Skólavarðan - 01.04.2005, Blaðsíða 4

Skólavarðan - 01.04.2005, Blaðsíða 4
Er skólinn á ábyrgð okkar allra? 5 Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri er gestapenni. Hér birtist grein byggð á erindi sem hann hélt við setningu 3. þings KÍ. Sendur í Kennaraskólann í geymslu 8 Viðtal við Eirík Jónsson formann Kennarasambands Íslands. Eiríkur fylgir hér eftir ýmsum mikilvægum málum sem tekin voru til umfjöllunar á þriðja þingi KÍ. Við fáum auk þess að kynnast minna þekktum hliðum á Eiríki. Góður grunnur að frekari kjarabótum 15 Viðtal við Finnboga Sigurðsson fráfarandi formann Félags grunnskólakennara. Einelti í starfsumhverfi kennara 17 Hólmfríður K. Gunnarsdóttir og Guðbjörg L. Rafnsdóttir, sérfræðingar á rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins varpa ljósi á hinar dökku hliðar mannlegra samskipta. Er einhver lagður í einelti í þínum skóla? Iðkun lista er undirstaða allrar menntunar 18 Yfirskrift þessara greinar er tilvísun í Plató en Leikskólinn Fagrabrekka í Kópavogi starfar í þessum anda. Skólavarðan kynnti sér líflegt og fallegt starf þar og fékk að kynnast því hvernig listir eru í hávegum hafðar. Lesa handrit og skrifa á bókfell með fjöðurstaf og jurtableki 20 Skólavarðan fór í heimsókn í til Svanhildar Gunnarsdóttur safnkennara á handritasýningu Stofnunar Árna Magnússonar. Þar tekur hún á móti skólafólki á öllum skólastigum og leiðir það gegnum aldirnar með fjöðurstaf í hönd. Viðhorf til stærðfræðináms 22 Guðbjörg Pálsdóttir aðjúnkt í KHÍ fjallar um niðurstöður rannsóknar sinnar á viðhorfi unglingsstúlkna til stærðfræðináms. Tónlistarmenntun í sænskum tónlistarskólum 24 Haukur Hannesson hefur víðtæka reynslu sem tónlistarskólakennari og skólastjóri. Hann stjórnar nú tónlistarskóla í Svíþjóð og gefur okkur nasasjón af því hvernig tónlistarkennsla hefur þróast þar í landi. Viljum við fara sömu leið og Svíar? Formannspistill 3 Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands skrifar. Smiðshöggið 30 Samræmdu prófin ganga þvert á framtíðarsýn fræðsluyfirvalda. Jóhannes Skúlason kennari í Seljaskóla talar tæpitungulaust um samræmdu prófin. Hann flutti tillögu um að þau yrðu lögð af í núverandi mynd á aðalfundi FG í vetur. Að auki Fréttir af þriðja þingi Kennarasambands Íslands og fleiru sem kennurum og öðrum sem áhuga hafa á skólamálaumræðu kemur við. Forsíðan. Forsíðumyndina tók Jón Svavarsson í miðaldakennslustofu Svanhildar Gunnarsdóttur í Þjóðmenningarhúsinu þegar hún tók á mót nokkrum góðum gestum. Ritstjóri: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is Hönnun: Zetor ehf. Ljósmyndun: Jón Svavarsson / motiv-mynd, nema annað sé tekið fram. Teikningar: Ingi Jensson Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959 Prentun: Svansprent Forsíðumynd: Jón Svavarsson Skólavarðan, s. 595 1118 (Guðlaug) og 595 1119 (Helgi). Útgáfumál Kennarasambandsins voru rædd á nýliðnu þingi þess. Eins og oft áður var rökrætt um hvernig best væri staðið að útgáfumálum KÍ. Af umræðunni er ljóst að kennarar eru marglitur hópur með ólíkar þarfir og skoðanir. Sumir eru tölvuvæddari en aðrir og segjast ekki vilja sjá prentmiðil eins og Skólavörðuna, telja nóg að gefa úr fréttir á vef. Aðrir vilja fá sitt blað í hendur, sem þeir lesa uppi í sófa eftir að hafa hreiðrað um sig með kaffibolla. Úr einum skólanum heyrðist að blaðið lægi í hrúgum inni á kennarastofu þar til því yrði hent á meðan rödd úr sama skóla sagði að legið væri yfir Skólavörðunni á kennarastofunni í öllum pásum. Baldur Sigurðsson lektor í KHÍ lagði inn þessi orð um útgáfu Skólavörðunnar: Kennarinn er mikið einn í starfi sínu og kennarahópar í stökum skólum eru iðulega „einir“ að glíma við vandamál sín. Mikilvægt er að kennarar finni að þeir séu ekki einir í starfi sínu, heldur séu hluti af stóru og öflugu samfélagi þar sem tekist er af krafti á við öll viðfangsefni skólastarfs. Nauðsynlegt er að kennarar hafi lifandi vettvang þar sem fjallað er um öll þessi viðfangsefni, þar sem unnt er að sækja hugmyndir og fá upplýsingar og fróðleik. Til þess að slíkur vettvangur þjóni hlutverki sínu þarf að blanda saman léttlesnu efni og alvarlegra efni, viðtölum, reynslu- sögum, faglegum og fræðilegum greinum, jafnt um almenn efni sem snerta alla kennara og sérhæfðari viðfangsefni sem tengjast kennslu einstakra námsgreina. Ekki má heldur gleyma umræðunni, deilumálunum. Á slíkum vettvangi þurfa að vera átök, því átök eru merki um líf, skoðanir - og ekkert er verra en skoðanaleysið, því það er ávísun á stöðnun.“ Á þingi KÍ komu ekki fram róttækar breytingatillögur um útgáfuna og því verður haldið áfram á svipaðri braut enn um sinn. Kennarar verða að sækja sér hugmyndir, fá upplýsingar og fræðast um það sem er efst á baugi í skólum landsins. Að mínu mati kemur þess vegna ekki annað til greina en að gefa út vandað blað sem er slíkur vettvangur. En málgagnið þeirra verður að standa undir nafni og þjóna tilgangi sínum. Félagsmenn eiga að halda okkur, sem stöndum að útgáfunni, við efnið og allar góðar ábendingar eru vel þegnar. Það er einlæg von mín að Skólavarðan uppfylli þær kröfur sem félagsmenn gera til hennar og að fólk gefi sér þessa stund uppi í sófa til að lesa um skólamál. Hvernig væri að benda næsta manni á grípa líka blaðið sitt hafi hann gleymt því? Bestu kveðjur, Guðlaug 4 LEIÐARIEFNISYFIRLIT FASTIR LIÐIR SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 5. ÁRG. 2005 GREINAR Að sækja sér hugmyndir, upplýsingar og fróðleik

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.