Frá Ameríku. -Cj-meríka er stundum kölluð skólanna land, og þeg- ar svo er tekið til orða, nær það einkanlega til Bandaríkjanna. Það er alkunnugt, að hvergi ívíðri veröld er lagt jafnmikið í sölurnar til að mennta alþýðuna eins og gert er í Bandarikjunum. Alþýðu- skólarnir eru óskabórn þjóðarinnar, og þessum óskabörnum sínum veitir hún alla sína stórkostlegu, einkennilegu rausn. Fyrir utan hið höfðinglega ör- læti af stjórnarinnar hálfu viðþessar stofnanir, legg- ur þjóðin fúslega á sig skatta og skyldur þeim til viðhalds og uppbyggingar, og vmdan þeim álögum er ekki kvartað, þó þær sjeu viða tiltölulega þyngstu skattbyrðirnar, sem alþýða leggur sjer á bak. Það er auðsætt, að til þess að alþýðuskólarnir geti orðið að verulegum notum, þarf að vera kostur á færum og hæfilegum kennurum við þá, og í þvi augnamiði eru sjerstakar stofnanir, hinir svokólluðu Normal Schools, settar á fót og haldið við á opinber- an kostnað; þar er kennsla veitt ókeypis þeim, sem vilja takast á hendr kennslustörf. Fyrir utan hin- ar algengu námsgreinar, sem á skólum eru kennd- ar, stunda nemendurnir þar »Pedagogy«, það er, þá 8*