Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Maður Lifandi Borgartúni 24, Maður Lifandi Hæðarsmára 6, Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Krónan Mosfellsbæ Nóatún Hafnarfirði Spirulina Orkugefandi og brennsluaukandi. Skila fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 18. apríl. Send 0. Fífan, Kópavogi 20. - 22. apríl 2007 0. Listi yfir sýnendur 0. Opnunartími (sama og í Sumarblaðið þ.e. á 0. Miðaverð 0. Trick show mynd + texti (Heimsmeistarinn dair 0. Blómaskreytir 2007! 0. Hönnunarkeppni um umhverfislistaverk! 0. Landsleikur á Ferðatorgi - yfir 100 vinninga Sumarhúsið & Garðurinn BLÓMASKREYTIR 2007! HÖNNUNARKEPPNI UM UMHVERFISLISTAVERK! LANDSLEIKUR Á FERÐATORGI - YFIR 100 VINNINGAR! Abacus á Íslandi Allianz á Íslandi All Senses “Upplifðu allt á Vesturlandi” Asar ehf Gljúfrasteinn - Laxness safn Hótel Glymur Ferðamannasetur Hvanneyri Ullarsetrið Sveitafitness Búvélasafnið Landbúnaðarháskólinn Fossatún Snorrastofan í Reykholti Ferðaþjónustuan Húsafelli Hraunsnef Sæferðir Hótel Framnes Hótel Ólafsvík Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Hótel Hellnar Ensku Húsin við Langá Landnámssetur Íslands Hótel Hamar Hamarsvöllur Leynir Golfvöllur A-Skaftafellssýsla Atlantsolía Áburðaverksmiðjan Áfangar Ásútgáfan Bátar og sport ehf Billjón ehf - Floridahús. BM Vallá Borgarhús ehf Bos ehf Borgarplast hf Dúkþak ehf Edda Hótel Enjo á Íslandi EON arkitektar - Hljómskál- agarður Eyrfeld ehf Express Ferðir Farfuglar Fánasmiðjan ferd.is Ferðafélag V-Barðastrandasýslu Ferðaþjónustan Breiðuvík / Látrabjarg Hænuvík Stekkaból - gistiheimili bildudalur.is Villimey Vesturfari Skrúðhamrar - gistiheimili Bjarmaland - gistiheimili Minjasafnið Hnjóti Þorpið Bjarkarholt - gistiheimili Hamraborg - gistiheimili Hótel Flókalundur Ferðaklúbbur 4x4 Ferðamálasamtök Austurlands Ferðamálasamtök Höfuðbor- garsvæðisins Ferðamálasamtök Íslands Ferðamálasamtök Norðurlands eystra Ferðamálasamtök Norðurlands vestra Ferðamálasamtök Suðurlands Ferðamálasamtök Suðurnesja Ferðamálasamtök Vestfjarða Ferðamálasamtök Vesturlands Ferðamálaskóli Kópavogs Ferðamálastofa Ferðaþjónusta bænda Félag Blómaskreyta Félag ferðaþjónustubænda Félag leiðsögumanna Félag skrúðgarðyrkjumeistara Samband iðnaðarins Fjölur ehf Flugfélag Íslands Flúðasveppir Fosshotel Fuglaverndarfélag íslands GA Tours - Golf Activity Ltd. Garðyrkjufélag Íslands Garðyrkjustöð Ingibjargar Gámaþjónustan hf GB ferðir Glugg-inn Gluggar og garðhús ehf Glófi Golfborgir Golfklúbbur Vestmannaeyja Golfleikjaskólinn Golfsamband Íslands Gosbrunnar ehf Grillbúðin Habitana House Haraldur Þráinsson Hálendisferðir Hárkarla- og ferðaþjónustan Bjarnahöfn Heklusetrið H. Jacobsen ehf, Saladmaster Hjukse Bruk - Norsk sumarhús Hljómsýn - Tivoli útvörp Hole in One Hollusta úr hafinu Hólaskóli Hópbílar Hótel Akureyri Hótel Búðir Hrein fjárfesting Hrífunes Hús og bjálkar ehf Iceland Express Iceland Excursions - Gray Line Iceland Icelandair Icelandair Hotels Indriðastaðir ehf Indus ehf Innlit húsgögn ehf Inns of Iceland Í ríki Vatnajökuls Gistiheimilið Ásgarður, Höfn. Gistiheimilið Hvammur, Höfn