Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 37

Ný saga - 01.01.1997, Blaðsíða 37
Hrefna Margrét Karlsdóttir „Vinnan göfgar...“ Fangavinna í tukthúsinu við Arnarhól í upphafi 19. aldar ITT ELSTA STEINHÚS REYKJAVÍKUR ■1 j sem nú hýsir hið virðulega Stjórnar- ráð á sér merkilega sögu. Það var upphaflega reist á árunum 1761-71 sem tukt- hús landsmanna og þar skyldi tukta til betr- unar þann fjölda fólks sem fór um landið með smáhnupli og án aðhalds af guðsótta og góðum siðum, landsins bestu mönnum til mikillar hrellingar. Starfsemi tukthússins gekk aldrei sem skyldi og 1813 var því lokað og fangar þeir sem inni sátu sendir í sína heimasveit. Þegar gluggað er í skjalabunka þá sem tilheyrðu tukthúsinu kemur í ljós að reynt hefur verið að halda föngum að ein- hvers konar vinnu. Stopular upplýsingar eru til um þessa starfsemi fram á fyrsta áratug síð- ustu aldar og það var ekki fyrr en 1807 sem skipuleg skráning á fangavinnu hófst. Sú skráning er nokkuð samfelld næstu árin, en eftir 1810 finnst hins vegar ekkert um fanga- vinnuna og gæti það einfaldlega stafað af pappírsskorti í landinu.1 Mönnum hefur lík- lega þótt pappírnum betur varið í önnur skrif. Grein þessi fjallar því fyrst og fremst um þau fáu ár þegar heimildir finnast um vinnu fanga í tuklhúsinu, en þær gefa allgóða mynd af starfseminni. í raun má líkja fangavinnunni við vinnu fólks á heimilum þess tíma. Fangar unnu úti- vinnu yfir sumarmánuðina, stunduðu róðra yfir vertíðarmánuðina og sinntu tóvinnu á vetrum. Leiga á heimilisfólki yrði líklega seint litin eðlilegum augum, en leiga á föngum gegn gjaldi skapaði ágætar aukatekjur fyrir tukthúsið. Reisulegasta hús bæjarins William Jackson Hooker steig á land í Reykjavík sumarið 1809 og lýsti því sem fyrir augu bar: Hvít reisuleg bygging, með borðlögðu þaki, var helsta kennileitið í þessu þorpi. Ég ályktaði að þetta væri bústaður land- stjórans en mér til mikillar furðu var mér tjáð að þetta væri vinnuhæli eður betrunar- hús. Þegar nær var komið reyndist húsið heldur ekki vera eins aðlaðandi og úr fjar- lægð.2 Vafalaust hefur tukthúsið litið vel út í augum útlendinga sem hingað komu. Reisulega hvíta steinhúsið sem stóð við Arnarhól hefur sést vel þegar menn lögðu að landi. Tilskipun konungs um byggingu tukthúss barst til íslands med vorskipum 1759. Þar skyldu menn afplána dóma og þar átti einnig að vista þá afbrotamenn sem biðu Brimar- hólmsvistar eða lífláts. Þetta var gert að beiðni ýmissa embættismanna í landinu sem töldu að hér væri verið að bæta úr brýnni þörf. Rekstrarfé skyldi vera sakeyrir1, jarð- Mynd 1. Fangelsið við Amarhól árið 1819. Fyrir framan húsið eru kálgarðarnir sem fangamir unnu við. 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.