Jóhann Amos Gomeníus.1 Jóhann Húss í Bæheimi var einn af þeim, er hófu mótmæli gegn páfa á undan Lúther; fjekk hann allmarga á sitt mál, og hjelzt trúarflokkur hans,. Hússítarnir, saman eptir hans dag. Síðar mynduðu nokkrir af þeim trúarflokki sjerstakan flokk, er kall- aður var Mahrisku- og Bæheimsbræður. Hinn 28. marz í vetur voru víða hátíðahöld í skól- um og hjá skólamönnum í minningu þess, að þá voru liðin 300 árfrá því, að sveinn sá fæddist hjá Mahr- isku bræðrunum, er síðar varð slíkur maður, að hann skipar öndvegissess meðal uppeldisfræðinga. Það var Jóhann Amos Comeníus. Hann fæddist í Mahren 28. marz 1592, en fullvíst er hvorki um fæðing- arstað hans, nje hverrar stjettar foreldrar hans hafi verið; þó segja flestir, að faðir hans hafl verið mal- ari. Fátt er kunnugt um uppvöxt Comeníusar; for- 1) Þess skal getið, aí) jeg hef ekki átt kost á að kynna. mjer rit Comeníusar sjálfs, en orðið að fara eptir því, er aðrir segja um hann, og að eins getað hagnýtt mjer tilvitnanir úr ritum hans, teknar úr ýmsum ritum um hann. Það er ann- ars leitt, þótt það sje ekki svo óeðlilegt, hve snauð bókasöfn vor eru að ritum, er snerta uppeldisfræði, og að stuðnings- og Ieiðbeiningarritum við alla kennslu á lægri skólunum.