Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Blaðsíða 27
DV Sport FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 27 ó Joshua Helm bætti stigametið í núverandi fyrirkomulagi úrvalsdeildar karla Fjórir 40 stiga leikir í röð hjá Joshua Helm Joshua Helm, leikmaður KFI, hefur vakið mikla athygli í vetur þótt gengi liðsins hafi ekki verið burðugt og fall í 1. deild sé stað- reynd. Helm er langstigahæsti leik- maður Intersport-deildarinnar í vetur og hefur skorað 781 stig í 21 leik sem gera 37,2 stig að meðaltali í leik. Til samanburðar má nefna að aðeins 9 leikmenn hafa náð að skora yfir 37 stig í leik í deildinni í vetur og aðeins tveir þeirra oftar en einu sinni en það eru KR-ingamir Cameron Echols (3) og Aaron Harper (2). Joshua Helm hefur skorað meira en 37 stig í níu leikj- um. Helm hefur hreinlega farið hamförum í síðustu leikjum en í Grindavík skoraði hann yfir 40 stig íjórða leikinn í röð en hann var með 44 stig gegn ÍR í Seljaskóla, skoraði 48 stig í heimaleikjum gegn bæði KR og Hamar/Selfoss og svo 43 stig í Grindavík í fyrrakvöld. Helm þurfti 25 stig í Grindavík til að bæta stigamet Stevie Johnson í núverandi fyrirkomulagi úrvals- deildarinnar sem hefur verið við lýði síðan 1996. Stevie „Wonder" skoraði 762 stig í 22 leikjum með Haukum 2002-2003 en Johnson er einnig í fimmta sæti listans með þau 670 stig sem hann skoraði fyrir Þór Akureyri árið á undan. Helm bætti met Johnson í lok þriðja leik- hluta, skoraði 18 stigílokaleikhlut- anum og vantar nú aðeins 19 stig til að vera tíundi maðurinn í sög- unni til þess að skora yfir 800 stig á einu tímabili. Danny Shouse er sá eini af þeim sem afrekaði slikt í færri leikjum en Helm (20 leikir og 800 stig tímabil- ið 1980-81 - 40 stig að meðaltali) en Frank Booker er næstur af hin- um en hann skorað 881 stig í 26 leikjum með Val 1991-92. Auk þessa hefur Helm tekið 14,1 frákast að meðaltali í leik og hefur náð tvennum í 19 af 21 leikj- um sínum í vetur sem er það lang- besta í deildinni. Helm hefur að sjálfsögðu slegið félagsmetið í stigaskorun og vantar nú 14 fráköst í síðasta leiknum gegn Skallagrími til þess að bæta félagsmet James Cason í fráköstum en hann tók 308 ffáköst fyrir KFÍ veturinn 1998-99. Hvernig sem fer er ljóst að Jos- hua Helm hefur sett sitt mark á metabækumar í íslenska körfu- boltanum. ooj@dv.is 37 stig í leik Joshua Helm hefurþegar bætt stigametiö þótt einn leikur sé enn eftir aflntersport-deildinni. FLEST STIGÁTÍMABILI Joshua Helm hjá KFf er þegar búinn að bæta stigametið í úrvalsdeildinni undir núverandl fyrirkomulagi þótt enn sé einn leikur eftir af Intersport-delldinni. Flest stig á 22 leikja tímabili: 781 Joshua Helm KF( 2004-05 762 Stevie Johnson Haukar 2002-03 727 Dwayne Fontana KF( 2000-01 707 Brenton Birmingham Grindavík 1999-2000 670 Stevie Johnson ÞórAk. 2001-02 ► Tólf lið hafa spilað 22 leiki frá og meðtímabilinu 1996-97. Stórleikur í Grindavík Það verður stórleikur í Grindavík í kvöld í lokaumferð Intersport-deildarinnar þegar heimamenn fá KR-inga í heimsókn í Röstina. Það era flestir sammála um að það búi mun meira í þessum tveimur liðmn heldur en staða þeirra gefrn til kynna en fyrir leikinn eru liðin í 7. (KR) og 8. sæti . (Grindavík). j . v. Grindvíkingar þurfa sigur til þess aö vera öryggir inn í úrslitakeppnina en einnig til þess að verja metið sitt sem eina lið í sögu úrvalsdeildar karla sem hefur aldrei verið með undir 50% sigur- hlutfall. Tapi Grindavík eiga Haukar möguleika á að komast upp fyrir þá > —1 með sigriíNjarðvíkog skilja þar með Grindavíkurliðið eftir «4 utan úrslitakeppn- * _ innar í fyrsta sinn síðan 1992. KR-ingar eru öryggir inn í úrslitakeppnina og geta með sigri og hagstæðum úrslitmn f öðrum leikjum komið sér ofar, jafnvel upp í 5. sætið, tapi Skallagrímur og ÍR bæði sínum leikjum þar sem KR er með betri innbyrðisstöðu gegn báðum þessurn Uðum. Gott gengi Haukanna Haukar hafa tmnið fjóra af fimm leikjum með Demetric Shaw og þurfa sigm í Njarðvík til að eiga einhverja möguleika á að komast hm í úrslitakeppnina. Njarðvík er öruggt með 3. sætið og hefur því að lidu að keppa í þessum leik. Af öðrum leikjum kvöldsins má nefha síðustu leiki KFÍ (gegn Skallagrími í Borganesi) og Tinda- stóls (gegn Snæfelli í Hólminum) í úrvalsdeildinni í bili, Fjölnismenn taka á móti Keflavík og ÍR-ingar sækja Hamar/Selfoss heima á Selfoss. Hamar missir nú af úrslitakeppninni í fyrsta sinn f sögu liðsins í úrvalsdeildinni. I kvöld kl. 21:30 Fifth Gear er einn vinsælasti bílaþáttur Breta. f honum er allt sem viökemur bílum tekið fyrir á magnaðan og spennandi hátt. besta sætið 515 6100 • syn.is • Skffan • Og Vodafone

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.