Skólavarðan


Skólavarðan - 01.11.2001, Blaðsíða 30

Skólavarðan - 01.11.2001, Blaðsíða 30
Las Mimosas, Orihuela Mansana 13, íbúð nr. 6a Íbúðin er á neðri hæð í raðhúsi, u.þ.b. 50 fm, fyrir fjóra gesti í rúmum og einn í svefnsófa. Í íbúðinni er baðherbergi, tvö svefnherbergi, í öðru er hjónarúm og tvö rúm í hinu, stofa með svefnsófa og opið eldhús. Opið þvottahús er á bak við hús- ið. Garður og u.þ.b. 10 fm verönd er framan við húsið. Inngangur snýr að sameiginlegum garði. Í húsinu er borðbúnaður fyrir sex gesti, lín á rúm, ein loftvifta, sjónvarp, útvarp, geislaspilari, kolagrill og sólhús- gögn. Eingöngu aðgangur að opinberri sund- laug þar sem gestir geta leigt sólbekki. Verð 29.000. Leigutími: 7/6 - 13/9. Las Mimosas, Orihuela Mansana 12, hús nr. 68 - Casa Nova - Casa Nova er u.þ.b. 64 fm einbýlishús fyrir sex gesti. Þar eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofa, eldhús og þvottahús. Í öðru svefnherberginu er hjónarúm en í hinu er koja og svefnsófi fyrir tvo. Við húsið er 44 fm verönd með sólhúsgögnum. Í húsinu er borðbúnaður fyrir tólf gesti, lín á rúm, tvær loftviftur og tvær borðviftur, sjónvarp, myndbandstæki, út- varp með geislaspilara og gasgrill. Eingöngu aðgangur að opinberri sund- laug þar sem gestir geta leigt sólbekki. Verð 34.000. Leigutími: 7/6 - 13/9. Las Mimosas, Orihuela Mansana 12, hús nr. 47 - Vöggustofan - Þetta er u.þ.b. 90 fm raðhús fyrir fjóra gesti í rúmum og tvo í svefnsófum. Vöggustofan er á tveim hæðum og skipt- ist í tvær litlar íbúðir sem leigjast sem ein heild. Á neðri hæð er rúmgott anddyri (fyrir báðar íbúðirnar) með svefnsófa, stofa með tveim sófum, baðherbergi með sturtu, opið eldhús og svefnherbergi með hjónarúmi. Á efri hæð er svefnherbergi með hjónarúmi, eldhús með gashellum og baðherbergi með sturtu. Þar eru stórar svalir með sólhúsgögnum, bæði bekkj- um og stólum, og má nýta þær sem stofu eða samnýta stofuna á neðri hæð- inni. Í húsinu er borðbúnaður fyrir tólf gesti, lín á rúm, þrjár loftviftur og ein borðvifta, sjónvarp, útvarp með geislaspilara og kolagrill. Eingöngu aðgangur að opinberri sund- laug þar sem gestir geta leigt sólbekki. Verð 34.000. Leigutími: 7/6 - 13/9. Los Pinos, Orihuela, hús nr. 101 Íbúðin er á tveim hæðum, u.þ.b. 97 fm, fyrir sex gesti í rúmum og einn í svefn- sófa. Íbúðasamstæðan er nýbyggð og verður tekin í notkun í mars 2002. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi en tvö rúm í hinu, og baðher- bergi með baðkari. Þar eru einnig sólar- svalir með húsgögnum. Á neðri hæð er stofa, eldhús og annað baðherbergi með sturtu. Góð verönd með sólhúsgögnum er við húsið. Í húsinu er borðbúnaður fyrir átta gesti, örbylgjuofn, lín á rúm, loft- og borðviftur, sjónvarp, útvarp og kolagrill. Aðgangur er að sameiginlegri sund- laug. Verð 34.000. Leigutími: 7/6 - 13/9. Los Altos, Torrevieja Manzana 13, hús nr. 15 Húsið er u.þ.b. 50 fm, fyrir fjóra gesti . Þar eru tvö svefnherbergi með rúmum, baðherbergi með baðkari og sturtu, stofa og eldhúskrókur. Uppi á þaki eru stórar svalir með húsgögnum. Góð hellulögð verönd með sólhúsgögnum er handan við húsið. Þvottaaðstaða er utan dyra.. Í húsinu er borðbúnaður fyrir sex gesti, örbylgjuofn, lín á rúm, loft- og borðviftur, sjónvarp, útvarp og ferða gasgrill. Aðgangur er að tveim sameiginlegum sundlaugum. Verð 34.000. Leigutími: 7/6 til 13/9. Los Altos, Torrevieja Miramar, hús nr. 128 - Lilly - Húsið er u.þ.b. 50 fm, fyrir fjóra gesti í rúmum og einn í svefnsófa í stofu. Þar eru tvö svefnherbergi með rúmum, bað- herbergi með baðkari og sturtu, stofa með svefnsófa og eldhúskrókur. Uppi á þaki eru stórar svalir með húsgögnum. Góð hellulögð u.þ.b. 50 fm verönd með sólhúsgögnum er í kringum húsið. Þvottavél er í eldhúsinu. Í húsinu er borðbúnaður fyrir sex gesti, lín á rúm, þrjár loftviftur og tvær borðviftur, sjónvarp, útvarp, geislaspilari og kolagrill. Aðgangur er að tveim sameiginlegum sundlaugum. Verð 34.000. Leigutími: 7/6 til 13/9. Í só l ina 33

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.