Peningamál - 01.08.2014, Blaðsíða 3

Peningamál - 01.08.2014, Blaðsíða 3
P E N I N G A M Á L 2 0 1 4 • 3 3 Yfirlýsing peningastefnunefndar 20. ágúst 2014 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxt- um bankans óbreyttum. Efnahagshorfur til næstu þriggja ára eru samkvæmt nýrri spá Seðlabankans sem birtist í dag í stórum dráttum svipaðar og spáð var í maíhefti Peningamála. Horfur eru þó á að vöxtur innlendrar eftir- spurnar verði ívið meiri í ár og út spátímann. Verðbólguhorfur hafa heldur batnað frá maíspánni og útlit er fyrir að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum. Framleiðslu- spenna myndast seinna og verður ekki eins mikil og í síðustu spá. Verðbólguvæntingar hafa lítið breyst að undanförnu og eru enn yfir markmiði ef horft er til lengri tíma. Gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans undanfarið ár hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Á þessu ári hefur bankinn keypt gjaldeyri verulega umfram það sem hann hefur selt bæði í reglulegum kaupum og óreglulegum viðskiptum. Stefnt er að því að regluleg kaup haldi áfram í núverandi umfangi svo lengi sem aðstæður breytast ekki umtalsvert. Eftir sem áður mun Seðlabankinn beita óreglulegum við- skiptum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar. Slakinn í taumhaldi peningastefnunnar er líklega horfinn og miðað við grunnspá bankans er útlit fyrir að núverandi vaxtastig dugi til að halda verðbólgu í markmiði. Kröftugur vöxtur innlendrar eftir- spurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu þó leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka frekar.

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.