Öldrun - 01.02.2003, Blaðsíða 10
10 ÖLDRUN – 21. ÁRG. 1. TBL. 2003
Í október síðastliðnum lauk ég meistara-
námi frá Félagsvísindadeild Háskóla
Íslands. Námsleiðin hét Almennt
rannsóknarnám og bauð upp á ýmis
námskeið í eigindlegum og megindlegum
rannsóknaraðferðum. Þar sem viðtöl eru
aðalvinnutæki félagsráðgjafa valdi ég að
dýpka þekkingu mína á eigindlegum
rannsóknaraðferðum.
STARF mitt á heilabilunareiningu snýst að mestu leyti
um stuðning við sjúklinga og aðstandendur og ég hef
verið þeirrar skoðunar að heimaþjónustan gæti komið
mun betur til móts við sérstakar þarfir þessa hóps. Á
fyrstu stigum heilabilunar er það fyrst og fremst félags-
legur stuðningur og aðstoð við athafnir daglegs lífs
sem þörf er á. Því ákvað ég að rannsókn mín skyldi
fjalla um félagslega heimaþjónustu fyrir sjúklinga með
heilabilun og aðstandendur þeirra.
Rannsóknin hlaut styrki frá Öldrunarráði Íslands
og Öldrunarfræðafélagi Íslands. Leiðbeinandi var
dr. Rannveig Traustadóttir.
Rannsóknarspurningar
Markmið þessarar rannsóknar voru að kanna
hvernig starfsfólki heimaþjónustu líður við störf sín
inni á heimilum aldraðra með heilabilun, hvaða
fræðsla um heilabilun stendur því til boða og hvaða
þekkingu það telur sig sjálft helst þurfa á að halda. Þá
voru fengin fram viðhorf aðstandenda til heimaþjón-
ustunnar og hvernig þeir vildu helst að þjónustunni
væri háttað. Megin rannsóknarspurningar voru eftir-
farandi:
1. Hvaða fræðsla um heilabilun stendur starfsfólki
félagslegrar heimaþjónustu til boða, hvernig nýtist
hún í starfi og hvernig er best að standa að slíkri
fræðslu?
2. Hvernig lýsir starfsfólk heimaþjónustu líðan sinni í
starfi inni á heimilum fólks með heilabilun?
3. Hvaða þekkingu finnst starfsfólki nauðsynlegt að
búa yfir varðandi einstaklinga með heilabilun?
4. Hvað finnst aðstandendum skipta mestu máli varð-
andi heimaþjónustu fyrir ástvini sína?
Eigindlegar rannsóknaraðferðir
Eigindlegar rannsóknaraðferðir eru margar en
hafa ýmis sameiginleg einkenni. Gögnin sem safnað er
lýsa fólki, stöðum og samræðum sem erfitt er að setja
inn í tölfræðiformúlur. Rannsóknarspurningar eru
settar fram til að kanna rannsóknarefnið í samhengi,
en jafnframt til að fá fram sem flestar hliðar á því. Rann-
sakandinn kann að þróa með sér ákveðið sjónarhorn
samhliða gagnasöfnun en hann leggur ekki upp með
ákveðna tilgátu sem hann prófar. Honum er umhugað
um að skilja fólk og fyrirbæri sem hann er að skoða, á
þeirra eigin forsendum. Hann heldur oft viðvarandi
sambandi við fólk sem hann er að rannsaka á þeim
stöðum sem það er vant að eyða tíma sínum eins og í
skólastofum, á kaffihúsum, kennarastofum og svo
framvegis (Bogdan og Biklen, 1998). Þess vegna ein-
kennast eigindlegar rannsóknaraðferðir af aðleiðslu en
ekki afleiðslu, þar sem rannsakandinn öðlast æ meiri
skilning eftir því sem líður á rannsóknina og hann fær
hlutina í betra samhengi (Taylor og Bogdan, 1998).
Heimaþjónusta fyrir fólk
með heilabilun
Kynning á meistaraverkefni
Hanna Lára Steinsson
félagsráðgjafi á heilabilunar-
einingu LSH Landakoti