Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1955, Blaðsíða 3

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1955, Blaðsíða 3
TIMARIT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 6. hefti 19 5 5 40. árg. Sigurður Thoroddsen fyrrverandi landsverltfræðingur og yfirkennari Fæddur 16. júlí 1863. Dáinn 29. september 1955 Sigurður Thoroddsen var fæddur 16. júlí 1863, son- ur Jóns Thoroddsens sýslu- manns og skálds. Hann dó 29. sept. 1955. Er hann lauk prófi við Tæknihá- skólann í Kaupmannahöfn 1891, lagði hann fyrstur Islendinga á braut verk- fræðinnar. Hann fékkst fyrst í stað skamman tíma við verkfræðistörf í Danmörku og fór siðan til Noregs til þess að búa sig undir störf þau, er hann hafði hug á að taka að sér á Islandi, en á miðju ári 1893 gerðist hann landsverkfræðingur og hafði með höndum að- allega stjórn vegamála, en því embætti gegndi hann til 1905, er hann tók við kennarastöðu við Mennta- skólann. Er Sigurður Thoroddsen hóf starf sitt, var hér lít- ið um verklegar fram- kvæmdir, vegir því nær engir og aðeins ein brú úr varanlegu efni, hengi- brúin á ölfusá, auk nokkurra litilla timburbrúa. Starfs- skilyrðin, er hann átti við að búa, voru gerólík þeim, er síðar urðu og enga reynslu var við að styðjast. Til verkstjórnar kunnu menn fátt og naumast voru nokkrir lærðir iðnaðarmenn. En Sigurður Thoroddsen hóf starf sitt af áhuga og snérist ótrauður að viðfangsefnum, sem biðu hans og erfiðleikunum, sem á þurfti að sigrast. Fjárveitingar voru smáar, en brátt vaknaði nokkur áhugi alþingis og stjórnar fyrir bættum samgöngum og voru á starfsárum hans byggð- ar nokkrar stórbrýr, sem sumar standa enn, svo sem á Jökulsá í Axarfirði, Blöndu, örnólfsdalsá og Dagarfljóti, en aðrar stóð- ust tímans tönn fram til síðustu ára og þá miklu þungaumferð, sem engan gat órað fyrir, svo sem gömlu brýrnar á Þjórsá og Hörgá í Eyjafirði, er nú hafa horfið fyr- ir nýjum brúm. Einnig voru á þessu tímabili byggðar allmargar timb- urbrýr, sem bættu úr brýnustu þörfum. Þá var og hafin vegagerð á nokkrum aðalleiðum. Að samgöngubótum þessum, er hann stjórn- aði, varð mikið gagn, þó ekki væri miklar á síð- ari tíma mælikvarða. Þessar glæsilegu brýr á þess tima mælikvarða og fyrstu akvegakaflarnir, urðu sá vísir til framfara í sveitum landsins, sem síðar hefur verið aukið við, juku álit verklegrar menningar í landinu og urðu mikilsverð hvatning til margháttaðra umbóta. Má nærri geta, að verk þessi hafa gefið hinum unga verkfræðingi ærið að starfa, þar sem hann með litla reynslu að baki átti að stjórna þessum framkvæmdum og með lítilli og ófullkominni aðstoð verkstjóra og smiða, er aldrei höfðu að slíkum verkum unnið. Einnig bar þá á vantrausti á tæknimenntun yfirleitt, ýms- um þótti brjóstvitið traustara eða töldu sjálfsagt að

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.