SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 54

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 54
54 6. júní 2010 H vað er að vera nörd? Ætli það megi ekki skil- greina það sem einstakling sem hefur óvenjulega mikinn áhuga á afmörkuðu fyr- irbæri eins og til dæmis stærðfræði, málvís- indum eða tönnum. Áhuga? Kannski frekar ástríðu. Stærðfræðinördar sjá hrífandi fegurð í hlutföllum og tölum. Málvísindamenn fara með tungumálið eins og margbrotna og spennandi lífveru og sumir tannlæknar hafa dásamlega ástríðu fyrir tönnum. Undirrituð er auðvitað myndlistarnörd, eins og margir myndlist- armenn. Það brýst ekki út í taumlausri og stöðugri myndlistarfíkn. Meira í ástríðufullum áhuga á ein- stökum fyrirbærum innan myndlistarinnar og í svolítið skringilegum húmor. Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður og myndlist- arnörd skrifaði árum saman um íslenska myndlist og skildi mikið eftir sig. Sumum þóttu skrif hans ein- strengingsleg og fordómafull, sérstaklega gagnvart yngri kynslóðum listamanna, þeim sem lærðu í Hol- landi og þeim sem fengust við hugmyndalist. „Aðeins fyrir innvígða“ var dauðadómur í skrifum Braga. Þegar ég skoðaði sýningu þýska tvíeykisins Nikolai von Rosen og Florian Wojnar í Nýlistasafninu kom þessi setning Braga upp í huga mér, en í þetta sinn í jákvæðum skilningi. Sýning Rosen og Wojnar er ekki fyrir alla. Og í því samhengi; af hverju þessi algenga ósk um að listin sé fyrir alla? Hvorki súkkulaði né fótbolti eru það, af hverju að gera þær kröfur til samtímamyndlistar? Þess- ir listamenn gera örugglega ekki þá kröfu. Sýning þeirra er ekki gerð fyrir almenning svona almennt séð, ekki fyrir þá sem kjósa að sjá í myndlistinni staðfest- ingu á þeim raunveruleika sem þeir þekkja nú þegar og viðteknum hugmyndum sínum um listina. Verk Rosen og Wojnar eru fyrir hina, sem hafa áhuga á listum og eru forvitnir. Rosen og Wojnar eru samt ekki að gera neitt splunkunýtt, þannig lagað. Þeir byggja á arfi sem er vel þekktur, á vangaveltum um það hvað er list. Að baki leik þeirra með samsetningar fundinna stóla og fund- inna listaverka er hugarmynd okkar – hinna innvígðu – af aldargömlu „readymade“ Duchamp; hjól af reið- hjóli sem fest er á koll. Það má líka hugsa til Joseph Kosuth og innsetningar hans Einn og þrír stólar frá síðari hluta síðustu aldar. Þýska tíveykinu tekst vel upp og þeir eru skemmti- legir. Það má segja bráðfyndnir. Kannski tekur mynd- listarnördinn nú yfir en myndband þeirra, þar sem þeir stilla upp fundnum listaverkum í eigu Nýlistasafnsins, á ýmsa stóla, einnig í eigu safnsins, er kostulegt. Listamennirnir spyrja margra spurninga í verkum sínum, um form og innihald, um eiginleika listaverka og ekki síst það hvernig við horfum á listaverk. Nálg- unin er blátt áfram, listaverk eru miskunnarlaust tekin úr fyrra samhengi sínu og sett í nýtt. Ætlun þeirra listamanna er gerðu verkin sem notuð eru er gersam- lega hunsuð en þó er allt unnið af fullri virðingu. Sýningin þeirra Nikolai von Rosen og Florian Wojnar er vandlega útfærð í alla staði og vel ígrunduð. Á léttan og leikandi hátt tekst þeim að skapa eftirminnilegar myndir sem spyrja áleitinna spurninga um þróun og eðli samtímalistar. Aðvörun: bara fyrir innvígða. Aðeins fyrir innvígða Myndlist CharlieHotelEchoEchoSierraEcho bbbbn Nikolai von Rosen og Florian Wojnar í Nýlistasafninu. Til 26. júní. Opið þri. – lau. frá kl. 12-17. Aðgangur ókeypis. Ragna Sigurðardóttir Eitt verka þýska tvíeykisins Nikolai von