Alþýðublað Vestmannaeyja - 01.06.1931, Blaðsíða 1

Alþýðublað Vestmannaeyja - 01.06.1931, Blaðsíða 1
Alþýðublað V estmanna fiefið út at Alpýðnflokkiiuiii. LANDSSÓKASAFN M 12 910 f> I '5 f;AND B 1. árgangar, 1. tðlublað. Vestmannaeyjum i júní 1931. Frambjóðandi Alþýðuilokksins. Þorsteinn Þ. Víglundsson. Við þær kosningar, er fram eiga að fara 12. júní n. k., hefir Alþýðusamiband Islands, eins og kunnugt er, í samráði við hina stjórnmálalegu deild sina í Vest- mannaeyjum, ákveðið að hafa í kjöri Porstein P. Víglundsson kennara. — Er hann ,{)ví feini frambjóðandinn í Vestmannaeyj- um, sem hin skipulögðu 'venk- lýðssamtök um land alt styðja til framboðs. Við þær kosningar, semTí hönd fara, verður háður harðuV bar- dagi um ítökin í löggjafarsam- komu [ijóðarinnar. Á Alpýðu- flokikurinn þar gegn einum fjand- manni að sækja, sem stefnir að honum í prem deildum, fþ. e. Ihaldsflokkurinn, Framsóknarí- haldið og „Kommúnistaflokks“- nefnan. Er vitanlegt um þá hina síðast töldu deild alþýðu- fólksfjenda, að hún starfar og stillir upp tii þings í þeim einum tilgangi að rýra fylgi Alþýðu- fiokksins og skemma samitök hinna vinnandi stétta. Annar get- ur tilgangurinn ekki verið hjá deáidtinni sem heild, ;þótt 'iiins vegar vel kunni að finnast ein- hverjar auðtrúa uppæstar sálir, er trúi því að þær séu aÖ vinna gagn, er þær framkvæma verstu bölverkin gegn frelsisbaráttu vinnandi fólks. — Annars er ó- þarfi að ræða meir um Komm- únistaflokkinn. Slikar stefnur, sem hann boðar, bera dauðann í sjálfum sér, dauða hins neikvæða starfs. íhaldsflokkamir báðir (sjálf- stæðis-framisóknin) hafa sýnt það á undanförnum árum, að í grundvallaratriðum eru þeir sam- mála. Um það þýðir ^kki að deila, því að verkin ,»tala þar skýrast mál. í vetur lagði Al- þýðuflokkurinn á þingi til, að skattur yrði afnuminn á nauð- synlegustu þurftarlaunum, en heldur tekinn af hátekjum, ,af erfðafé o. s. frv. — Bæði íhöldin drápu þær tillögur. í vetur lagði Alþýðuflokkurinn á þingi og til, að tollar yrðu stórlega Jækkaðir á brýnustu lífsnauðsynjum, kaffi, sykri, mjöli, klæðnaði o. s. frv., en iiækkaðir á gullstássd, pels- um, andlitspúðri, glysi og öðrum bölvuðum hégóma. Bæði íjjöldin í sameiningu réðust gegn þess- um tillögum og drápu þær. Þessi mál snerta hag allra í- búa þessa Jandis mjög — og bœta hag yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar. Gegn því tstendur bæði Framsókn og íhald. Þau rífast að eins um eitt: hver eigi að innheimta tollana og skatt- ana. Barátta þeirra stendur því um stöður og laun. í vetur lagði Alþýðuflokkurinn til, að laun vegavinnu- og brúa- gerðar-manna yrðu hækkuð. Bæöi ihöldin drápu það við 1. umræðu Alþýðuflokkurinn hefir barist fyrir ellitryggingum, slysatrygg- ingum, atvinnuleysistryggingum og sjúkratrygginguim Gegn þessu hafa líka bæði í- höldin barist með hnúum og hnefum — og enn má verkalýö- urinn berjast við atvinnuleysi, skort og öryggisleysi, nema hvað tekist hefir að örlitlu leyti að laga slysatryggingalögin, eftir harða baráttu. Yfirleitt fer ekki hnífurinn á milli íhaldsflokkanna beggja í öllum þeim málum, er snerta mest afkomu alþýðuheimilanna. Pau standa sameinuð í því að vernda einkahagsmuni stórburg- eisanna gegn afkomu hinna smærri: verkamanna, verka- kvenna, sjómanna, smáútvegs- bænda og yfirleitt allra þeirra, er ekki hafa aðstæður til að ráða yfir fjárfúlgum bankanna. Á einum áratug töpuðu bank- arnir 33 milljónum króna á braski einstakra manna. Kom það til af því, að í yfirstjórn bank- anna sátu menn, er fhaldsflokk- urinn gat skipaö til hvaða verka sem vera vildi. Pessum 33 millj- ónum stynur þjóðin undir enn. Al[)ýðan verður að borga brús- ann með álögum á álögur ofan, og fJokkar Jóhanns Jósefssonar og Hallgríms Jónassonar sjá um að stórburgeisastéttin sleppi að mestu við byrðarnar. Vestmannaeyingar! 