Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 43

Menntamál - 01.03.1953, Blaðsíða 43
MENNTAMÁL 37 ÖRN SNORRASON kenna/ri: Stafsetningarbögur. Iiæ ég út á sérhljóðasæ á sjálfri málfræðinni, breiðir hafa brodd nema æ, bara að ég þá finni. Ge, gi, gí, gæ, góða reglan engan villi. Ke, ki, kí, kæ, kemst hér ekkert j á milli. Efna, tefla, hafna, höfn, hefna, skefla, kafna, nefna, kefla, safna, söfn, sofna, efla, dafna. Gaman er að brjóta boð, sem berast mér í hendur. Ég ætla samt að setja j í sækjendur og fjendur. Upphafsstaf í ísland haf eins og kennir skólinn, en laugardag með litlum staf og líka blessuð jólin. „Blessaður", sagði Bangsimon og bauð mér kaffi. „Það er aldrei ypsilon á eftir vaffi.“

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.