Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2010, Page 89
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
Forn miðstigsbeyging í nútímamáli
Inngangur1
Miðstig lýsingarorða beygt að fornum sið er í öllum setningunum í (1).
Tilgangur greinarinnar er að svara þeirri spurningu hvernig á því stendur
að setningarnar skuli teljast mögulegar í nútímamáli þrátt fyrir forna
beygingu. í öllum tilvikum stendur miðstigsorðið hliðstætt með karlkyns-
nafnorði í eintölu.2
(i)a. Brynjúlfur kenndi sig við Minna-Núp en Magnús átti heima á
Syðra-Hóli.3
b. „Eg hef selt hann yngra Rauð ... “
c- Ég meiddi mig á vinstra fæti.
d. Væringar eru í hægra armi flokksins.4
e. Eldra syni hjónanna þykir slátur gott.
Hér má sjá fornar miðstigsendingar, ekki aðeins með örnefnum, eins og
1 (la), heldur líka með eiginnöfnum, eins og í (íb), ýmsum orðum um lík-
amann, jafnt í eiginlegri, sbr. (íc), sem óeiginlegri merkingu, sbr. (íd), svo
°g orðum sem varða sifjar, eins og í (ie).5 Ástæða þess að setningarnar eru
mögulegar er fólgin í merkingarsviðum nafnorðanna. Miðstigsorðin sem
1 Höfundur fjallaði um sum efnisatriði þessarar greinar í fyrirlestri á minningarþingi
Élenska málfræðifélagsins um Jörund Hilmarsson (1946—1992) 25- nóvember 2006.
Baraldi Bernharðssyni, Þorsteini G. Indriðasyni, Þórhalli Eyþórssyni og ókunnum yfirles-
Urum er þakkað fyrir mjög gagnlegar ábendingar og Ólöfu Garðarsdóttur og Turið Sigurð-
ardóttur góðfúslega veittar upplýsingar.
2 Setningin í (íb) er fyrsta hendingin úr vísu í (13) í 3*2> Hinar setningarnar í (1) eru
8erðar á grundvelli upplýsinga sem fram koma í greininni.
3 Öll bæjanöfn sem koma við sögu í greininni eru í bæjatali á vef Stofnunar Arna
^Ugnússonar í íslenskum fræðum, www.arnastofnun.is.
4 Ásgeir Blöndal Magnússon (1989:1142) greinir vinstri sem miðstig án þess þó að
tengja það við nokkurt þekkt frumstig; um hœgri segir hann (1989:406) að það sé miðstig af
^&gur. Á grundvelli beygingar og uppruna verða lýsingarorðin h<zgn og vinstn því greind sem
miðstig enda þótt það geti vissulega orkað tvímælis þar sem vensl við frumstig eru alls engin.
5 Um fornar miðstigsendingar með eiginnöfnum má lesa í grein eftir Margréti Jóns-
dóttur 2009:143-158.
Menskt mál32 (2010), 87—115. © 2010 íslenska málfrœðifélagið, ReykjavíL