Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 3
JHek ar sturinn. Fimmtudagur 20. október 1983 3 Séra Gunnar Kristjánsson: „Friðar- umræðan hérlendis hefur mótast af vanþekkingu og lent inni i lágkúru- legri flokkaumræðu". Sigríður Ingvarsdóttir: „Líf og land vill kanna hvað hinir ýmsu friðar- hópar eiga sameiginlegt". Friðarráðstefna í vitnaleiðsluformi Samtökin Líf og land efna til mikillar friðarráðstefnu n.k. laug- ardag 22. okt. á Hótel Borg undir heitinu „ísland og friðarumræð- an.“ Af þessu tilefni sneri HP sér til tveggja stjórnarmeðlima samtak- anna, séra Gunnars Kristjánssonar og Sigríðar Ingvarsdóttur, og spurði þau nánar um ráðstefnuna. — Líf og land er hlutlaus aðili sem vill freista þess að kanna hvað ýmsir friðarhópar eiga sameigin- legt, og jafnframt að vekja fólk til umhugsunar um afleiðingar vax- andi vígbúnaðarkapphlaups og kjarnorkustríðs, segir Sigríður. — Tilgangurinn er ennfremur að kryfja friðarumræðuna í heiminum á undanförnum árum og ræða frið- armál á málefnalegum grundvelli en forðast umræðuna eins og hún hefur verið hérlendis; að okkar mati hefur hún mótast af vanþekk- ingu og lent inni í lágkúrulegri flokkaumræðu. Fyrir hádegi verða haldnir fyrir- lestrar og erindi fræðilegs eðlis um friðar- og afvopnunarmál, svo og um afleiðingar kjarnorkustyrjalda. Eftir hádegi sitja ýmis friðarsam- tök og fulltrúar stjórnmálaflokk- anna fyrir svörum í svonefndu „hearing'-formi eða „vitnaleiðslu- formi“ þar sem hópur valinkunnra manna mun spyrja ofangreinda að- ila spjörunum úr. Þetta form hefur ekki verið notað áður hérlendis, segir Gunnar. — Þá má ekki gleyma, segir Sig- ríður, — að Geir Hallgrímsson ut- anríkisráðherra mun halda stutt er- indi og sitja fyrir svörum spyrla. — Og fundargestum gefst einnig tækifæri til að spyrja viðkomandi um einstök atriði eða málaflokka er tengjast friðarumræðunni, segir Gunnar. — Ráðstefnan verður opnuð með nýju verki eftir Atla Heimi Sveinsson, sem nefnist „Dona Nobis Pacem“ eða „Gefið Oss Frið“ — sérstætt verk fyrir fjórar sópranraddir og nokkur hljóðfæri, segir Sigríður. — Líf og land hafa áður gefið út erindi sem haldin hafa verið á ráð- stefnum samtakanna og ætlunin er að gera slíkt hið sama nú, segir Gunnar. — En aðalmarkmið sam- takanna með þessari ráðstefnu er að skapa umræðuvettvang fyrir brýnt mál í samtímanum. Gallerí og vinnustofa Guðbergur Auðunsson hefur opnað gallerí að Þingholtsstræti 23. Fyrsta sýningin er á eigin verk- um; 27 collage-myndir, unnar úr ýmsum plakatsnifsum sem lista- maðurinn hefur tínt upp á leið sinni um stórborgir heimsins. Þá eru einnig þrír tréskúlptúrar á sýning- unni. Guðbergur sagði við HP að vinnustofa hans væri einnig til húsa í þessu húsnæði, þannig að stutt væri í sýningarsalinn. Sýningin var opnuð s.l. laugardag og stendur til 30. október. Hún er opin virka daga kl. 15—18 og 14—18 um helgar. Guðbergur á vinnustofu/galleríi sínu. Smartmynd Heldurðu að þú hafir sjéns í formannsembættið? Sigrún Þorsteinsdóttir „Það hafa allir sjéns. Mér finnst höfum verið að fást við það að að við íslendingar eigum að nota vinna kraft úr humarafgöngum, þau tækifæri og það frelsi sem við svona eins konar fiskkraft í súpur höfum og láta til okkar taka, líka og aðra rétti. þar sem um er að ræða embætti Einnighefurveriðunniðmeltu- flokksformanna eða varafor- þykkni sem blandað er í gras- manna“. \ köggla og stóreykur næringargildi — Hvers vegna ákvaðstu að kögglanna. Ef þetta heppnast fara í framboð? verður hægt að draga stórlega úr „Vegna þess að mér finnst að innflutningi fóðurbætis og spara rödd hins almenna flokksfélga margar milljónir. Félaginu er eigi að heyrast. Ég vil taka það ætlað að tengja atvinnulíf og skýrt fram að ég er ekki að bjóða vísindi og vinna úr því efni sem mig fram vegna óánægju með hingað til hefur verið hent sem flokksforystu Sjálfstæðisflokks- úrgangi". ins, heldur vegna þess að mér — Hvað um önnur áhugamál? finnst vanta meiri breidd". „Ég er félagi í Samhygð, og — Er það ekki vegna þess að þú einnig hef ég fengist við leiklist og viljir auka hlut kvenna í flokks- sungiðí kórum, auk þess auðvitað forystunni? að vera húsmóðir og móðir“. „Ég vil að konur, og reyndar allir —Rekast hugmyndir Sam- landsmenn, komi sínum sjónar- hygðar og Sjálfstæðisflokksins miðum á framfæri og noti þau ekkert á? tækifæri sem gefast". „Nei, alls ekki. Samhygð vinnur — Þarftu ekki að undirbúa þig að frelsi og hamingju einstakl- fyrir flokksþingið og kynna þig? ingsins og það gerir Sjálfstæðis- „Ætli ég verði ekki að sjá til þess flokkurinn líka. Samhygð er ekki að koma mínum skoðunum á' neitt venjulegt félag, það er lífs- framfæri". máti, sem byggir á reglunni: — Nú ert þú varabæjarfulltrúi komdu fram við aðra eins og þú og hefur unnið að bæjarmálum vilt að aðrir komi fram við þig“. en hvað annað hefur þú fengist — Hvernig hafa viðbrögðin við? verið við framboði þínu? „Ég hef unnið að atvinnumál- „Yfirleitt mjög góð. Það hafa um. Ég er formaður félags sem margir haft samband við mig og heitir SAR (Sjávarafurðarann- tekið undir að ekki veiti af meiri sóknir), en það félag vinnur að breidd í forystuna, nýtt framboð frekari nýtingu sjávarafurða. Við hleypir líka fjöri í kosningarnar“. Sigrún Þorsteinsdóttir er varabæjarfulltrúi Sjálfstæöis- flokksins í Vestmannaeyjum. Hún er gift og á 3 börn. Hún hefur nú ákveðið að bjóða sig fram í embætti formanns eða varaformanns Sjálfstæðisflokksins á flokksþinginu í nóvember.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.