Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 53 MINNINGAR ✝ María Kristjáns-dóttir fæddist á Björgum í Ljósa- vatnshreppi í S- Þing. 26. október 1917. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 15. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Krist- ján Jónsson, f. 1883, d. 1961, og Þuríður Halldóra Kristjáns- dóttir, f. 1877, d. 1959. María var yngst fjögurra barna þeirra. Systkini hennar voru: Jón, f. 1911, d. 1967, Guðrún, f. 1913, d. 1999, og Hermann, f. 1915, d. 1993. Uppeldisbróðir þeirra var Hermann Aðalsteinsson, f. 1927, d. 2001. Árið 1951 giftist María Katli Tryggvasyni, f. 1901, d. 1985, frá Halldórsstöðum í Bárðardal og bjuggu þau þar all- an sinn búskap. Börn Maríu og Ketils eru: Þórey, f. 1948, gift Sverri Thorstensen, María, f. 1949, gift Ágústi Hilmarssyni, Krist- ín, f. 1952, gift Sig- urði Pálssyni, Sig- rún, f. 1953, gift Jörg Wohner, og Ingvar, f. 1955, kvæntur Berg- ljótu Þorsteinsdóttur. Barna- börnin eru þrettán og barna- barnabörnin átta. Útför Maríu verður gerð frá Lundarbrekkukirkju í Bárðardal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hjartkær móðir, hljóð við flytjum heitt og einlægt þakkarmál. Minning hlý, sem morgunsunna mildar harm og vermir sál. Kært við þökkum ástúð alla, umhyggju og kærleikstryggð. Átti nokkur hlýrra hjarta, heilli skapgerð, meiri dyggð. Allra kaustu undir græða, örlát var þín fórnarlund. Vildir hverjum gesti greiða, gera fram á síðustu stund. Ljúfar stundir litlu börnin léku glöð við skautið þitt. Drottinn launar, drottinn blessar, drottinn þekkir barnið sitt. Farðu sæl til friðarheima fjarri þraut, með hreinan skjöld. Bjartan, nýjan bústað áttu bak við hulin dauðans tjöld. Sælir eru hjartahreinir, herrann Jesús mælir slíkt. Dyggum eftir dagsverk unnið drottinn fagnar kærleiksríkt. (Daníel Kristinsson.) Börnin þín, Þórey, María, Kristín, Sigrún og Ingvar. Engill hefur nú sótt hana ömmu og flogið með hana á bjartan fal- legan stað. Það var friður og fegurð yfir henni síðustu dagana en hún kvaddi okkur svo á sólríkum sunnu- degi. Hún skilaði lífsverki sínu vel og við afkomendurnir hennar erum stoltir af henni. Amma var allt í senn dugleg kona, ákveðin og mjög hlý. Frá henni streymdi mikil ástúð og hún lagði sig alla fram við það sem hún tók sér fyrir hendur. Í búskapnum var hún dugnaðarforkur og sinnti þar flest- um verkum. Nægjusemi, nytsemi og hagsýni eru orð sem koma upp í hugann, en amma kunni svo sann- arlega að búa til mikið úr litlu. Hún var handverkskona og það lék allt í höndum hennar hvort sem það var saumaskapur, prjónaskapur, út- saumur, málun, matargerð eða garð- yrkja. Hún var mikið fyrir söng og tónlist og fengum við oft að njóta söngsins hennar og lærðum ótal vís- ur og ljóð hjá henni. Amma sýndi okkur einnig og kenndi að flest er hægt sé viljinn fyrir hendi. Þegar við fullorðnuðumst kom- umst við að því í samtölum okkar við hana að hún var framsýn kona og hún sýndi okkur fram á jafnréttis- kennd með gjörðum og tali. Hún vann við vegavinnu sem ung stúlka og vílaði ekki fyrir sér að vinna jafnt á við karlmenn. Einnig dreif hún sig í vinnu suður á land sem ekki var al- gengt á þessum árum. Á fullorðinsárunum gerðum við okkur sífellt betur grein fyrir því hversu mikil manngæði amma hafði til að bera. Frá henni streymdi hlýja sem snerti alla sem henni kynntust. Hún var ávallt þakklát fyrir allt og aldrei heyrðum við ömmu kvarta yf- ir neinu. Hún hafði þann eiginleika að finna það jákvæða við allt og alla. Lífsgleðin og kærleikurinn geislaði út frá henni og það var gott að vera í návist hennar, það fundu allir sem kynntust henni og þekktu. Henni féll aldrei verk úr hendi og eru þeir ófáir ullarsokkarnir og ullarvettling- arnir sem hún prjónaði á börnin sín, okkur barnabörnin og nú síðustu ár- in á langömmubörnin. Hún var sterk kona, æðrulaus og hógvær. Amma var falleg kona og hélt hún fallega brúna hárinu sínu fram á síð- asta dag. Hún var ung í anda og var glögg á breytingar samfélagsins og hafði skoðanir á fólki og málefnum. Alltaf var stutt í húmorinn og eitt það síðasta sem hún sagði á sjúkra- húsinu var að hún hefði það náðugt. Amma var kona sem við bárum mikla virðingu fyrir, elskuðum og munum ávallt hafa sem fyrirmynd. