Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á formannafundi ASÍ í gærmorgun, þar sem farið var yfir forsendur kjarasamninganna síðan í vor, kom fram hörð gagnrýni á efndir ríkis- stjórnarinnar gagnvart samningun- um. Forseti ASÍ segir ríkisstjórnina á skilorði í atvinnumálum. Fara á yfir forsendurnar næstu daga og vikur og á því að vera lokið 20. janúar. Meðal forsendna fyrir samningun- um voru ákvæði um aukinn kaupmátt launa, að gengi krónunnar styrktist, stöðugleiki í verðlagi og að stjórnvöld standi við yfirlýsingu sína um at- vinnu, efnahags-, og félagsmál. „Þær forsendur sem lágu til grundvallar kjarasamningnum og snúa að atvinnurekendum ganga eft- ir og að sumu leyti meira en það. Kaupmáttur eykst meira en við gerð- um ráð fyrir, eða um 4% á þessu ári,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Það kann að einhverju leyti að tengjast því að eingreiðslur voru metnar inn í samningana. Eftir að við sömdum í maí hefur takturinn í verð- bólgunni lækkað mjög mikið,“ segir Gylfi. Hann segir allar hagspár gera ráð fyrir að verðbólga hjaðni á næsta ári. „Þannig að við getum sagt að á milli okkar og atvinnurekenda er ekkert tilefni til viðbragða. Það hefur allt gengið eftir sem við sömdum um. En öðru máli gegnir um ríkisstjórn- ina,“ segir Gylfi ,„Það er engin laun- ung á því að það skortir verulega á að það hafi verið staðið við þau fyrirheit sem voru gefin. Sumt af því ætti að vera komið fram og kom fram mikil gremja á fundinum vegna þess.“ Sitja uppi með skerðingar Gylfi segir að skattlagning á lífeyr- issjóðina sé eitt þeirra atriða sem ASÍ-fólki þyki miður. „Skattlagning á lífeyrissjóðina er eitthvað sem fer algerlega fyrir brjóstið á mínu fólki. Ríkisstjórnin var með fyrirheit að jafna upp á við og treysta stöðu okkar lífeyrisþega. En í staðinn sitjum við uppi með skerðingar sem fela í sér að ef ekki verður brugðist við muni rétt- indi minnka,“ segir Gylfi. „Hækkun bóta og almannatrygginga er ekki í neinu samræmi við það sem fyrirheit voru gefin um. Þetta eru atriði sem eru mjög sár og snerta þá félaga okk- ar sem bera minnst úr býtum.“ Gylfi segir að ASÍ gagnrýni það sem hann kallar skort á framgöngu í atvinnumálum. „Auðvitað er óljóst hvað af því sem lofað var, hefði getað verið orðið að veruleika núna hálfu ári eftir samningana. Engu að síður átti að vera komin fram skýrari stefnumörkun, aðgerðaráætlun og hagvaxtaráætlun, sem hefur ekki lit- ið dagsins ljós. Hún átti að liggja fyr- ir fyrir sumarleyfi. En menn gáfu frest til áramóta til að vinna úr þessu.“ Engin rammaáætlun Gylfi segir ASÍ ennfremur gagn- rýna að rammaáætlun um virkjanir sé ekki komin fram, en þingsályktun- artillögu þess efnis hefði átt að leggja fram fyrir áramót. „Við höfum enga skýringu fengið á þessu en við mun- um leita svara.“ „Við teljum að þó að það eigi ekki að slaka neitt á í mikilvægi þess að ná tökum á ríkisfjármálunum hljóti for- gangur hagstjórnar að vera hagvöxt- ur og fjölgun starfa. Það er alveg klárt að næstu kosningar munu snú- ast um atvinnumál og störf. Þessi rík- isstjórn er einfaldlega á skilorði hvað það varðar.“ Önnur túlkun ráðherra Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins sem á aðild að ASÍ, segist lítið geta sagt um stöðu mála. Nú þurfi hann og aðrir for- menn félaganna að ráða ráðum sínum með félagsmönnum sinna félaga. Hann segir að ráðherrar hafi viljað túlka samkomulag um hækkun líf- eyris með öðrum hætti en verkalýðs- hreyfingin telur að samningar kveði á um. „Við viljum meina að hann hafi átt að hækka um 11.000 krónur 1. febrúar, en þeir ætla að hækka um 5.500,“ segir Björn. Segir ríkisstjórnina á skilorði  Formenn funda og gagnrýna efndir vegna kjarasamninga  Forseti ASÍ: Næstu kosningar munu snúast um atvinnumál  Verulega skortir á fyrirheit að mati ASÍ  Ágreiningur um hækkun lífeyris Gylfi Arnbjörnsson Björn Snæbjörnsson Næst munu formenn aðild- arfélaga ASÍ funda 19. janúar, en endurskoðun kjarasamning- anna á að vera lokið hinn 20. Í millitíðinni kynna formenn að- ildarfélaganna niðurstöður fundarins fyrir sínum félags- mönnum og samninganefnd ASÍ fundar með ríkisstjórninni. „Það er ljóst að það er for- sendubrestur í okkar samningi og það er verkefni samninga- nefndarinnar að vinna úr því, annaðhvort með samningi eða hugsanlegri uppsögn,“ segir Gylfi. Hann segir að nýlegar breytingar á skipan ríkisstjórn- arinnar bendi til þess að stjórn- in hafi vilja til að koma til móts við gagnrýni ASÍ. „Ég treysti því að ríkisstjórnin sé að setja sig í þær stellingar að fylgja þessu betur eftir.