Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 50

Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 50
288 KIRKJURITIÐ á stundum að loka þyrfti kirkjunum, svo að þær trufli ekki gleðskapinn En það er ekki svo fjarri lagi hérlendis, að svo sé. Íslcnzk kirkjuniúsik í Svíjtjúií. Sænski organistinn og tónskáld- ið Gunnar Tliyrestam í Gávle í Svíþjóð er organisti við Kirkju heilagrar þrenningar þar í borg. Er hann mikill Islandsvinur og leikur oft íslenzka kirkjutónlist í kirkjunni. Hinn 8. maí s. 1. hélt hann svonefnda hádegis- tónleika, sem ætlaðir eru fólki í matarhléi og ferðamönnum, sem heim- sækja hina fornfrægu horg og skoða vilja hina gömlu kirkju, sem byggð var upphaflega á 15. öld. Orgelið, sem er nýlega endurbyggt og af sænskri gerð, er með 3 hljómborðum og 56 röddum. Efnisskráin á tónleikunum 8. maí var Islenzk kirkjumúsik: 1. Hallgrímur Helgason: Tvö orgellög úr Farsælda frón, Organum II. 2. Steingrimur Sigfússon: Tvö orgellög úr sama safni. 3. Jón Leifs: Þrjú kóralforspil. 4. Skarphéðinn Þorkelsson: Nr. 38 úr Organum II. 5. Halldór Jónsson: Nr. 19 úr Organum II. — Það er skemmtilegt, þegar erlendir listamenn, velmetnir og þroskaðir, taka til meðferðar islenzk tónverk. FulIIrúar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar munu eiga fund með framkvæmdarstjórn Alkirkjuráðsins i sumar. Hann verður í Danmörku, og mun samkv. yfirlýsingu dr. Franklins Clark Fry, formanns nefndar- innar, verða rætt um það, hvemig „kirkjurnar geti stutt hverjar aðrar og átt samvinnu um, að bera Kristi kröftuglegar vitni og efla frelsi, réttlæti og frið í heiminum.“ Kiin kreppir niV kirkjunni í Austur-Þýzkalandi, að þvi er fréttir herma, sakir aukins áróðurs stjómarvaldanna fyrir guðleysi. Ferðir Dibe- liusar biskups þangað austur hafa verið hindraðar, en biskupsdæmi hans nær til Austur-Berlinar. t-----------------------------------------------------------^ KIRKJURITIÐ Tímarit, gefið út af Prestafélagi Islands, kemur út 10 sinnum á ári. Ritstjórar Ásmundur Guðmundsson og Gunnar Árnason. Árgangurinn kostar 60 krónur. Afgreiðslu annast Elísabet Helgadóttir, Hringbraut 44, Reykjavik. Sími 14776. Prentsmiöjan Leiftur V J

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.