Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Blaðsíða 22
Ferð til Hawaji
Þótt feröasaga þessi sé rituö árið 1927 og
ýmislegt hafi hreytzt síðan, hefur hún marg-
víslegan fróðleik aS geyma.
*
Einhvers staðar segir Mark Twain þessi orð
um Hawaji-eyjarnar: „The loveliest fleet of
Island ever anchored in any Ocean“, og hver,
sem einhvern tíma hefur komið þangað og get-
ur borið þær saman við aðrar hitabeltiseyjar,
verður að viðurkenna, að hinn orðheppni Twain
hefur sagt þetta í alvöru.
Hawajieyjaklasinn, sem í gamla daga var
kallaður Sandwicheyjarnar, er í Kyrrahafinu.
Þær liggja milli 18° 54' og 22° 15' n.br., og á
milli 154° 50' og 160° 30' v.lg., en þó er ein
þeirra, sú sem liggur allra vestast, á 28° 26'
n.br. og 178° 30' v.lg.
Hawajieyjarnar eru eins konar miðstöð í
Kyrrahafinu, aðeins 5 daga sigling fi'á San
Francisco og 10 daga sigling frá Japan. Áður
voru þær, vegna legu sinnar, fjærri og ein-
angraðar frá þáverandi menningarstöðvum.
Aftur á móti nú, þá skerast siglingaleiðir gufu-
skipanna um eyjarnar. Það er að segja, leiðanna
milli Ástralíu og U.S.A., Japans og Panama.
Þessi bogmyndaði eyjaklasi, sem liggur frá
norðvestri til suðausturs, eru 21 eyja, en af
þeim eru 8 byggðar. Heildar flatarmál þeirra
er 17000 km.2 Það er nokkru minna en helm-
ingurinn af Danmörku. Stærstu eyjarnar eru:
Oahu, Kaui, Maui og Hawaji. Sú síðast nefnda
er stærst þeirra allra. Víðátta hennar er %
hlutar af samanlögðu flatarmáli allra eyjanna.
arra landa, sem liggja á sömu breiddargráðu.
Alls staðar í kringum eyjarnar er mikið djúp-
sævi, um og yfir 3000 m. Þær virðast vera
myndaðar af fjallagnípum, sem rísa snarbratt-
ar úr sæ. Ef til vill eru þær leifar af landi,
sem til hefur verið á Krítar-tímabilinu, og ver-
ið áhangandi Norður-Ameríku. Allar eyjarnar
eru myndaðar af eldf jöllum. Þær eru mjög fagr-
ar til að sjá utan af hafinu. Eldrunnin rauðleit
fjöll blasa við, umlukin bláum himni og girt
dökkbláum sæ,
Hawaji er fjallahæsta eyja heimsins, aðeins
fáir fjallatindar í Alpafjöllum eru eins háir og
Mauna Lóa og Mauna Kea, en Haleakala á
Mauni er jöfn að hæð og flatarmáli og Etna.
Tvö einhver mestu eldfjöll heimsins, Kilauea
og Mauna Loa, eru bæði á Hawaji. Loftslag
eyjanna er tiltölulega svalara heldur en ann-
aarra landa, sem liggja á sömu breiddargráðu.
Valda því að nokkru leyti hinir köldu haf-
straumar, sem koma norðan að, en að nokkru
norðaustan staðvindurinn, sem leikur um eyj-
arra landa, sem liggja á sömu breiddargráðu.
stað í Kyrrahafiny, þekkist ekki á Hawajieyj-
unum. Meðalhiti ársins er nálega 24° C. f ágúst-
mánuði kemur fyrir að hitinn verður 33°, en
í febrúar er hann í kringum 20°. Auðvitað er
mikill hitamunur á hálendinu og niður við sjó.
Staðvindurinn veldur því, að regnið fellur
aðallega á norðaustur hlíðar fjallanna, þess
vegna sést greinilegur munur á gróðrinum þar
og hlémegin. í skjóli staðvindanna er loftið
heitt og þurrt og gróðurinn því fáskrúðugur,
en kulmegin, þar sem regnið nýtur sín, er sval-
ara; þar er þróttmikill gróður og f jallahlíðarn-
ar klæddar þéttum skógi.
Þar sem jurta- og dýralíf er fléttað land-
námssögunni og fólkinu, virðist eðlilegt að
minnast fyrst á það.
Hawajieyingar geyma goðsagnir um Pele,
sem bjó á Kahiki (Samoa). Hún var svikin af
bónda sínurn. Þá fór hún með sínum mörgu
systkinum að leita betri bústaðar og fann
Hawaji. Hún tók sér bólfestu í fjalli á Oahu,
síðan flutti hún í eldfjallið Haleakala, að end-
ingu drottnaði hún yfir Hawajieyjunum, þar
sem hún bjó (og býr enn) í Mauna Loa og
Kilauea. Frá því í fornöld hafa menn óttast
Pele meira en nokkurn annan guð. Enginn þorði
að nálgast bústað hennar, án þess að færa henni
„Ohelo“-ber að fórn, ef svo eldsumbrot byrj-
uðu, fórnuðu menn svíni eða öðru og fleygðu
því í glóandi hraunflóðið. Sögusagnir segja okk-
ur, að Hawajibúar hafi einu sinni haft sam-
1) Ægilegur hvirfilbylur.
15B
V I K I N □ U R