Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2004, Blaðsíða 3
r DV Fyrst og frernst ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 3 Fyrsta konan sem bauð sig fram til forseta í Bandaríkjunum Frú Satan Hún var kölluð írú Satan en hét réttu nafni Victoria Woodhull. Hún er ekki í há- vegum höfð í bandarískri stjórnmálasögu en braut þó blað með því að verða fyrsta konan sem bauð sig fram til forseta, meira að segja áður en konur fengu kosningarétt. Og hún var kvenréttindafrömuður hinn mesti en kvenréttinda- hreyfingar seinni tíma hneigð- ust til að líta framhjá framlagi hennar vegna þess hversu ósleitilega hún var sögð pré- dika frjálsar ástir sem hún sagði gjarnan að væri besta lækning- in gegn hræsni og siðleysi! Hún, fæddist í Ohio 1838 og sinni samtíð á öllum sviðum. vakti snemma á sér athygli. í æsku tróðu hún og systir hennar upp í fjölleikahúsum og létust vera miðlar í beinu sambandi við andaveröldina. Seinna gerð- ust þær verðbréfasalar löngu á undan öðrum konum og voru reyndar ekki yfir það hafnar að fullyrða að ráðleggingar þeirra um verðbréfakaup væru komnar frá sérfræðingum að handan. Norn eða vændiskona Síðan gerðist Victoria mikill baráttumaður fyrir pólitísku réttlæti á mörgum sviðum og var þar sem annars staðar langt á undan sinni samtíð. Árið 1872 bauð Jafhréttisflokkurinn hana fram til forseta og jafnframt var fyrsti svertinginn í framboði til varaforseta á vegum flokksins, Fredrick Douglass. Á stefnu- skránni var t.d. átta stunda vinnuvika, tekjuskattur í þrepum, róttæk velferðarstefna o.fl. Þótt litlar líkur þættu á að hún næði kjöri var afar hart við henni brugðist og prédikarinn Henry Victoria Woodhull Langtá undan Enginn kosningaréttur fyrir konur Victoria lét það ekki koma i veg fyrir að hún reyndi að kjósa. Ward Beecher sakaði hana um að vera ým- ist norn eða vændiskona. Skoðunum hennar á frjálsum ástum var snúið upp á andskotann svo hún varð í munni Beecher að sérstökum siðleysispostula. Hún reyndi fyrst að leiða árásirnar hjá sér en þegar þeim linnti ekki snerist hún til vamar með því að benda á að Beecher hefði sjálfur átt í ástarsambandi við gifta konu. Reyndar gott Henry Ward betur, því hún fullyrti að hann ætti einar Beecher Siðapostuli tuttugu ástkonur. Þá var Victoria handtekin eða hræsnari. fyrir rógburð og þurfti alls að fara átta sinn- um í fangelsi áður en hún var sýknuð. Málaferli vegna málsins höfðu hins vegar gert hana gjaldþrota og hún fluttist til Eng- lands þar sem hún gekk að eiga auðugan bankamann og lifði kyrrlátu lífi til æviloka. Hún lést 1927. Spurning dagsins Hvaða dagur er besti dagur vikunnar? Fimmtudagar bestir „Þessa vikuna er það fímmtudagur því þá byrja ég að veiða í Litlá í Kelduhverfi. Annars eru allir dagar mér jafn kærir. Kannski erþað afþvíað vinnuvikan er ekki bundin afdögum hjá mér" Gísli Sigurðsson, sérfræðingur á Stofnun Árna Magnússonar. „Mér finnst laugardagur vera bestur, þá er vinnuvikan búin. Maður getur slappað afogsinntsín- um hugðarefnum." Guðríður Sigurbjörnsdóttir, háskólanemi. „Ég held að það sé laugar- dagur, það er fyrridagurí helgi og mest umleikis í íþróttum. Þá sit ég jafnan minn vikulega kaffifund með fé- lögunum hjá Friðleifi tann- lækni." Bjarni Felixson, íþrótta- fréttamaður. „Laugardagar eru alveg ágætir. Þeim getur maður eytt „Fimmtudagur, með börnun- því þó er farið um sínum." að síga á \iæ> ¥ Eyþór Gunn- • ' 1 ám seinni hluta arsson, tón- vikunnar." ^ á listarmaður. Steinunn A Linda Jónsdóttir, líffræðingur. Sunnudagur til sigurs, mánudagur til mæðu, þriðjudagur til þrautar, miðvikudagur til moldar,fimmtudagur til frama.föstu- dagur til fjár, laugardagur til lukku. Núllið hans Brahmagúpta Teikn og takn Stærðfræði tók að þróast viða um veröld á siðustu árþúsundunum fyrir Krists burð og sums staðar náðu menn furðu mikilli leikni i að hantera jafnvet hinar flóknustu tölur. Egyptar þurftu t.d. enga smáræðis stærðfræði kunn- áttu til að reisa píramídana, Kinverjar og fleiri þjóðir reiknuðu út brautir himintungia afmikilli nákvæmni og Forn-Grikkir brutu fjölmörg blöð í algebru og öðrum greinum stærðfræðinnar. Það olli flestum stærðfræðisnillingum þó fyrr en siðar vandræðum aðmenn höfðu ekki látið sér detta i hug sérstakt tákn fyrír töluna „ekkert". Núll var i reynd ekki til. Kringum árið 130 e.Kr. lét griski stærð- og stjörnufræðing- urinn Ptólemeus sér detta i hug að nota bók- stafinn omikron - sem litur út eins ogO- sem igildi„einskis" en aðferð hans náði ekki útbreiðslu, enda áttaði hann sig ekki á ýms- um vandamálum sem fylgdu notkun þess. Núllið eins og við þekkjum það var loks „fundið upp" á Indlandi. Indverjar tóku að nota punkt til að tákna núll til að greina á milli talna eins og t.d. 305 og 35. Punkturinn Aðdeyjaeróttalega leiðinlegtogþreyt- andi. Ég ráðlegg ykkur eindregiðaðveraekk- ertaðstandaíþví. W.Somerset Maugham inverskir spekingar Þeir horfðu til himins og fundu að lokum ...„ekfaert" þróaðist svo fljótlega yfir iþað 0 sem við þekkjum siðan. Fyrstu óyggjandi heimildirn- ar um notkun á nú/li eru steintöflur frá árinu 876 e.Kr. en talið er að spekingurinn Brahmagupta hafi verið farinn að vinna með núll tvö hundruð árum fyrr. Hann áttaði sig á eðli núllsins við samlagningu, frádrátt og margföldun en deiling með núlli vafðist enn eitthvað fyrir honum. Notkun á núlli breiddist siðan frá Indlandi til Persiu og þaðan til Araba og þeir miklu stærðfræðihausar tóku núllinu fegins hendi. Þaðan kom núllið svo til Evrópu þar sem menn ráku smiðshöggið á brúk þess. Sverrir Þór Sverrisson sjónvarpsmaður og Ingvar Sverrisson hjá Iþrótta- og tómstundaráði eru bræðir. Þeir eru synir Sverris Friðþjófssonar, rekstrarstióra hjá Miðbergi, og Elísabetar Kristjánsdóttur. Sverrir er best þekktur sem Sveppi í Sjötiu minút- um en þátturinn er sýndur við qríðarlegar vinsældir á Popp ríví. Ingvar hefur komið við í pólitíkinni; stýrði meðal annars kosningabaráttu Reykjavíkurlistans fyrir síðustu sveitarstjórnar- kosningar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.