Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 30

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 30
„Afrek i þágu mannkynsins.“ Þegar T.ieljuskin festist í ísum Norðurheimskauts- ins 1934 og flughetjum Sovétríkjanna tókst að bjarga allri áhöfninni — að einum manni undanskildum — heilu og höldnu, þá urðu afrek þeirra á hvers manns vörum um víða veröld og Sovétríkin skipuðu sér þá í öndvegi meðal þjóðanna á sviði flugmálanna, í með- vitund allra þeirra, er eitthvað fylgjast með í þeim efnum. Agnar Kofoed Hansen flugmaður lýsir prýði- lega þeirri aðdáun, sem björgun þessi vakti, í Þjóð- viljanum 10. þ. m., á þessa leið: ,,Ég var svo heppinn að fá tækifæri til þess að sjá flugvél þá, er undir stjórn Molokoffs bjargaði 39 manns af áhöfn Tjeljuskins, hann kom sjálfur fljúg- andi á vélinni til Kaupmannahafnar í ágúst 1934, til þess að taka þátt í alþjóðaflugsýningu er þá var haldin þar. Flest lönd álfunnar sýndu flugtæki og flughreyfla á sýningu þessari, og voru vígtæki í yfir- gnæfandi meirihluta, sýningin bar ljóslega vott um hernaðarkapphlaup það, sem þá var hafið, en Sovét- lýðveldin voru þau einu, sem á sýningunni héldu sig við flugtækni í þágu menningar og vísinda. Af öllum sýningarmununum vakti flugvél Molokoffs mesta at- hygli, ekki vegna þess að hún væri tilkomumeiri né fegurri en hinar vélarnar, sem stóðu fágaðar með stálblá vélbyssuhlaupin út í allar áttir, nei, heldur vegna þess að hún hafði unnið afrek, sem setti hinar vélarnar með hinum leiða tilgangi — alveg í skugga. Hún stóð þarna veðurbarin og skrámuð, á sömu skíð- unum og höfðu verið sett á hana áður en hún lagði í Tjeljuskinflugið“. Nú hafa flughetjur Sovét lýðveldanna vakið að nýju eftirtekt alls hins menntaða heims með flugaf- rekum sínum. Og enn hafa þær einkennt sig að því, 190

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.