Farfuglaheimilið Nýibær, Höfn Hótel Höfn Gistiheimilið Hafnarnes, Höfn Árnanes, gistiheimili, veitingastaður, gallerí Gistiheimilið Hoffeli Hótel Edda , Nesjaskóla Fosshótel Vatnajökull Ferðaþjónusta bænda, Brunnhól Gistiheimilið Hólmi Ferðaþjónustan Skálafelli Ferðaþjónusta bænda Smyrlabjörgum, veitingar, gisting N okkuð hefur verið fjallað um gervigreind í fjölmiðlum undanfarið, enda vænta menn þess að stórstígar framfarir eigi eftir að verða á því sviði í takt við sífellt öflugri örgjörva. Gervigreind er þó víðara svið en margur áttar sig á, á ekki bara við um vélmenni og róbóta heldur einnig nýtist hún vel við listsköpun svo dæmi séu tekin. Tónskáldið Kjartan Ólafsson hefur þannig nýtt sér gervigreind í tónsmíðum í fjölda ára og kennir nemendum sínum að nýta hana. Kjartan Ólafsson segir gervigreind í raun gamalt viðfangsefni, menn hafi byrjað að velta fyrir sér slíkum hlutum fyrir mörgum áratugum. Kippur hafi síðan komið í gervi- greindarfræði rétt eftir 1950 þegar til varð forritunarmál, Lisp, sem unnið gat eftir þeim forsendum sem gervigreind krefst. Gervi- greindarforrit hafa verið notuð í ýmis verk- efni til að mynda til að stýra geimferjum, stjórna gagnabönkum og til að semja tónlist og Kjartan nýtti sér einmitt Lisp til að semja Calmus-tónsmíðakerfið sem hann lauk við 1996 eftir að hafa unnið við það frá 1988, en verkefnið vann hann sem lið í námi sínu í tón- smíðum við Sibeliusar-akademíuna finnsku. Eðlilegt skref að nýta gervigreind við tónsköpun „Menn hafa notast við ýmsar aðferðir í tón- smíðum í marga áratugi, en þegar ég vann að Calmus var gervigreindartæknin orðin það þróuð að hún var aðgengileg fyrir aðra en sér- hæfða vísindamenn og tæknimenn. Það má segja að þar hafi mæst fagleg þekking og tækniþekking, því tæknin var orðin það að- gengileg að venjulegur maður gat tekið þátt í þeirri þróun,“ segir hann og bætir við að það hafi í raun verið mjög eðlilegt skref að menn tækju að nýta sér gervigreind við tónsköpun á þennan hátt, enda hafi menn þá löngu verið farnir að beita svipaðri tækni við tónsköpun án þess að hafa tölvur. „Það má til að mynda segja að gríska tón- skáldið Iannis Xenakis hafi beitt aðferðum líkindafræðinnar s.s. Markov-keðjum, á þann hátt að hægt er með góðum vilja að skilgreina það sem gervigreind.“ Raunveruleg greind Calmus-forrit Kjartans er einmitt skrifað í Lisp og nýtir sér gervigreind, eða eins og Kjartan lýsir því þá mætast í því gervigreind og mannleg greind. „Calmus tekur við hug- myndum höfundarins og býr síðan til tónefnið sem notað í í tónverk. Þetta er mjög kraftmik- ið tæki og segja má að sá sem notar tækið sé í samskiptum við tónsmíðakerfið, eigi við það einskonar samtal. Það er þetta samtal sem er helsta nýjungin í tónsmíðum og að mínu viti gríðarlega mikil- vægt. Tónskáld hafa alltaf unnið með tón- smíðakerfi í gegnum aldirnar, en í stað þess að tónskáldið skrifi verk sitt á blað þá ávarpar blaðið tónskáldið og leggur því til ýmsar hug- myndir sem það síðan velur úr. Í raun er ekki rétt að kalla þetta gervigreind, heldur er þetta raunveruleg greind, framlenging á greind listamannsins, þó hún sé ekki byggð á líffræðilegum þáttum.