tímans er opin
kl. 9-5 daglega nema
laugardaga 9-12.
Sími afgreiöslu 686300
Kjarvalsstaöír:
Sýning Helga
Þorgils Friðjónssonar
Laugardaginn 6. maí kl. 16:00 var
opnuð að Kjarvalsstöðum sýning á nýjum
verkum eftir Helga Þorgils Friðjónsson, í
boði Menningarmálanefndar Reykjavík-
urborgar. Þetta er önnur boðsýning Lista-
safns Reykjavíkur á þessu ári og stendur
hún fram til 21. maí. Sýningin mun einnig
sýnd erlendis; fyrst í Norrænu listamið-
stöðinni í Sveaborg, og opnuð þar 16.
júní, þá í Galleri NEMO í Eckernförde
og loks verður sýningin send til Rovan-
iemi listasafnsins í Finnlandi.
Helgi Þorgils hefur haldið einkasýning-
ar bæði hér heima og erlendis, ennfremur
tekið þátt í fjölda samsýninga og verk
hans er að finna í erlendum söfnum, t.d.
í Rooseum safninu í Malmö, Statens
Museum for Kunst í Kaupmannahöfn og
Kunshalle í Kiel í Þýskalandi.
Sýningin verður opin daglega kl. 11:00-
18:00 til 21. maí.
ni'un;
GRÓÐUR&GARÐAR
l.tbl. 6. árg.
Tímaritið er 90 bls. að stærð með
mörgum litprentuðum myndum. Af efni
má nefna: Eiríkur St. Eiríksson ritstjóri
skrifar ritstjóraspjall, sem hann nefnir
Skuld þjóðarinnar við landið. Frásögn og
myndir eru af „Gullsóp f Garðabæ", en
gullsópur er runni sem ber gullin blóm.
Grein Sigríðar Hjartar um Garðyrkjufé-
lag íslands nefnist: 2% þjóðarinnar í
sama félaginu.
Þá eru greinar um kostnað við gerð
garða á nýrri lóð, og sagt er frá setlaugum
í garða, gróðurhúsum o. fl. Myndir eru
frá verðlaunagarði í Kópavogi. Rokkað
og ræktað í kúluhúsi á ísafirði nefnist
frásögn þaðan að vestan. Grein er um
Alaskaösp á íslandi og í blaðinu er
kynning fyrir útivistarfólk á loftmyndum
og kortum Landmælinga íslands. Ýmis-
legt fleira er í blaðinu fróðlegt fyrir
áhugafólk um garðrækt.
Útgefandi er Frjálst framtak hf.
ItfíÍRLKr
\«l»l U\U.\K1MH
SIAH! \íl \H
Skímir - vorhefti koraið út
Vorhefti Skímis, Tfmarits Hins ís-
lenska bókmenntafélags, 163. árg. er
• komið út.
I heftinu em 12 greinar og fjalla þær um
bókmenntir, sögu og fslenska búhætti.
Einnig er annað efni í ritinu, svo sem
grein eftir Guðberg Bergsson er nefnist
„Um ásthneigð í bókmenntum og lífinu".
Um íslenska búhætti skrifar Loftur Gutt-
ormsson og í „Skírnismálum“ er fjallað
um skipan mála í íslenskum sveitarfélög-
um. Þar skrifar Sigurður Líndal „Vörn
fyrir hreppa og þúsund ára gamalt stjóm-
kerfi“.
I heftinu birtist í fyrsta sinn í heild á
íslensku inngangur danska bókmennta-
fræðingsins Georgs Brandesar að tíma-
mótaverkinu Meginstraumum. Þýðandi
er Jón Karl Helgason. Einnig birtist eftir
hann ritgerð um tengsl milli Brandesar og
þeirra Gests Pálssonar og Hannesar Haf-
stein. Örn Ólafsson skrifar um einkenni
expressjónisma í smásögum Halldórs
Stefánssonar.
Tvær greinar í ritinu em um Sturlungu:
„Hart er í heimi hórdómur mikill“, eftir
Úlfar Bragason og „Eitt sinn skal hverr
deyja“ eftir Guðrúnu Nordal. Margar
greinar og umfjallanir eru um bækur og
einnig bókaþýðingar.
Skáld Skírnis er að þessu sinni Wallace
Stevens og hefur Sverrir Hólmarsson þýtt
ljóð eftir hann.
Ritstjóri Skírnis er Vilhjálmur Áma-
son. Meðritstjóri þessa heftis er Ástráður
Eysteinsson.
Skírnir kemur út tvisvar á ári, vor og
haust. Vorheftið 1989 er 250 bls. að stærð.
g^NYI RENAULT TXE
VERKFÆRI
Bíllinn
2. tbl. 7. árg.
Bílapistill Leós M. Jónssonar ritstjóra
er fremst í blaðinu. Þá eru myndir og
umsagnir um bíla af ýmsum tegundum.
Sagt er frá reynsluakstri á nýjum Renault
19 í Norður-Frakklandi. Einnig eru grein-
ar með myndum um mótorhjól og jeppa.
Ýmsar tækninýjungar era kynntar. Sagt
er frá dýrasta jeppa á landinu, nýjum
Scania vörabíl o. m. fl. er f þessu
bílablaði, sem er yfir 60 bls. að stærð og
gefið út af Frjálsu framtaki hf.
m hraöa « I avallt vló I KaóstæöuiM "1
c || UfjflFERÐAR J