“ Forsendu- brestur FUNDA NÆST 19. JANÚAR Morgunblaðið/Golli Kalt í Reykjavík en nú hlýnar Vetur hafa verið tiltölulega mildir síðustu árin hér á landi og fólk orðið góðu vant. En kuldi, óvenjumikill snjór og hálka hafa þjakað marga íbúa höfuðborgarsvæðisins að undanförnu þótt skíðamenn hafi fagnað. Spáð er hláku næstu daga en gæti orðið byljótt á mánudag. »13 Skannaðu kóðann til að lesa viðtal við Gylfa Arn- björnsson á mbl.is ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813 Sigurður Bjarnason frá Vigur, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs- ins, alþingismaður og sendiherra, lést í Reykjavík í gær, 96 ára að aldri. Hann fæddist 18. desember 1915 í Vigur í Ögurhreppi í Norð- ur-Ísafjarðarsýslu. Foreldrar hans voru Björg Björnsdóttir húsmóðir og Bjarni Sigurðsson, bóndi og hreppstjóri. Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1936, lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1941 og einnig stundaði hann framhaldsnám í lögfræði í Cam- bridge á Englandi 1945. Á háskóla- árunum stofnaði Sigurður Félag andnasista. Sigurður hóf störf á Morgun- blaðinu 1941 og starfaði þar um nær 30 ára skeið, fyrst sem blaða- maður, síðan stjórnmálaritstjóri og loks ritstjóri frá 1956 til 1970. Sigurður var kjörinn alþing- ismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norður-Ísafjarðarsýslu 1942 til 1959 og í Vestfjarðakjördæmi 1959 til 1970. Hann var forseti neðri deildar Alþingis 1949 til 1956 og 1963 til 1970, 2. varaforseti neðri deildar 1946 til 1949 og 1. varafor- seti efri deildar 1959. Sigurður kveður síðastur þeirra sem áttu sæti á Alþingi við lýðveld- isstofnunina 1944. Þá var hann yngstur þingmanna, 28 ára gamall. Sigurður lýsti lýðveldisstofnuninni í viðtali við Gísla Sigurðsson í Morgunblaðinu á 50 ára afmæli lýðveldisins 1994. „Eins og aðrir í mínum þing- flokki var ég hraðskilnaðarmaður. Danmörk var hernumin og engir vissu hverjar lyktirnar yrðu. Við vorum á einu máli um að fresta ekki aðskilnaði og lýðveldis- stofnun. Allir vita hvernig þjóð- aratkvæðagreiðslan fór og allt í einu er runnin upp þessi stóra stund í slagviðrinu á Þingvöllum. Það var tvímælalaust stærsti at- burðurinn á mínum stjórn- málaferli,“ sagði Sigurður. Þegar hann var spurður hvort eitthvað einstakt við lýðveldisstofnunina væri honum ofar í huga en annað svaraði Sigurður. „Mér er í raun- inni minnisstæðastur fögnuður fólksins.“ Að lokinni þingmennsku gerðist Sigurður sendiherra. Hann var sendiherra í Danmörku 1970 til 1976, í Bretlandi 1976 til 1982 og jafnframt á Írlandi, í Tyrklandi, Nígeríu, Hollandi og í Kína og var fyrsti sendiherra Íslands þar. Sig- urður starfaði í utanríkisráðuneyt- inu í Reykjavík 1982 til 1985, var sendiherra á Kýpur frá 1983 og í Túnis og Indlandi frá 1984 með að- setur í Reykjavík. Sigurður gegndi fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum um ævina. Hann var m.a. formaður Blaða- mannafélags Íslands 1957 til 1958 og formaður Norræna blaða- mannasambandsins sömu ár. Sig- urður átti sæti í Norðurlandaráði 1953 til 1959 og 1963 til 1970, var formaður Íslandsdeildar og einn af forsetum ráðsins 1953 til 1956, 1958 til 1959 og 1963 til 1970. Hann sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1960 til 1962. Sigurður fékk margar við- urkenningar. Meðal annars heið- ursmerki vegna endurreisnar lýð- veldisins 1944 og Stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu með stjörnu. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari. Þau eignuðust tvö börn, Hildi Helgu og Ólaf Pál sem lifa föður sinn. Morgunblaðið sendir fjölskyldu Sigurðar heitins innilegar sam- úðarkveðjur og þakkar langa sam- fylgd og trausta vináttu. Sigurður Bjarnason frá Vigur, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ritstjóraárin Sigurður Bjarnason var ritstjóri Morgunblaðsins 1956-70. Andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.