Æskan - 01.05.1974, Blaðsíða 53
VOLGA VOLGA
stærstu ám
heims
og hin
mesta
I Evrópu
3690 km.
álengd
Volga er lengsta fljót RáSstjórnarrlkjanna og jafnframi
Evrópu. Fró upptökum til ósa er Volga 3690 km að lengd,
°9 hún er skipgeng næstum alla þessa leið.
Áin kemur upp rúmlega tvö hundruð m yfir sjávarmáli (
Valdaihæðum um það bil þrjú hundruð kllómetra frá Lenin-
9rad. Á leið slnni út ( Kasplahaf fellur áin gegnum mörg
v°tn. Á Volgubökkum eru margar stórar og frægar borgir.
Ein þeirra er Úljanofsk, þar var Lenin fæddur, og var
borgin nefnd Úljanofsk honum til heiðurs, en ættamafn
hans var Úljanof. Myndin, sem hér fylgir með, er af húsinu,
8®m Lenin fæddist (, og er það nú safn.
Á bökkum Volgu stendur Stalingrad, þar sem Sovéther-
irnir unnu sinn úrslltasigur yfir herjum Hitlers. Segja má,
a® þessi slgur eða orrustan um Stallngrad hafi skipt skðp-
Urn í helmsstyrjöldinni seinni, og þv( hafði hún áhrif um
h®11" allan.
Hin svokallaða Volgudelta þekur mjög stórt landsvæðl
eða kringum eitt þúsund fermílur. Deltusvæðið nær 50
km frá Kaspiahafi og upp frá ströndinni. Deltan er lág-
lendi, og fiæðir Volga þar oft og mikið yfir bakka slna.
Áin ber fram mikið af frjósömum leir, og er landiö þv(
gott til ræktunar. Volgudeltan Kkist um margt Nilardalnum.
Þarna á deltunni er mikið ræktað, og þarna er mikil mat-
vælaframleiðsla, og er þetta svæði ákaflega þýðingarmikið
fyrir Sovétríkin öll.
Volga er afar mikilvæg samgönguæð, og er feikna mikill
trjáviður fluttur niður eftir Volgu til Kaspíahafs. Svo er
Volga tengd öðrum óm með skipaskurðum.
Eitt mesta mannvirki þarna er Volga-Don-skipaskurður-
inn, og tengir hann saman vatnavegi alla leið til Svartahafs.
Skurðurinn tengir alla vatnavegi, sem tilheyra Donfljótinu.
Volgu-Don-skurðinum var lokið árið 1951.
Margar stórar þverár renna ( Volgu, og ein af þeim er
Okafljótið. Oka fellur I Volgu við borgina Gorki. Okaáin
er um eitt þúsund km á lengd. Kama fellur ( Volgu vlð
borgina Kasan, og er Kamaáin um 1800 km á lengd.
Margir sögufrægir atburðir hafa gerzt á Volgu og vatna-
vegakerfi hennar. Allir hafa heyrt talað um siglingu Sténka
Rasin á Volgu, en slðan þeir atburðir gerðust eru liðnar
margar aldir.
Ég set visurnar um Sténka Rasin hér, vegna þess að
hérna er varla til sá langferðablll, að ferðalangarnlr hafi
ekki sungið þetta kvæði.
Norður breiða Volguvegu
veglegt fer með þungum skrlð
skipaval mót striðum straumi
Sténka Rasins hetjulið.
Fremstur stendur frægur Rasin
faðminn opnar bKðri snót.
Kærleiks hátíð heldur Rasin,
hlýnar sál við ástarhót.
Læðtet kurr um kappa skarann,
kempan svelk vort bræðralag.
Eina stund með ungmey var hann,
óstarbljúgur sama dag.
Húsið, þar sem Lenin var toddur, er það nú aafn, opið
llmennlngi.
51