12. júní eigið þér að velja milli flokkanna. Þér eigið að kjósa þann frambjóðandann, er fylgir þeim flokki, er þér bezt treystið til að bera fiagsmuni . yðar fyrir brjósti. Frambjóðandi Alþýðuflokksins, Þorsteinn P. VígJundsison, er snaður ungur og djarfur. Hann þekkið þér af iðni og ástundun í starfi sínu. Pér þekkið hann sem einhvern bezta kennara, sem vöJ er á hér á landi nú. Hann hefir skipaö sér í flokk alþýðusamtak- anna og flokkurinn felur honum að bera mál hans fram i Vest- mannaeyjum og vinna þingfull- trúaumboð yðar. — Ég efast ekki um að allir þeir menn í Eyjum, er unna hugsjónum og framför- um, kjósi Þorstein og ég efast ekki um að allir verkamenn, all- ar wrkakonur, allir sjómenn, all- ir smáútvegsbændur, er þekkja baráttu stéttanna á alþingi, kjósi Porstein. Alþýðuflokkurinn ber fram þá stefnu, er marka mun framtíð- inia, sem breyta mun ástandi því er ríkir, og sem hefir mikið böl í för með sér. r— Upp úr jarð- vegi þeim, er verklýðshreyfinigin skapar, mun rísa nýtt skipulag — nýtt samfélag frjálsra mannia. Steypið því íhaldi, er leitt hefir glötun y fir Vestmannaeyjabæ, sem'i farið hefir svo með bæj- arfélag yðar, að það er fátæk- asta bæjarfélagið á landinu — og liggur við að verða að kasta sér upp á arma þjóðarbúsins. Kjósið ekki viJta fálmframbjóð- endur hugsjónasnauðra brask- flokka. Kjósið fJokk alþýðuheimilanna! Kjósið Þorstein Víglundsson. Vilhj. S. Vilhjálmsson. Ávarp til félaga í „Þórshamri41. Kommúnistar hafa hrópað hátt (með það í blööum sínum og víð- ar, að jafnaðarmannaféJagið „Þórsham;ar“ samanstæði af Al- þýðuflokkssvikurum; þar væru í- haldsmenn, „Framsóknarmenn“ og flokksleysingjar. Foringjar „Framsóknar“ virðast hafa lagt trúnað á þessi hróp ærslabelgj- anna, því nú býður „Framsókn“ hér fram mann, sem auðsjáan- Jega á að draga til sín „svik- arana" í Þórshamri, ef 1 þeir skyldu reynast vera þar. Enginn Þórshamarsmeðlimur gengur undir fölskum fána. Allir erum við einlægir Alþýðuflokksmenn. Við skulum sanna það viö þessar kosningar, að við stöndum allir sem einn maður utan um stefnu Alþýðuflokksins, stefnu verka- lýðsins í landinu. Allir eitt. Félagi. Göfgi Þaó er að eins barist um tvent í stjórnámulunum hvert sem litið er. Það er barist um ágimdina og einkahyggjuna annars vegar og isamfélagshyggjuna, samstarfið og göfgina hins vegar. Annars vegar í baráttunni standa vinn- andi menn og konur, fólk, sem lítið á, en hins vegar standa þeir, sem alt eigd, vilja ráða og þykir alt gott eins og það er. Alþýðan hefir á öllum öldum borið fram þær hugsjónir, er mestri birtu vörpuðu á framtíð þeirrar kyn- slóðar, sem þá ríkti og sem enn yljar okkur. Gegn þeim öllum stóð íhaldið og öfgameonirnir, sem engu vildu breyta eða brenna alt til ösku. Gæti prest- urinn okkar Vestmannaeyinga á- reiðanlega J>ent á margt úr kirkjusögunni þessu til sönnunar. — Enn er ástandið eins. Nú stendur baráttan milli gamalla í- haldskenninga og nýrrar menn- ingar. Milli einstaklingshyggj- unnar og samvinnuhugans. Milli ágirndarinnar og göfgimnar. Hvorum rnegin stendur þú í bar- áttunni, vinur sœll? Ef þú ert maður heill og frjáls, þá stend- urðu með alþýðunni, þínu fólki ,— þá kýstu 12. júní n. k. Þor- stein Víglundarson, frambjóð- anda jafnaðarmanna. Hann er al- þýðusonur, alinn upp við alþýðu- kjör, gáfur hans eru miklar og fjölhæfar, festa hans og þróttur ágætur og göfgi á hann í ríkum mæli. S. S. Kaupið b!öð alþýð mnar.

x

Alþýðublað Vestmannaeyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublað Vestmannaeyja
https://timarit.is/publication/631

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.