Magni - 21.04.1961, Blaðsíða 1
N
Mðlejni Bœjarútgerðar Akraness
Bjarni Ólafsson seldur á nauðungaruppboði fyrir kr. 3,6 milljónir. —
Rekstrartap kr. 10—11 milljónir 1960.
Hvað gera mennirnir, sem valdið hafa Akraneskaupstað milljónatjóni?
Á árunum 1954—’57 var togaraútgerð í land-
inu almennt rekin með halla. Bæjarútgerð Akra-
ness fór ekki varhluta af þessu. I maí 1958 var
rekstrargrundvöllur togaranna stórbættur og
aflamagnið það mesta, sem það varð um mörg ár.
Margir togarar bættu hag sinn verulega á þessu
ári. Hins vegar varð hallinn þá hjá Bæjarútgerð
Akraness um kr. 2 millj. auk þess, sem kr. 908
þús. af viðhaldskostnaði var færður til eignar og
engir vextir voru reiknaðir af kr. 11 millj. láni
frá bæjarsjóði. Önnur útgerðarfélög hefðu orðið
að bæta þeim lið við rekstur sinn og jafnvel út-
svari. Með slíkri viðbót hefði hallinn orðið allt að
kr. 4 millj. í mesta veltiári togaraútgerðarinnar
á s. 1. áratug.
Deilan um útgerðina
hefst.
F/árhojsÁietlun Skrants-
kaupstaðar 1961
var samþykkt á bæjarstjórnarfundi 15. marz s.l. er stóð
í 9^2 klst. Á fundinum komu eftirgreindar staðreyndir
í ljós:
1. Rekstrarútgjöld bæjarins eru hækkuð um
kr. 1,5 millj. eða um 20% frá fjárhags-
áætlun ársins 1960.
2. Ýmsar verklegar framkvæmdir — einkum
byggingarframkvæmdir — eru lækkaðar
um kr. 1.360.000,00 — eða um 70%.
3. Vanskil af lánum hafnarinnar um s. 1. ára-
mót námu kr. 2.451.000,00.
4. Ríkissjóður hefur þegar verið krafinn um
kr. 1 millj. af vanskilum þessum.
5. Umframgreiðslur bæjarsjóðs 1960 námu
kr. 1.873.000,00.
6. Á fjárhagsáætlun hafnarinnar vantar
raunverulega ca. kr. 3 millj.
Sjá grein um fjárhagsáætlunina í næsta blaði.
Þegar þessar staðreyndir
lágu fyrir 1959 í sambandi við
reikninga ársins 1958 taldi ég,
að ekki væri lengur eftir neinu
að biða. Leggja bæri útgerðina
niður og koma skipunum í
sæmilegt verð. Óforsvaranlegt
væri að leggja þennan mikla
taprekstur á gjaldendur bæjar-
ins, einkum eftir að í ljós kom,
að aðrir togarar — nálega all-
ir nema þeir austfirzku —
hefðu skilað verulegum hagn-
aði og margir gróða. Atvinnu-
ástand bæjarins réttlætti þetta
engan veginn eftir að sements-
verksmiðjan hefði komið til
viðbótar öðrum atvinnutækjum
á Akranesi. Deildi ég á tog-
aranefnd fyrir að láta fljóta
sofandi að feigðarósi og gera
það eitt að krefjast fjár úr bæj-
arsjóði í botnlausa hít útgerð-
arinnar. Fékk mál mitt litlar
undirtektir en fullkomna and-
stöðu framkvæmdastjórans, G.
Sveinbj., sem sagði m. a.:
„Tap útgerðarinnar 1958 er
ekki meira en um mörg und-
anfarin ár og gefur því ekki
tilefni til sérstakrar um-
ræSu“.
