Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.03.2005, Blaðsíða 20
20 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005 SKÓLAHEIMSÓKN Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafells- sýslu er á Höfn í Hornafirði. Þar stunda 250 manns nám, sumir í fullu námi en mjög margir í minna, allt niður í einn fjarnámsáfanga. Skólinn hefur alls 110 nemenda ígildi. Skólameistari er Eyjólfur Guðmundsson en hann á ættir að rekja vestur á Flateyri. Skólasamfélagið á Austurlandi öllu er víðáttumikið og samgöngur víða erfiðar en skólarnir litlir. Til að koma á móts við vandamál sem það hefur í för með sér hefur verið komið upp öflugu samstarfi milli Framhalds- skólans í Austur-Skaftafellssýslu, Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað og Menntaskólans á Egilsstöðum. Tæknin er í lykilhlut- verki og fjarfundabúnaður mikið notaður auk netsins. FAS býður upp á almennt bók- nám til stúdentsprófs á málabraut, náttúrufræðibraut og félagsfræði- braut auk náms á almennri náms- braut. Í skólanum var einnig til skamms tíma sjávarútvegsbraut en menntamálaráðuneytið lagði hana niður í haust þar sem hún gekk ekki nógu vel á landsvísu. Eftir stendur 30 tonna skipstjórnarnám (réttindanám) sem er 5 einingar og hægt að taka í fjar- námi. Um 40 nemendur víðs vegar að, þar af tveir á Spáni, eru í þessu námi. Að því loknu geta nemendur tekið Slysavarna- skóla sjómanna í Sæbjörgu sem gefur eina einingu og þá eru 30 tonna réttindin í höfn. FAS býður upp á fullkomna aðstöðu til fjarnáms og aðstoðar nemendur við það eftir föngum. Spennandi nýjung í starfi skólans er frumkvöðlanám sem var fyrst í boði sl. vor. Komið á móts við þá sem vilja læra Samstarf austfirsku framhaldsskólanna felst m.a. í sameiginlegu námsframboði og námsmati. Kennararnir, sem oft eru einir um grein, styðja hver annan með samvinnu og samráði og skólameistar- arnir og kennarar hittast á hverju ári til að skipuleggja starfið. Eyjólfur sagði að á fámennum stöðum væri nauðsynlegt að beygja og sveigja skólastarfið að þeim aðstæðum sem ríktu og gera það besta úr. Reynt væri að breikka grundvöll skólans svo að hann hefði víðtækara hlutverk en framhaldsskólar víða annars staðar. „Við reynum að ná sem best utan um allt sem heitir nám að loknum grunnskóla. Það er skylda okkar að koma á móts við alla hér sem vilja læra. Þörfin og eftirspurnin ráða því hvað er í boði hverju sinni. Við bjóðum líka upp á margvíslegt námskeiðahald, en þá virkjum við fólkið í sveitarfélaginu eða köllum til okkar gesti,“ sagði Eyjólfur. Nemendur vinna undir hundrað tíma reglu Í kjörorðum skólans felst að skóli sé þjón- ustustofnun og námið hvort tveggja í senn vinna og félagslegt ferli. Gengið er út frá því að nemendur séu sjálfir ábyrgir fyrir námi sínu og sinni því eins og hverju öðru starfi. Gert er ráð fyrir því að hver þriggja eininga áfangi sé u.þ.b. eitt hundrað klukkustunda samfelld vinna nemandans, hvort sem hann fær sex, fjórar eða færri kennslustundir á viku í viðkomandi fagi. Hugtökin heimavinna og eyður í töflu eru einfaldlega úrelt. Hver nemandi býr til vinnuáætlun, í samvinnu við kennara, sem felur í sér kennslustundir áfangans og aðra vinnu sem tengist honum. Nemendur geta búist við því að fá ekki kenndar fullar sex kennslustundir í þriggja eininga áfanga. Kennarinn hugsar þó skipulag kennsl- unnar á þann hátt. Allir áfangar eru settir upp í námsumhverfinu WebCT. Nemendur leggja fram þennan fjölda vinnustunda hver sem fjöldi kenndra stunda er. Kenn- arar aðstoða nemendur við að mynda sam- starfshópa en það styrkir þá við vinnuna. Sérstakur samningur gerður við kennara Aðspurður sagði Eyjólfur að sérstakur samningur um fjarkennslu hefði verið gerður við kennara í framhaldsskólum á Austurlandi. „Þar var gengið út frá því að kennsla við fjaráfanga yrði almennt ekki meiri en við áfanga kenndan í stofu. Vinna við hvern þriggja eininga áfanga nemur samkvæmt því allt að 200 klukku- stundum en kennari og skólameistari geta samið um fleiri tíma í sérstökum tilfellum. Greiddar eru tíu klst. fyrir hvern áfanga sem settur er upp í WebCT í fyrsta sinn. Samningurinn fjallar auk þess um viðmið- unarfjölda nemenda í hverjum áfanga, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu mætir fólksfæð með fjarnámi og dreifmennt Nýheimar hýsa bókasafn, upplýsinga- miðstöð, frumkvöðlasetur og háskóla- setur auk framhaldsskólans. Að sjá tækifærin í umhverf i sínu

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.