“ Kjartan er prófessor í tónsmíðum og tón- fræði við Listaháskóla Íslands og sinnir þar m.a. rannsóknum á notkun gervigreindar- tækni í tónsköpun. Hann kennir líka 20. aldar tónsmíðar en á síðasta misseri námsins vinna nemendurnir við Calmus og læra þar að nýta sér þetta samtal við tónsmíðakerfið, að nýta sér það að til sé safn efniviðar og hugsun sem þau geta sett inn í kerfið og gerir að verkum að þau geta gert ákveðnar tilraunir og mótað efnið miklu meira, sparað sér blýant og strok- leður. Gervigreind er gamalt viðfangsefni Fyrirbærið gervigreind er vinsælt viðfangsefni fjölmiðla en á sér lengri sögu en menn kannski átta sig á. Árni Matthíasson ræddi við Kjartan Ólafsson sem hefur nýtt gervigreind við tón- smíðar í tvo áratugi. Morgunblaðið/ÞÖK Tónsmiðir Kjartan Ólafsson og nemendur hans. Frá vinstri: Páll Ragnar Pálsson, Hafdís Bjarnadóttir, Óttar Sæmundsson, Ragnhildur Gísladóttir, Mamiko Dís Ragnarsdóttir, Anders Camilo Ramon Rubiano og Kjartan sjálfur sem nýtir gervigreind við tónsmíðar. GEIRÞRÚÐUR Finnbogadóttir Hjörvar (f. 1977) er einn hinna ungu listamanna sem boðið hefur verið að spreyta sig með einkasýningu í D- sal Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Rýmið og skynjun áhorfandans eru viðfangsefni hennar líkt og gefið er til kynna með yfirskrift sýningar- innar: Hinn firrti áhorfandi. Innsetningin sam- anstendur af körfubolta, blikkljósi og tónlist sem berst úr hátölurum. Þessi sviðsetning er einföld en áleitin. Þegar komið er inn tekur við óvissuástand. Blikkljósið og salurinn minna á dansstað á 10. áratugnum en það vantar fólkið og dynjandi teknótónlistina. Í stað þess að horft sé á „upp- lýst“ fólk sem er líkt og frosið í dansstellingum, beinist athyglin að körfubolta sem virðist í lausu lofti – eða réttara sagt svörtu tómi – umlukinn eins konar geislabaug. Boltinn speglast ekki að- eins á sjónhimnu áhorfandans, heldur verður hann einnig eins og spegilmynd augasteinsins sem tekur að skoppa um í rými salarins. Skoppið er þó einungis sjónhverfing og óvissa áhorfand- ans stigmagnast með hverju skoppi þrátt fyrir rökræna úrvinnslu heilans á aðstæðum. Röddin í hátalaranum endurtekur í sífellu sömu setn- inguna. Hið sterka áreiti truflar skynjun við- staddra og (dá)leiðir þá að óræðum mörkum vitundarinnar. Á þessari sýningu snýr Geirþrúður með ögr- andi en jafnframt húmorískum hætti upp á hug- myndina um gagnvirkt merkingarsamband áhorfanda og verks. Hugmyndin gengur út á að virkja skynjun áhorfandans til slíks samtals en Geirþrúður gengur lengra og neyðir hann bein- línis út að brún firringarinnar og fáránleikans. Sjónhverfingar Anna Jóa MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Til 29. apríl 2007. Opið alla daga kl. 10–17. Aðgangur 500 kr. Eldri borgarar og öryrkjar 250 kr. Hópar (10+) 250 kr. Yngri en 18 ára: ókeypis. Ókeypis á fimmtudögum. Hinn firrti áhorfandi – Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar Geirþrúður Snýr upp á hugmyndina um gagn- virkt merkingarsamband áhorfanda og verks.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.