Vísir - 04.07.1915, Blaðsíða 4

Vísir - 04.07.1915, Blaðsíða 4
V i b í H Afmæli á morgun. Arnbj. Gunnlaugsson, sjóm. Þórunn Friðriksdótfir, húsfrú. Sesselja Hansen, ungfr. L'lja Ólafsdótt'r, húsfr. Margrét Egilsdóttir, húsfrú. Aldís Bjarnadóttir, húsfrú. Ingibjörg Snæbjörnsdóttir, húsfr. Björn Rósenkranz, kaupm. Afmæiskort fást hjá Helga Árnasyni, Safna- húsinu. Ráðherra fer í dag til Hafnarfjarðar á þing- málafund, sem þar verður haldinn kl. 6 síðd. Endurskoðandi ísi.banka. Á aðalfundi íslandsbanka þ. 1. þ. m. var Kristján Jónsson háyfir- dómari, af fulltrúahálfu kjörinn end- urskoðandi bankans næsta ár. Gísli Jónsson, málari kom til bæjarins í gær. Hefir dvalið um tíma við Þing- vallavatn og máiað þaðan nokkrar myndir, einkum af landslagi kring- um Nesja, sem er mjög einkenni- legt, frá Þingvöllum, Almannagjá og víðar. Jarðarför Jóns Jenssonar fór fram í gær, og var allfjölmen. Húskveðjuna hélt sr. Jón prófessor Helgason, en líkræða var engin haldin, samkvæmt fyrirmælum hins látna, þó talaði dómkirkjupresturinn íkirkjunni. Yfir- dómslögmenn báru kistuna í kirkju, en dómarar út. Nýi fáninn blakti á stöng Alþingishússins í gær, í hálfri stöng, í tilefni afjarð- arför Jóns Jenssonar. Þingmálafundur verður haldinn hér í bænum kl. 3 í dag, í Barnaskólaportinu. Knattspyrna. Valur og Fram keppa í dag á íþróttavellinum, kl. 6l/3 síðd. Ingólfur fer til Borgarness á morgun. Flóra kom að vestan í morgun, fer í kvöld eða á morgun til Norðfjarð- ar og Seyðisfjarðar og þaðan til Noregs. Sterling fór frá Khöfn í fyrramorgun. Mars fer til útlanda í dag. Are, flutningsskip Elíasar Stefánssonar, kom til Fleetwöod síðastl. fimtud. Goðafossi var tekið á Norðurlandi með kostum og kynjum. Öli helstu krafta- skáld fjórðungsins höfðu ort drápur um skipið. ^a&.du atmenmtv^s Hafís og skipagöngur. Það er Ieiöinlegt, að blöðin skuli nærri daglega flytja fregnir um haf- ísinn og skipagöngur kringum land- ið, svo ógreinilegar og sumar svo v i 11 a n d i, að fólk á mjög erfitt með að átta sig á, hvað rélt sé í þessu efni. T. d. segir Morgun- blaðið fyrir nokkrum dögum, að »Vestac, sem héðan fór síðastliðinn sunnudag vestur og norður um land, hafi snúið aftur á Húnaflóa og sé væntanleg h i n g a ð »á morgun*. Þetta hefir reynst rangt að því leyti, að »Vesta« hefir ekki komið hingað aftur. Vísir segir í dag, að »Vesta« hafi ekki snúið aftur, en sé að reyna að komast gegnum ísinn fyrir Norð- urlandi. Svo kemur Ingólfur með þá fregn, að »Vesta« hafi snúiö aft- ur og farið suður um land til Seyð- isfjarðar og fari þ a ð a n t i I ú t - landa. Hvað er nú réttafþessu? Það er alls ekki þýðingarlaust, að fá réttar og ábyggilegar upplýsingar um hafísinn og skipa- f göngurnar á þessum tíma, ) þegar fjöldi verkafólks er í þann j veginn að ákvarða sig um mikils- ; vert atriöi í sumar-atvinnu sinni við sildveiðar fyrir Norðurlandi. ViII ekki Vísir gera svo vel og greiða úr þessari flækju ? Það er þó ekki stór-pólitískt moldviðri! Rvík 3. júlí 1915. S. Þ. Aths. í fyrra kvöld hringdi eg til afgreiðslu Sam. gufuskipafé- lagsins til þess að spyrjast fyrir um »Vestu«. Eg hafði heyrt, að hún hefði snúiö við frá ísafirði og einnig að hún heföi ekki gert það. — Upp á beina fyrirspurn m'na um þetta, svaraði afgreiðslan mér því, að »Vesta« hefði ekKi snúið aftur frá ísafirði og mundi enn vera að reyna að komast norður fyrir. — Nú er sannfrétt að »Vesta« var á Seyðisfirði í gærmorgun og talið líklegast að hún mundi halda áfram ferðinni norður um. — Hún hefir því áreiðanlega snúið við frá ísa- firöi. Ritstj. Kýmni. Móðirin: Voðalega var maöur- inn þinn fullur í gær. Sjái eg hann nokkurn tima framar í slíku ástandi, stíg eg ekki framar fæti mínum inn fyrir dyr