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku amma, þín verður sárt saknað. Við vitum að nú líður þér vel og ert komin til afa Ketils. Þakka þér fyrir allt sem þú gafst okkur. Ástarkveðja, Fjóla María, María og Nína María. Amma og afi hófu búskap vorið 1951 á Halldórsstöðum II í Bárð- ardal. Þar byggðu þau á erfiðum tímum upp íbúðarhús, útihús og komu sér upp bústofni. Þau ólu upp fimm börn sem öll lifa móður sína. Það var lærdómsríkur tími fyrir ungan dreng að vera í sveitinni hjá ömmu og afa. Afi var nokkru eldri en amma og var þá orðinn rúmfastur. Þegar amma fór í gegningar á morgnana var oft sögustund hjá afa. Hann kunni skemmtilegar sögur og sagði þær eftir pöntunum. Ég sá það síðar að hann fór meðal annars nokk- urn veginn orðrétt með helstu atvik úr Egils sögu. Oft var vinnudagurinn langur hjá ömmu, en hún átti fallegt bros og einhvern innri styrk sem fylgdu henni alla tíð og fram á síðustu stundu. Amma hafði lag á því að koma auga á og kalla fram björtu hliðar mannlífsins. Hún umgekkst skepnurnar af þolinmæði og virðingu og skipti ekki skapi þó eitthvað brygði út af. Mér fannst hún sífellt vera að vinna eitthvað og hún ætl- aðist líka til þess að við ömmudreng- irnir lykjum við þau verk sem okkur voru falin. Það var alltaf gaman að vera í kringum ömmu og ef eitthvað bjátaði á var hún okkur sem móðir. Ég sannreyndi snemma að amma var berdreymin og við ræddum oft- ast drauma okkar þegar við hittumst. Þessar umræður voru oft skemmti- legar, enda var amma glettin og tók sig ekki alvarlega. Ég sakna ömmu en það er allt í lagi því ég veit jafnframt að hlutverki hennar er lokið hér með okkur og nú bíða hennar ný verk. Ég er viss um að afa var farið að lengja eftir henni. Elsku amma, ég þakka fyrir hversu góð þú hefur alla tíð verið við mig, Rósu og drengina okkar. Ég vona að þínir bestu draumar hafi ræst. Hilmar Ágústsson. Elsku besta amma María, eitthvað er nú hálfskrýtið að skrifa til þín nokkur orð núna þegar maður hefur getað sagt þér það sem hvarflað hef- ur um hugann síðustu viku þegar þú varst að kveðja okkur öll. Þetta ljóð, sem heitir Gjöfin, finnst okkur segja allt sem segja þarf um hug okkar til þín: Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest, að fegursta gjöf sem þú gefur, er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlegt hlær, hlýja í handartaki hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson.) Takk fyrir að vera þú og vera til staðar þegar þurfti. Umhyggja þín var einstök alla tíð. Ketill Þór og Sigrún Fanney. Elsku langamma María, eða bara langagga eins og Sigmar Ernir segir. Þér fannst nú hálfspaugilegt þegar byrjað var að kalla þig langömmu því einhver sagði við þig að það væri skrýtið að langamma væri styttri en hún amma! Þetta var setning sem þú sagðir oft við okkur og hlóst í leið- inni. Þú varst svo rosalega góð við okkur og hafðir alltaf tíma til að spjalla og spila nokkra olsen olsen og veiðimann. Þér var líka alveg sama þó að Sigmar Ernir tæki Lappa og keyrði hann út um allt, hlóst bara. Amma, við söknum þín svo mikið og finnst gott að hugsa núna um ára- mótin þar sem við vorum saman og þú varst svo hress og glöð. Ég (Eyþór Hrafnar) ætla að vera duglegur að minna Sigmar Erni á þig en hann brosir út að eyrum þeg- ar við tölum um þig og þegar hann sér myndir af þér. Þínir langömmustrákar Eyþór Hrafnar og Sigmar Ernir. Þegar ég sest hér niður til að minnast hennar Maríu minnar á ég erfitt með að koma minningum mín- um niður á blað, einfaldlega