Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1997, Blaðsíða 29

Ægir - 01.02.1997, Blaðsíða 29
Þið þurfið sem sagt ekki að liggja úti í glugga og hrópa og kaiia niður á dekk- ið? „Nei, það er alveg búið. Auðvitað kemur alltaf eitthvað uppá sem er eðli- legt þegar mikið er að gerast, mikilar stöður og mikið vakað. En heilt yfir gengur þetta eins og smurt um borb." Jóhann segir að áhöfnin finni ekki heldur fyrir þrýstingi eða spennu frá út- gerðinni þó mikið sé í húfi á veiðiskap eins og loönunni. „Nei, það hefur ekki borið á neinu slíku. Við erum hjá mjög góðri útgerð sem er Hraðfrystihús Eski- fjarðar. Þab má kannski orða þetta svo ab við erum með góða vinnuveitendur og þeir eru meb góba starfskrafta og milli aðila eru alltaf vinaleg samskipti." Metaflaskipið Hólmaborg SU 11 reynist vel eftir breytingarnar: „Skipið er orðið virkilega gott“ í heimsókn í brúnni hjá Jóhanni Kristjánssyni, 1. stýrimanni Ekki var langt liðið á vetrarvertíðina á loönunni þegar Hólmaborg SU 11 hafði sett nýtt ísiandsmet. Skipið kom í byrjun febrúar með 2600 tonn að landi, meira en loðnuskip hefur komib með ab bryggju. Skipib kom úr leng- ingu í nóvember síðastliðnum og eru menn hæstánægðir með reynsluna sem komin er af skipinu á vertíðinni. Jó- hann Kristjánsson er fyrsti stýrimabur, á Hólmaborginni og afleysingaskip- stjóri þegar bróðir hans og skipstjóri Hólmaborgarinnar, Þorsteinn Kristjáns- son, er í landi. Jóhann er fæddur Norð- firðingur og flutti á Eskifjörð árið 1988 þegar Hólmaborgin kom þangað. Blaðamabur Ægis hitti Jóhann í brúnni á Hólmaborginni og fyrsta spurningin var hvernig samkomulagið væri milli bræðranna í brúnni. „Það er fínt, ekkert undan því að kvarta. Ég geri mér alveg grein fyrir því hver stjórnar þegar hann er um borð og á meðan ég er með það á hreinu þá er ekkert vandamál. Hann er með yfir- stjórnina hér uppi í brúnni en ég nibri þannig að þetta er ósköp einfalt," segir Jóhann. Mikils virði að hafa sömu menn ár eftir ár Er mikil ásókn í pláss á Hólmaborg- inni? „Já, hún er mikil en hins vegar er lít- il sem engin breyting frá ári til árs. Hér er sami mannskapurinn og það er mik- ils viröi. Þegar áhöfnin er oröin svona samheldin þá hafa menn lært hver inn á annan og ég segi fyrir mig sem stýri- mann að þab er léttir að hafa alltaf sömu mennina," segir Jóhann og bætir við að þetta atriði spili sé ekki síður mikilvægt á loðnuskipunum þar sem vertíðin er stutt og mikið í húfi að hlut- irnir um borð gangi snurðulaust fyrir sig. „Menn sem eru búnir að vera lengi um borð bera mikla umhyggju fyrir skipinu og ganga þannig um það. Fyrir vikið þarf heldur ekkert að vera að segja mönnum til, þetta fer fram þegjandi og orðalaust." Orðin þung með 2600 tonn Hólmaborgin fór í lengingu í haust og nýr hvalbakur var settur á skipið, auk fleiri breytinga. Burðargetan jókst um heil 1050 tonn eða sem svarar meðal- burðargetu skipanna í íslenska nóta- skipaflotanum og fulllestuð ber Hóima- borgin rétt rösk 2600 tonn af loðnu. Á engan er hallað þó sagt sé að hún beri höfuð og heröar yfir flotann á loðnu- miðunum. Jóhann segir áhöfnina mjög ánægða með skipið eftir breytingarnar. „Já, þetta hefur heppnast í alla staði mjög vel og skipið er virkilega gott. Lengingin var 13,75 m. en meb nýjum hvalbak má segja að í heild hafi skipið verib lengt um 14 metra. Auk þessa er breytt og betri aðstaða fyrir trollið og fleira var gert. Hólmaborgin var alltaf gott skip áður en henni var breytt en mér finnst hún núna vera stöðugri undir nótinni og gott að beita henni. En ég viðurkenni að hún er orðin dálít- ið þung þegar hún er komin með 2600 tonnin," segir Jóhann og brosir vib. ægir 29

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.