Rosen og Florian Wojnar á sýningu þeirra í Nýlistasafninu. Rosen/Wojnar Þetta verður alveg óskaplega róleg og góð helgi þar sem Sprengjuhöllin hefur legið í dvala í nokkurn tíma en undanfarið hef ég setið sveittur í hljómfræði uppi í LHÍ en ég er að undirbúa mig fyrir nám í tónsmíðum næsta haust. Annars hef ég virkilega góða tilfinningu fyrir helginni þó mér sé alltaf hálf-illa við að gera of mikil plön. En kærasta mín, hún Erna Halldórsdóttir dans- kennari, var að koma heim frá Englandi í gær við vorum boðin í mat heima hjá ömmu og afa ásamt pabba og ynd- islegu bræðrum mínum. Síðan förum við í aðra grill- veislu í kvöld þar sem einn stórsöngvari úr Garðabænum á stórafmæli. Síðan verður maður að passa sig að nota allar sólarstundirnar. Reykjavík fer öll að iða þegar það er svona gott veður og það er bara virkilega gaman að ráfa um og taka inn stemn- inguna. Leyfa henni að seytla inn. Hver veit nema maður reyni að hóa saman í frisbí á Miklatúni og ég geri fast- lega ráð fyrir því að dvelja í að minnsta kosti 3-4 tíma í Nes- lauginni. Annars ætlum við Bergur vinur minn að reyna að komast í tennis um helgina, maður á að vera duglegur að fara í allar íþróttir sem mann langar í á sumrin en við höfum síðustu sumur verið að leika okkur svolítið í tennis. Helgin mín Georgi Kári Hilmarsson Grillveislur og afslöppun Í frumraun sinni sem skáldsagnahöfundur segir Kári Tulinus, sem áður hefur fengist við ljóðasmíði, sam- tímasögu af nokkrum íslenskum ungmennum. Fyrri hluti sögunnar Píslarvottar án hæfileika – Saga af hnattvæddri kynslóð gerist í september árið 2008, fyrir búsáhaldabyltingu, en sá síðari í nóvember sama ár. Þá er af og til stigið aftur í tímann í köflum þar sem brugðið er upp myndum úr fortíð persónanna, af atburðum sem skýra framvinduna eða hafa mótandi áhrif á fólkið. Lesandinn kynnist tveimur stúlkum og þremur piltum í Reykjavík sem segja má að glími við ákveðinn tilvist- arvanda og stofna hryðjuverkahóp til að gefa lífi sínu til- gang. Það gengur hinsvegar upp og ofan að koma hug- myndum af umræðustiginu, hvað þá að gefa hópnum nafn við hæfi. Inn í söguna blandast ástarmál ungmenn- anna, þarna er eitt par, einn piltanna er samkynhneigður og aðrir skotnir, eins og gengur. Ástarmálin verða mik- ilvægur hluti fléttunnar og einnig uppljóstranir höfundar um mikilvæga atburði í fortíðinni. Búsáhaldabyltingin blandast ekki inn í söguna, sem er áhugavert bragð hjá höfundi, því persónunarnar hafa hug á að fremja hryðjuverk og bylta samfélaginu; en þau skortir tilefnið og eru meira að segja utangátta þar. Sagan berst hinsvegar suður til Ísraels og vísar þá aftur í sam- tímaatburði á forvitnilegan hátt. Styrkleiki Píslarvotta án hæfileika felst einkum í bygg- ingunni, hvernig tímaplanið er spunnið saman, og flétt- unni. Þá notar höfundur á forvitnilegan hátt ýmis smáat- riði til að útskýra persónuleikann; stússið í kringum gráan kött afhjúpar þannig sakleysi fólksins. Samtölin og beinar lýsingar á persónum eru hinsvegar veikleikar sög- unnar, einkum þó samtölin, sem vilja verða orðmörg, stirð og óraunveruleg, þótt þau eigi að vera hversdagsleg. Þetta er þó fyrirtaks frumraun. Af byltingar- sinnum og kattarvinum Bækur Píslarvottar án hæfileika. Saga af hnattvæddri kynslóð. bbbmn Eftir Kára Tulinius. JPV útgáfa, 2010. 224 bls. Píslarvottar án hæfileika, með undirtitilinn Saga af hnatt- væddri kynslóð, er fyrsta skáldsaga Kára Tulinius. Einar Falur Ingólfsson Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.