Litli Bergþór - 01.12.2011, Blaðsíða 14
„Flökkueðlið hefur dregið
mann víða“
Viðtal við Ernu og <3uðjón á Tjörn
Ef ekið er til norðurs yfir Torfastaðaheiði, í miðri sveit íBiskupstungum, blasa við bœirnir á Tjörn. Það
er varla hœgt að hugsa sér fallegra bœjarstœði, undir brattri brekku við lygna tjörn, með Hlíðarfjöllin í
baksýn. Það er þríbýlt á Tjörn, en auk Ernu og Guðjóns, sem búa mi á býlinu Tjarnarkoti, sem áður var
hjáleiga Tjarnar, búa þar tveir synir þeirra.Þeir Gunnar, sem býr ásamt fjölskyldu sinni ígamla íbúðar-
húsinu á Tjörn og Snorri, sem býr með sinni fjölskyldu á nýbýlinu Litlu-Tjörn.
Erna og Guðjón hafa búið á Tjörn íyfir 60 ár, stundað þar blandaðan búskap og skólaakstur auk þess
sem þau hafa verið dugleg að ferðast á hestum. Þau hafa riðið um flestar sýslur landsins sér tilyndis og
ánœgju og hafa gaman af því að segja frá þeim ferðum.Það er erfitt að ímynda sér að Guðjón sé nœr
nírœðu og Erna nýlega orðin 83 ára, þvíþau líta ekki út fyrir það. Eru bœði ern eins og unglingar.
Langaði blaðamann Litla-Bergþórs að forvitnast svolítið um líf þeirra og störf á langri œfi og tók því
stefnuna á Tjörn einn fagran vordag í byrjun maí. Glaðleg og brosandi tóku þau á móti gestinum og inni
beið kaffi og meðlœti áður en sest var niður við að rifja upp það sem á dagana hefur drifið.
Eins og venjulega spyr ég þau um œttir og uppruna og gef Guðjóni orðið:
„Ég er fæddur 17. júní 1922 íTröllatungu í
Strandasýslu, en það er um 10 km frá Hólmavík.
Foreldrar mínir bjuggu þar í fjögur ár, en faðir minn,
Gunnar Jónsson var fæddur þar. Móðir mín var
Sólrún Guðjónsdóttir frá Gilsfjarðarmúla, svo ég er
alger Vestfirðingur. Fæddur í Strandasýslu, uppalinn
í Barðastrandasýslu og ættaður úr öllum sveitum þar
vestra.
Árið 1924, þegar ég var tveggja ára, fluttu foreldrar
mínir að Hlíð við Þorskafjörð og bjuggu þar í átta ár
með fé og kýr til heimilisins. Ég man þó mest eftir
því þegar pabbi keypti árabát og kom með hann
heim. Ég hef verið fjögra til fimm ára þá. Hann
stundaði hrognkelsaveiðar í Þorskafirðinum á vorin
og svo ferjaði hann líka fólk yfir fjörðinn úr Gufu-
dalssveitinni. Foreldrar mínir fluttu svo árið 1932 að
Gilsfjarðarmúla, en afi og amma, þau Guðjón og
Sigrún voru þá að hætta að búa. Þaðan fór ég að
heiman um tvítugt. Við erum 11 alls systkinin, þar af
tveir hálfbræður og öll lifandi. Sex okkar eru á ní-
ræðisaldri, aðeins Olafur, elsti bróðir minn er orðinn
níræður. Við vorum einmitt í afmælinu hans um
daginn. Ég er næstelstur og verð níræður á næsta ári.
Eina menntunin mín, fyrir utan bílpróf og meira-
próf, var farskólinn á bæjunum heima. En ég hef
verið ótrúlega heppinn í akstri, hef aldrei lent í
óhappi og tryggingarnar hafa því stórgrætt á mér!
Krakkar byrjuðu snemma að vinna í þá daga, níu
ára fór ég í mánuð sem snúningastrákur í Berufjörð
um engjaheyskapinn. Fór þar með heybandslest
fjórar ferðir á dag ásamt Ola bróður mínum. Ellefu
ára byrjaði ég sem kúskur í vegavinnu og vann í
vegavinnu flest vor upp frá því, þrjár vikur til einn
mánuð á hverju vori. Veturinn eftir fermingu var ég
vetrarmaður, en var alltaf heima að sumrinu. Árið
1942, tvítugur að aldri, fór ég svo á vertíð á Akranesi
og þar missti ég framan af tveim fingrum hægri
handar. Var að vinna í frosti við að skrapa klaka, sem
Litli-Bergþór 14