vegna þess að þær eru svo margar og góð- ar. Ég var aðeins fimm ára gömul þegar ég fór fyrst í sveit að Hall- dórsstöðum til heiðurshjónanna Ketils og Maríu og var ég þar næstu tíu sumur því hvergi vildi ég annars staðar vera. María var mér ætíð sem önnur móðir og það sem ég lærði af henni er enn það besta sem ég bý að. Kærleikur og manngæska ein- kenndu þessa góðu konu og naut ég góðs af því. Ekki hefur verið auðvelt að taka við mér, ofdekruðu bæjar- telpunni, en með ákveðni og mikilli hlýju tókst henni, að ég vil meina, á undraverðan hátt að gera mig að betra barni enda eru margar mínar bestu bernskuminningar frá Hall- dórstöðum. Ég var ekki gömul þegar mér þótti orðið undurvænt um þig og vildi allt fyrir þig gera og held að ég hafi sýnt það þegar ég ekki nema átta ára gömul kom til þín, tók utan um þig og tjáði þér að ef ég skyldi nokkurn tímann eignast dóttur þá skyldi hún vera skírð í höfuðið á þér og er hún María mín á átjánda ári í dag. Þú varst ætíð þessi sterka og lífs- glaða manneskja og þrátt fyrir að vinnudagurinn væri langur og strangur vannstu verk þín í hljóði, fórst fyrst á fætur og gekkst síðust til náða. Þú varst mikil hagleikskona og má sem dæmi nefna sauðskinns- skóna sem þú gerðir handa mér og pabba því ekki gátum við hugsað okkur betri inniskó. Þú kenndir mér Faðir vorið, að virða og ganga vel um landið okkar og svo ótal margt annað sem ég hefði annars farið á mis við. Elsku María mín, ég vil þakka þér fyrir öll árin sem ég hef þekkt þig því þú hefur gefið mér svo mikið og verið mín fyrirmynd alla tíð. Það er svo sárt að kveðja en ég veit að Ket- ill tekur vel á móti þér. Hvíl í friði. Þín Helga María. MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR Faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, BRYNJÓLFUR H. HALLDÓRSSON, Sólvallagötu 14, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 17. janúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 25. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Sonja Wüum Brynjólfsdóttir, Einar G. Guðmundsson, Sólveig Ruth Wüum Ragnarsdóttir, Stefán Þór Finnsson, Bjarni Guðmundur Ragnarsson, Kristbjörg Ragna Kristjánsd., Björn Ragnarsson, Páley Sonja Ragnarsdóttir, Hlynur Finnbogason, Jófríður Eva Ragnarsdóttir, Steinunn Agnes Ragnarsdóttir, langafabörn, Guðrún St. Halldórsdóttir, Brian Dodsworth. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ELÍS ADOLPHSSON, Valshólum 4, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut aðfaranótt þriðjudagsins 17. janúar. Jarðsungið verður frá Fella- og Hólakirkju mið- vikudaginn 25. janúar kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Birna Júlíusdóttir, Guðrún Elísdóttir, Birgir Guðmundsson, Arnar Þór Elísson, Guðmundur Kolfinnur Elísson, Kristín Ásmundsdóttir, Arnheiður Anna Elísdóttir, Magnús Axelsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HJÁLMFRÍÐUR S. GUÐMUNDSDÓTTIR, Silfurgötu 8a, Ísafirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar mið- vikudaginn 19. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Halldóra Þorláksdóttir, Alda Sigtryggsdóttir Birgir Hermannsson, Helga Sigurgeirsdóttir, Anna Sigtryggsdóttir, Tryggvi Sigtryggsson, Guðrún Stefánsdóttir, Hólmfríður Sigtryggsdóttir, Árni Sigtryggsson, Guðbjörg Skúladóttir, Jón Björn Sigtryggsson, Magdalena Sirrý Þórisdóttir, Hreiðar Sigtryggsson, Salóme Anna Þórisdóttir, Katrín Sigtryggsdóttir Steingrímur Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HALLDÓRSSON skólastjóri, Skúmsstöðum, Vestur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju laugar- daginn 21. janúar kl. 14.00. Guðríður B. Ársælsdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Ófeigur Grétarsson, Ólafía Ásbjörnsdóttir, Hafsteinn Sigurjörnsson, Grétar, Guðríður Bjartey, Ragnheiður Lilja og Heiða Sigríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.