Svo starblindur var hann í
þessum málum, að hann sá
ekkert athugavert við rekst-
urinn fyrst hallinn var ekki
meiri en undanfarin ár, og
taldi ekki þörf á að ræða slíka
smámuni. Þá lágu fyrir upp-
lýsingar uni mjög góða útkomu
hjá nálega öllum öðrum togara-
félögum landsins. Það er ekki
von á breytingu til batnaðar
með slíku hugarfari. Nokkru
síðar fékk þó Sig. Guðm • sam-
þykkta tillögu í útgerðarráði
um að bæjarstjórnin kysi 3
manna nefnd til að gera sér-
stakar athuganir á rekstri tog-
aranna í samvinnu við útgerð-
arráð. Þessi samþykkt var þó
ekki send bæjarstjórn fyrr en
löngu síðar, enda voru G. Sv.
og H. Sv. staðráðnir í því að
gera ekkert með hana. Um-
rædd nefnd var svo kjörin 24.
febrúar 1960 og skyldi H. Sv.
kalla hana saman, en hann var
þá orðinn formaður útgerðar-
ráðs. Það lét hann ógert næstu
5 mánuði, en þá var svo farið
að þrengja að útgerðinni að
þeir H. Sv. og G. Sv. gátu
ekki lengur setið auðum hönd-
um.
Tillaga um sölu
togaranna.
Á bæjarstjórnarfundi 31.
maí 1960 bar Bj. Th. Guð-
mundsson fram svofellda til-
lögu:
„Bœjarstjórnin telur óviöunandi aö
verja árlega 15—20% af útsvarstekj-
um bœjarins í hallarekstur bæjar-
útgerÖarinnar, auk þess sem bæjar-
sjóöur veröur jafnframt aö taka á
sig stárfelldar ábyrgÖir vegna rekst-
urslána útgerÖarinnar.
Atvinnulíf á Akranesi er hins veg-
ar svo fjölþœtt aÖ engin brýn nauö-
syn er til þess að bæjarsjóöur hafi
meö höndum jafn áhœttusaman at-
vinnurekstur. Fyrir því samþykkir
Bœjarstjórn Akraness aÖ leggja niö-
ur togaraútgerÖ bæjarins og selja
togarana innanbæjar, ef þess er kost-
ur — en annars hverjum þeim, sem
gerir aÖgengileg tilboÖ í þá.“
H. Sv. varð ókvæða við til-
lögu þessari og barðist hart fyr-
ir þvi að hún væri drepin strax.
Ég lagði til að henni yrði vísað
til útgerðarráðs og nefndar
þeirrar, sem áður getur, þar
sem ekki var von fyrir sam-
þykkt hennar strax, sem æski-
legast hefði verið. Sú tillaga
var samþykkt gegn atkvæðum
tveggja krata. Þeir vildu ekki
einu sinni láta ræða þann
möguleika að koma togurunum
í sæmilegt verð meðan enn var
tími til þess.
Rétt áður en þetta skeði var
b.v. Norðlendingur seldur fyr-
ir kr. 8,4 millj. og b.v. Aust-
firðingur fyrir kr. 10,6 millj.
og vitað var um ýms togarafé-
lög, sem þá vildu auka flota
sinn, og höfðu möguleika til
þess. Bókfærðar skuldir útgerð-
arinnar í árslok 1958 voru kr.
16,3 millj. og í árslok 1959
kr. 17,6 millj., auk framlags
bæjarins, sem var kr. 12,4
millj. Hefðu bœfarfulltrúar vilj
aS lœra af reynslu ársins 1958
var auSvelt aS selja togarana
fyrir áhvílandi skuldum. AS-
eins bœjarframlagiS hefSi tap-
azt, sem var alltaf vonarpen-
ingur. ÞaS hefSi veriS góS út-
koma fyrir bœinn móti þeim
ósköpum, sem nú hafa skéS.
Ég átti sæti í 3 manna nefnd
inni og tók þar upp tillögu Bj.
