Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 38

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 38
38 • IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gaf út skýrslu árið 1998 þar sem offitu er lýst sem heimsfaraldri og erum við Íslendingar þar ekki undan skildir (vitnað til í Hólmfríður Þorgeirs dóttir, Laufey Steingrímsdóttir, Örn Ólafsson og Vilmundur Guðna son, 2001). Um 60% fullorðinna Íslend inga eru nú of þung og rúmlega 20% eru offeit (Ludvig Árni Guð mundsson, 2004). Offita hefur ýmsar alvarlegar afleið­ ingar í för með sér og í bæklingi um hjáveituaðgerðir á maga er gerð grein fyrir þeim helstu. Þar segir meðal annars að helmingi meiri líkur séu á því að þeir sem eru offeitir deyi fyrir aldur fram miðað við þá sem eru í kjörþyngd. Hætta á hjarta­ og æða sjúkdómum, stoð kerfis­ verkjum og slit gigt er tvö­ til fjórfalt meiri. Hætta á sykursýki og kæfisvefni tugfaldast og aukin hætta er á að fá ýms­ ar tegundir krabbameins. Offita dreg ur úr frjósemi og meðganga og fæðing felur í sér meiri áhættu bæði fyrir móður og barn. Að auki eru meiri líkur á andlegri vanlíðan eins og þung lyndi og kvíða. Vel þekkt er að einstakl ingar sem glíma við offitu einangrist félagslega, upplifi vanmeta kennd og verði fyrir fordómum (Björn G. Leifs son, Hjörtur Gíslason, Ludvig Guð munds son, Svava Engilberts­ dóttir og Halldór R. Lárusson, 2005). Frá haustinu 2005 hefur verið boðið upp á endurhæfingu á Kristnesspítala fyrir fólk sem á við offituvanda að stríða. Lengri hefð er fyrir þjónustu við þennan hóp á Reykjalundi og var horft til starfseminnar þar þegar verið var að skipu leggja form og innihald með ferð­ arinnar á Kristnesi. Áður en einstaklingur byrjar í með­ ferðinni er hann boðaður í viðtal og mat til iðjuþjálfa, læknis og sjúkra þjálfara. Um hópmeðferð er að ræða og er miðað við að það séu 7­8 einstakl ingar í hverj­ um hópi, bæði konur og karlar. Vegna þess að mun fleiri konum er vísað í meðferðina hafa þó stundum verið hóp­ ar með konum eingöngu. Þeir einstaklingar sem búa á Akureyri og þar í kring koma á Kristnes sem dag­ deildarsjúklingar, þ.e. mæta að morgni til og fara heim að degi lokn um. Þeir sem búa lengra í burtu eru aftur á móti inniliggjandi eða er útveg að húsnæði á Kristnesi. Ástæða þessa fyrirkomulags er sú að fólk lærir að yfirfæra það sem það tileinkar sér á Kristnesi jafnóðum yfir í sitt daglega líf. Uppbygging meðferðarinnar er þann­ ig að hópurinn kemur fyrst alla virka daga í fimm vikur. Að mánuði liðnum frá útskrift er hópurinn boð aður í stutta endurkomu, þ.e. á fund þar sem farið er yfir stöðu mála, veittur stuðningur og hvatning. Um tveimur mánuðum síðar er svo endurkoma en þá kemur hópurinn og er í fimm daga. Endurkoman er með svipuðu sniði og vikurnar fimm í byrjun. Í framhaldi af þessu er svo hópurinn boðaður í stutta endurkomu á þriggja mánaða fresti í þrjú ár. Fræðsla er stór þáttur í meðferðinni og koma ýmsir aðilar að henni. Iðjuþjálfi fjallar um ýmislegt sem lýtur að lífs­ stílsbreytingum eins og jafnvægi í dag­ legu lífi, streitu, tímastjórnun og slökun. Sjúkraþjálfari sér um fræðslu um hreyf­ ingu, líkamsvitund, líkams beitingu og skipulag þjálfunar. Læknir veitir fræðslu um áhættuþætti ofþyngdar/offitu, hlut­ verk líkamsfitu, fjallar um svefn og svefnleysi og ræðir um með ferðar mögu­ leika. Fræðsla um mat, matar æði og næringu er mest í höndum matartæknis en næringarráðgjafi hittir hópinn einu sinni og veitir fræðslu. Sálfræðingur hittir hópinn tvisvar sinn um og hjúkrun­ arfræðingur veitir fræðslu um umhirðu húðarinnar og þvag leka. Fjölbreytt hreyfing skipar stóran sess. Um er að ræða þjálfun á þrekhjólum, gönguferðir, vatnsleikfimi og styrktar­ þjálfun sem fer fram bæði á Kristnesi og á líkamsræktarstöðvum á Akureyri. Einnig er farið í matvöruverslanir og er tilgangur þeirra ferða m.a. sá að skjól­ stæðingar æfi sig í að lesa innihaldslýsingar Meðferð vegna offitu á endurhæfingardeild Kristnesspítala Mánudagur ri judagur Mi vikudagur Fimmtudagur Föstudagur 08:40-09:00 Her aleikfimi 09:00-09:30 09:30-10:00 Félagsfærni 10:00-10:30 Tímastjórnun 10:30-11:00 Hjóla jálfun Hjóla jálfun Göngufer Markmi sfundur 11:00-11:30 Slökun Slökun Slökun 11:30-12:00 Hjóla jálfun 12:00-12:30 12:30-13:00 Matur/ Matse ill fyrir Kristnes Bú arfer Matur/ Handverk/vax og hiti Vigtun Matur/ Handverk/vax og hiti Styrktar jálfun 13:00-13:30 Göngufer Göngufer 13:30-14:00 jálfun á Akureyri Vatnsleikfimi 14:00-14:30 Fræ sla-matartæknir Kaffi Hreyfing og áhættu ættir 14:30-15:00 Kaffi 14:15 Hlutverk líkamsfitu 15:00-15:30 Vatnsleikfimi Kaffi ■ Petrea Guðný Sigurðardóttir Iðjuþjálfi á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.