hjá ykkur. Dóttirin: f öllum bænum, það máttu ekki segja við hann, því þá rennur ekki af honum einn einasta dag. Prófessorinn: Ungi maður, segið mér, ef faðir yðar fær 2 þús. kr. : til láns og lofar að borga þær með 400 kr. afborgun á ári, hvað skuld- > ar hann þá eftir 4 ár? Stúdentinn: 2 þús. krónur. Próf.: Góði maður, þekkið þér ekki einföldustu reikningsaðferðir? Stúd.: Ekki veit eg það, en eg þekki föður minn. það borgar sig áreiðanlega. Maðurinn: Þú getur ekki ætlast ' til þess, að eg kaupi handa þér l 400-króna demantshrine. — Það ; væri. hreint ófyrirgefanleg eyðslu- I semi. Konan: En elskan mín góða, þú ; gætir ekki að því, hvað það myndi 1 spara mér mikið af vettlingum. I Fullorðna konan (gamaldagsskoð- j un): Heyrðu, góða mín, ertu að forvitnast í 3. bindið, til að sjá, hvort þau giftast? Unga stúlkan (nútíðar andi): Blessuð vertu, þau giftust íl.bind- inu. Eg var bara að gá að, hvort maðurinn hennar hefði virkilega sjálfur gefið henni eitrið. Rababari fœst á afgreiðslu S a n í t a s. Til Þingvalla geta nokkrir menn fengið far frá Bifreiððarstöðinni kl. 5 í dag. Til baka frá Þingvöllum á m o r g u n. V I N N A § Sendisveinar fást ávalt í Söluturnmum. Opinn frá 8—11 Sími 444. 2 s t ú 1 k u r, vanar línubeitingu geta strax fengið atvinnu í Sand- gerði. Gott kaup. Semjið fljótt við Gísla Hjálmarsson, Laugav. 17. Morgunstúlka óskast á fá- mennt heimili í Austurbænum um miðjan þennan mánuð. Afgr. v á. Kaupamaður og kaupa- kona óskast. UppJ. á Laugav. 70. S t ú 1 k a óskast í vist nú þegar. Hátt kaup í boði. Uppl. í Bár- unni. S t ú I k a óskar ^eftir að gera hreint herbergi fyrir þingmann. Uppl. í Vonarstræti 2. 2 d u g 1 e g a sjómenn vantar á mótorbát frá Reykjavík. Semjið við Guðm. Guðmundsson Miðstræti 4 (niðri). Til viðtals frá kl. 3—6 e. m. Kaupakona óskast á gott heimili. Semjið við Halldór Kjart- ansson Lgv. 27 B. O r g e I til Ieigu. Afgr. v. á. KAUPSKAPU R Morgunkjólar fást altaf ódýrastir í Grjótagötu 14, niðri. H æ s t verö á ull og prjónatusk- um er í »HIíf«. Hringiö upp síma 503. Bókabúðin á Laugavegi 22 verslar með brúkaðar bækur inn- lendar og útlendar. Þ r í r tófu-yrlingar, stórir og litgóðir, eru til sölu. Afgr. v. á. N ý I e g reiðföt til sölu á Grett- isgötu 10. B a r n a v a g n er til sölu á Grettisgötu 32 B. Hj . H USNÆÐI 1 —2 h e r b. íbúð fæst strax með hálfvirði til 1. okt., á besta stað. Afgr. v. á. Skemtileg herbergi á a- gætum stað í bænum, til leigu frá 1. júlí til 1. okt. Afgr. v. á. T v ö samliggjandi herbergi mót suðri eru til leigu nú þegar á Skóla- vörðustíg 8. S t o f a og svefnherbergi með á- gætum húsgögnum er til leigu í Miðbænum nú þegar fyrir reglu- saman og einhleypan mann. A. v, á. G ó ð stofa óskast til leigu neð- arlega í Austurbænum frá 1. okt. Sími 269. S t o f a til leigu með húsgögnum og sérinngangi. Uppl. Hverfisgötu 83 (aörar dyr). T v ö skemtileg herbergi með húsgögnum, á ágætum stað í bæn- um, eru til leigu nú þegar yfir sumarið eða skemri tíma, hentug fyrir þingmann. Afgr. v. á. H e r b e r g i með forstofuinn- gangi er til leigu nú þegar á Norð- urstíg 5. 2 —3 herbergi, eldhús og geymsla óskast 1. okt. Áreiðanleg borgun. Afgr. v. á. 1 herbergi með eða án hús- gagna til leigu frá 1. júlí till.okt. At'gr. v. á. || FÆÐI Fæði og gisting fæst í Lækjargötu 12 B. F æ ð i fæst í Bankastræti 14. Helga Jónsdóttir. |j^ Vátryggingar. Vátryggið tafalaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Britx hish Dominion General Insur- ance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. I tTpAÐ — FUNDIÐ jí T a p a s t hefir budda með pen- ingum í, 2. júlí. Skilist á Grettis- götu 22 B, gegn fundarlaunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.