Iðjuþjálfinn - 01.05.2004, Blaðsíða 14

Iðjuþjálfinn - 01.05.2004, Blaðsíða 14
Útdráttur Tilgangur greinarinnar er að skoða með gagnrýnu hugarfari stöðu og hlutverk iðjuþjálfunar á Íslandi. Með því að samþætta rannsóknarniðurstöður um iðjuþjálfafagið er leitast við að svara spurningum um einkenni iðjuþjálfastéttarinnar, störf hennar og starfsumhverfi og hver sé árangurinn af þjónustu iðjuþjálfa. Notaðar eru niðurstöður frá meistararann- sóknum iðjuþjálfa, BS-verkefnum iðjuþjálfanema og rannsóknum höfundar. Fjallað er um niðurstöðurn- ar undir yfirheitunum iðjuþjálfastéttin, starfsum- hverfi iðjuþjálfa, iðjuþjálfastarfið og árangur af þjón- ustu iðjuþjálfa. Í samantekt er dregin sú ályktun að iðjuþjálfun sé ung og ört vaxandi stétt þar sem al- mennur vilji og áhugi á fagmennsku er ríkjandi. Flestir iðjuþjálfar starfa innan hefðbundinna heil- brigðisstofnana, en hlutverk þeirra innan heilsu- gæslu, félags- og skólaþjónustu fer vaxandi. Full- orðnir með líkamleg heilsufarsvandmál er stærsti notendahópurinn og þjónusta iðjuþjálfa við aðra hópa er í örum vexti. Iðjuþjálfar mynda jákvæð tengsl við skjólstæðinga sína, en vísbendingar eru um að þá skorti meiri leikni í að veita skjólstæð- ingsmiðaða og gagnreynda þjónustu. Skjólstæðingar eru alla jafna ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá og finnst hún hjálpa til að takast á við hið daglega líf. Niðurstöðurnar eru skoð- aðar í tengslum við erlendar rannsóknir og hug- myndafræðilegar forsendur. English summary The purpose of this article is to critically analyze the position and role of occupational therapy in Iceland- ic society. Results from several studies undertaken by occupational therapists and occupational therapy students are integrated with the author's own data in order to clarify issues concerning the profession and its practice. Results are presented under four main headings; the profession of occupational ther- apy, occupational therapy practice environment, occupational therapy practice, and outcome of occupational therapy service. A conclusion is made about occupational therapy as a young and growing profession with strong commitment to practice and professional behavior. Most occupational therapists work within traditional health institutions, however their role in primary health care, social service, and schools is steadily growing. Their largest client group is people with physical disabilities, but the trend is clear towards increasing service provided to varied populations. Occupational therapists form positive therapeutic relationships with their clients, but may need to further develop their skills for client-centred and evidence-based practice. Generally, clients are satisfied with the service provided and experience it as enabling in daily life functioning. Results are discussed in relation to international research and theoretical considerations. Inngangur Iðjuþjálfun hefur verið starfsrækt hér á landi í bráð- um þrjá áratugi. Miklar breytingar hafa orðið á fag- inu þennan tíma, en víðast hvar í hinum vestræna heimi hefur iðjuþjálfun náð því takmarki að vera skilgreind sem fræðigrein með áherslu á vísindalega þekkingu og gagnreynt starf (Egan, Dubouloz, von Zweck og Vallerland, 1998; Margrét Sigurðardóttir, 2001). Iðjuþjálfun hóf að hasla sér völl í upphafi síðustu aldar sem starfsemi þar sem skapandi athafnir voru notaðar til að takast á við afleiðingar veikinda og fötlunar (Westmorland, 1998). Frá tímum síðustu heimsstyrjaldar og fram yfir 1980 var iðjuþjálfun undir sterkum áhrifum frá læknisfræði (Schwartz, 2003), en í kjölfar mikillar grósku í þróun sjálfstæðrar hugmyndafræði fyrir fag- ið gætir þessara áhrifa nú mun minna. Í dag eru fræðimenn sammála um að iðjuþjálfun skuli grund- vallast á hugmyndafræði iðju og skjólstæðingsmið- aðrar nálgunar (American Association of Occupational Therapists, 2002; Canadian Associ- ation of Occupational Therapists, 2002; Fisher, 1998; Fortmeier og Thanning, 2002; Kielhofner, 2002; Ness, 1999). Þetta sjónarmið er einnig ríkjandi í ný- 14 - IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2004 Að gagnreyna eigin störf og stétt: Samþætting rannsóknarniðurstaðna um iðjuþjálfun á Íslandi GUðRÚN PÁLMADÓTTIR LEKTOR Í IðJUþJÁLFUN VIð HÁSKÓLANN Á AKUREYRI Iðjuþjálfun á að grundvallast á hugmyndafræði iðju og skjólstæðingsmiðaðrar nálgunar og það er vaxandi alþjóðleg umræða um hlutverk iðjuþjálfunar í að efla heilsu og stuðla að jafnrétti og tækifærum til iðju fyrir alla þegna samfélagsins.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.