Breiðfirðingur - 01.04.1987, Blaðsíða 95
BREIÐFIRÐINGUR
93
Guðmundur Guðlaugsson
Bcggja megin Atlantshafs
Fyrri hluti
„Sé eyjunni borin sú fjöður, sem flaug,
skal hún fljúga endur til móðurstranda. “
Einar Ben.
Á Hringbraut 47 í Reykjavík dvelur Breiðfirðingur að nafni Guð-
mundur Guðlaugsson. Hann er 86 ára að aldri, fæddur 24. okt. árið
1900.
Guðmundur hefur skráð æviminningar sínar og hefur frá mörgu
að segja, enda dvalið nær helming ævinnar fjarri ættjörðinni, þar af
40 ár í Ameríku.
Hann man fyrst eftir sér á bænum Kletti í Geiradal vestur. Hann
man vel þær vetrarstundir, þótt ungur væri, þegar móðir hans kall-
aði saman barnahópinn sinn í rökkrinu og lét börnin syngja.
Honum segist svo frá að hún hafi lagt mikla áherslu á góðan, skýran
framburð, en sjálf hafði hún næmt tóneyra.
Lengi býr að fyrstu gerð. - Það vill svo til að e.t.v. hafa þessar
rökkursöngvastundir leitt til þess að eitt barnið úr hópnum, þ.e.
höfundur þessara æviþátta - átti eftir að verða virtur og þekktur
einsöngvari í annarri heimsálfu. - Eftir að hafa hlustað á rödd hans
af gamalli upptöku, sannfærðist undirritaður um það, að tenórrödd
hans á yngri árum hefur svo sannarlega verið annað og meira en
stofurödd. - Ekki er undirrituðum kunnugt að nokkur annar Breið-
firðingur hafi náð lengra á sviði söngraddar vestanhafs en Guð-
mundur.
Sá íslendingur, sem að aldri fylgir þessari öld, hefur fremur lifað
byltingu en breytingu, er á sér enga hliðstæðu í ellefu hundruð ára
sögu þjóðarinnar. Svo kann að fara að frásagnir af þessu tímaskeiði
sögu okkar verði álitnir dýrmætari þá stundir líða og það ærið dýr-
mætari en talið er í dag. -
Guðmundur horfir af tindum hárrar ævi yfir allt þetta svið bylt-
ingarinnar. Hann er einn af þeim fáu Iöndum okkar, er eftir langa