Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 6

Líf og list - 01.12.1951, Blaðsíða 6
[ ★ BÓKMENNTIR +~'} Graham Greene og skáldverk hans Hreppir Greene bókmenntaverðlaun Nóbels næst þegar þau verða veitt? Kannskc bítast hann og Laxness um hnossið — hver veit? LONDON — og þetta var eitt þessara kokkteil- boða, þar sem allir mæta með timburmenn. Veit- andinn, háttvirtur skáldsagnahöfundur að nafni Graham Greene, æddi eirðarlaus um bókhlaðna íbúð sína og hlustaði á kaldhæðnar frásagnir af eymdarheilsu. Og veitandinn gaf þá játningu, til þess að vera ekki eftirbátur hinna, að sjálf- um liði sér bölvanlega: Hann hefði sumsé vakað í alla nótt og drukkið með klerkinum sínum ka- þólska. Þetta var hrollvekja af því tæi, sem einkennir Graham Greene — ummæli þess eðlis, sem skelfa mann svolítið (þó að efa megi, hvort áhrif skelf- isins við þetta tækifæri hafi verið tilætluð eða tilviljuð). Graham Greene fæst við hrollvekjur. Hryllingssögur, en að auki ... HANN ritar um syndina og guð, um návist hins illa og fjarvist hins góða. Og hann ritar um þetta efni, sem búast mætti við, að væri ein- skorðað við helgan dag vikunnar, með skelfilega beinu, skelfilega hversdagslegu orðavali. Sögur hans, sem eru jafn-magnaðar og, góð kvikmynd, eru hryllingssögur um siðferðileg vandamál — en það er ekki hægt að forsmá þær eins og venju- legar hryllingssögur. Fólk það, sem hafið hefur Greene til þeirra vinsælda, sem hann nýtur nú, er mestmegnis fólk, sem hefur gaman að kvikmyndum — fólk, sem er hneigt fyrir verulega krassandi reyfara, fólk eins og gengur og gerist, sem hvorki er að hrella sjálft sig né aðra með því að nota orðið synd. Greene notar sjálfur orðið synd stundum, og syndina sem staðreynd hefur hann sífellt í huga, og honum tekst að rita um hana á eins ó- brotinn, sannfærandi og skemmtilegan hátt eins og hann væri að lýsa hegðun nágrannanna. Að hætti allra kaþólskra guðspekinga telur Graham Greene syndina eðlilegt loftslag í lífi hér á jörðu. En hann túlkar bókstafi guðfræðinnar í persónulegum stíl eins mennskum og forskriftin hljóðar — og á meira sannfærandi hátt. Um skeið var Greene talinn fyrsta flokks reyf- arahöfundur (smbr. sögur hans The Ministry of Fear og This Gun for Hire), en nú er talað um hann í mikilli alvöru sem sennilega „bezta rit- höfund sinnar samtíðar“. Enginn annar rithöfund- ur enskur sameinar það tvennt eins vel og hann: að hljóta góða dóma bókmenntagagnrýnenda og njóta um leið mikilla vinsælda lýðsins. Mídas- kvikmyndafélagið hefur mokað inn peningum á sögum hans (alls gert tólf myndir, byggðar á verkum hans, af þeim hafa að minnsta kosti þrjár slegið í gegn: The Fallen Idol, The Third Man, Confidential Agent:1:.) Árið 1948 varð skáldsaga hans The Heart of the Matter fyrir valinu af Book-of-the-Month Club í Bandaríkjunum, og á meginlandinu er Greene sá rithöfundur enskur, sem selst bezt. í beztu bókum sínum — en það eru bækur, sem hann hefur leitazt við að gera meira úr en skemmtilestur — hefur hann ritað um syndara, sem um síðir sjást á leið í ýmsar áttir (til himna- ríkis, helvítis eða hreinsunarelds). Það mátti greinilega sjá þess merki, að hann myndi fyrr eða.seinna spreyta sig á að gera sögu um góða per- sónu — dýrling. Og í síðustu sögu sinni, sem nú er nýkomin út í Bandaríkjunum, sýnir Greene leikni sína. Skömminni skárra að hata guð? THE END OF THE AFFAIR (titill bókarinnar sérkennilega smellinn) er á yfirborðinu saga um hórdóm. Greene tekst í sögunni að sýna þann ótta og þann, kvíða og það hatur, sem skapast af ástafari. Sagan misheppnast þegar höfundurinn greinir frá kraftaverki, og getur ekki sannað, að það hafi gerzt. * Ath.: Allar þessar þrjár myndir haí'a verið sýndar hér í Reykjavík. 6 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.