Th. Guðm. lítið breytta, ásamt
ítarlegri greinargerð, er ég
lagði fram. Enginn vilji var
fyrir því að auglýsa togarana á
frjálsum markaði. Hins vegar
var rætt við frystihúsaeigendur
um stofnun útgerðarfélags og
kaup á skipunum með þátttöku
bæjarins. Bak við það virtist þó
lítil alvara, eins og síðar kom á
daginn, því úr þeirri félags-
stofnun varð ekkert. En í sam-
bandi við meðferð þessa máls
fékk G. Sv. og kratamir brenn-
andi áhuga fyrir því að víkja
mér úr starfi bæjarstjóra, hvað
þeir fengu samþykkta tillögu
um 24. ágúst og eftir þaS féllu
niSur allar umræSur um sölu
togaranna. G. Sv. hafSi lengi
óttast viShorf mitt til togara-
málsins, en nú varS hann ró-
legri og taldi ekkert aS óttast.
Alvöruna fann hann svo 29.
marz s. I.
Hin fræga ,.klössun“.
Eftir að mér var vikið frá
rekur G. Sv. útgerðina sem
einkafyrirtæki sitt. Fundur var
aldrei haldinn i útgerðarráði
frá 26. ágúst og þar til nýtt
útgerðarráð var kjörið í febrú-
ar s.l. G. Sv. sendir b.v. Bjama
Ólafsson í „klössun" í South-
Shields i Bretlandi í október
eftir að bæjarstjórnin hafði
samþykkt á fundi sínum 24.
ágúst að leggja útgerðina nið-
ur og selja togarana. Hann
semur um „klössun“ fyrir kr.
3,3 millj. án þess að nokkur
samþykkt bæjarins liggi fyrir
um þá ráðstöfun, eða hann hafi
hugmynd um, hvernig eigi að
greiða upphæðina. Hann mátti
vita, að útgerðin hafði ekkert fé
og lánstraust hennar var löngu
glatað. Þegar „klössun“ var
lokið 4. des. var enginn pening-
ur til þess að greiða með og
allt stóð fast.
Var nú gengið milli Lands-
bankans og ráðuneytanna og
beðið um hjálp til að leysa
vandræðin, því skipasmíðastöð-
in hótaði sölu á skipinu. Setið
var fyrir ráðherrum og banka-
stjórum, hvar sem þeirra var
von og beðið um hjálp, eins og
beiningarmenn, sem rétta fram
höndina og biðja um einn máls
verð. Þannig gengu málin vik-
um og mánuðum saman. Þeim
lauk þannig að ríkisstjórnin
sagði nei. Landsbankinn sagði
Framhald á síSu 3.
GagnfrœSaskóli Akraness var byggSur á árunum 1958—'60. Hófst kennsla í skólanum
haustiS 1959 og þá kennt í nokkrum hluta hans en allur var skólinn tekinn í notkun haustiS
1960, aS undanteknu skólaeldhúsinu. Enn er þó eftir aS fullmála skólann, ganga frá lóSinni
°g girSa hana. Samkvœmt áætlun á þessum áfanga aS vera lokiS í ár. ÁœtlaSur kostnaSur er
kr. 6 millj. og er líklegt aS hann œtli aS standast furSuvel, þrátt fyrir miklar hækkanir, eink-
um a s. I. ári. RíkissjóSur greiSir % stofnkostnaSar. — StærS skólans er 4700 ms og grunn-
flötur 867 rrr. 1 honum verSa 9 kennslustofur og skólaeldhús, auk herbergja fyrir kenn-
ara og skólastjóra og bókasafn. Er þetta hiS glæsilegasta hús og mjög þægilegt á allan
hátt. Gert er ráS fyrir viSbyggingum síSar t. d. fyrir verklegt nám, samkomusal, íbúS fyrir hús-
vörS og fleiri kennslustofur. Skólinn er skuldlaus eign bæjarins og enn óvéSsettur. Eitt dæmi
úr framfaratímabili Akraness síSustu árin.
&: 11L' f'O f; 'oa f ui 3
Qr C1 ív í l tV 1J/C.'V