Menntamál - 01.08.1935, Blaðsíða 7
MENNTAMÁL
85
arnir séu ótvíræðir. Úr þessu verður ekki bætt nenia
jneð fullkomnari prófum og auknu fjárframlagi af hálfu
ríkis, sveitar- og bæjarfélags.
Eina aðferðin til að velja úr hinum stóra barnahóp
eru próf, þó margt megi að flestum prófum finna. Það
er eina aðferðin til að dæma um hæfileika nemenda,
að fá þeim viðfangsefni til að spreyta hæfileika sina á.
Og viðfangsefnum og prófaðferðum má haga þannig,
að þau segi ekki eingöngu til um þekking, heldur og
skapgerð og hæfileika.
Það væri vafalaust stórt spor i áttina, ef nemend-
um í barna-, unglinga- og gagnfræðaskólum væri ár-
lega gefinn kostur á að ganga undir almenn próf, sem
gæfu svo rétt til framhaldsnáms við unglingaskóla, sér-
skóla og menntaskóla. En þau próf kærnu ekki að full-
um notum, nema keppt væri um allríflega námsstyrki,
sem veittir væru fátælcum nemendum, sem bera af í
samkeppninni.
Það er fagnaðarefni, að þau skólagjöld, sem tekin
hafa verið um nokkurra ára skeið við rildsskóla, falla
nú niður frá byrjun næsta skólaárs, en aðstöðumun-
inn, sem er milcill, þarf nauðsynlega að minnka enn
frekar með námsstyrkjum. Námsstyrkir, sem auka jafn-
rétti hinnar uppvaxandi kynslóðar, og verða til þess
að þjóðinni notast betur en ella mundi, að afburða-
hæfileikum, bera góðan ai’ð.
Ályktanir greinarhöfunda.
Eg hefi orðið þess var, að svörin við spurningu þessari
hafa valcið mikla athygli og urntal. Verður mál þetta nú
upp tekið og barátta hafin fyrir veigamiklum ati'iðum,
sem til endui-bóta og heilla liorfa, bæði fyrir eintsakling-
inn og þjóðfélagið. Á kennaraþinginu i vor munu Mennta-
mál leggja fram tillögur um kosningu fimm manna nefnd-