Magni - 21.04.1961, Blaðsíða 4

Magni - 21.04.1961, Blaðsíða 4
4 M AGNI Föstudagur 21. apríl 1961 Jylgl úr hlaði Framsóknarfélögin á Akranesi hafa ákveÖiö aÖ hefja útgáfu bœjarmálabláÖs, sem hlotiÖ hefur nafniÖ MAGNI, en svo hét sonur Þórs og Sif og bjó aÖ ÞruÖvangi. Hann var því góÖrar œttar og hinn gjörvilegasti. Vœri gott honum að líkjast. Magni hefur mikilvægu hlutverki að gegna, eins og málefnum bœjarins er nú komið og mun hann leitast við að verða hlutverki sínu trúr. Ekki er ákveÖið, hvort Magni kemur reglulega út, nema næsta blað kemur um miðjan maí. Birtast þar m. a. greinar um fjárhagsáætlunina 1961 og ýms önnur málefni bœjarins. Magni tekur þakksamlega við greinum og bréfum frá stuðnings- mönnum sínum til birtingar og styrktarfé til útgáfunnar. BlaÖaútgáfa kostar mikið fé og er því heitið á þá, sem telja málgagn þetta hafa verk að vinna — og þeir eru áreiðanlega margir — að- leggja því nokkurn fjárhagslegan stuðning. Allt slíkt ber að senda ritstjórninni. Ennfremur auglýsingar. MeÖ beztu óskum um gleðilegt sumar. Ritstjórn MAGNA. ► Pólitízk hrossakaup. Talið er að þeir sem stóðu að bylt- inguuni í bæjarstjóminni í fyrra sumar hafi samið um tvennt. Sjálf- stæðismenn 9kyldu taka fulla ábyrgð á útgerðarbraski Guðmundar Svein- bjömssonar á kostnað bæjarins. Hafa þeir dyggilega staðið við það. Al- þýðuflokksmenn áttu að samþykkja kaup bæjarins á húseign Bifreiða- verkstæðis Akraness við Þjóðveg í. Eitthvað hafa þeir verið feimnir við framkvæmdina, enda ekki vitað að bæinn skorti slíkt húsnæði, þvi hann á mikið af tómum geymsluhúsum við Ægisbraut. Ráðamenn bæjarins hugsuðu sér að koma húsunum inn á rafveituna. Það liti betur út. Eftir að Ólafur Tryggva son rafveitustjóri hafði skoðað húsin afþakkaði hann þau. Hafa því bönd- in borizt að bæjarstjóra að standa við loforð sín. Hefur hann skoðað þau nokkrum sinnum, en biður betra tækifæris til að fullkomna hneykslið. ► Hvað er km? Við umræður um gatnagerð á síð- asta bæjarstjómarfundi taldi Geir- laugur — leiðtogi Alþýðuflokksins i menningarmálum — ekki lengi gert að steypa allar götur í bænum og heldur ekki dýrt, þótt km kostaði 2 millj. kr. „þvi km væri ekkert smáræði. T. d. hefði sér alltaf verið sagt að það væri km frá Bióhöllinni upp að Görðum.“ D. Á. greip þá fram í og sagði: „Það er langur km.“ Geirlaugur endurtók þá „að þetta væri auðgert, því samkv. þessu væru allar götur í bænum örfáir km.“ Guðmundur Jónsson, sem staddur var á fundinum, gekk nú niður á skrifstofu og mældi umrædda vega- lengd. Hann komst að þeirri niður- stöðu, að frá Bíóhöllinni að efsta húsi við Skagabraut væm 1350 m og upp að Görðum c.a. 2,8 km. Var óspart hlegið við upplýsingar þessar, sem sönnuðu betur en allt annað rökfærslu Geirlaugs almennt og ályktun til annarra mála. ► Hvað varð um uppboðin? Framan af í vetur voru auglýst i þremur eintökum Lögbirtingablaðs- ins uppboð hjá tveimur fyrirtækjum hér í bænum til greiðslu útsvars til bæjarsjóðs. Áttu uppboðin að fara fram 20—22. febrúar s. 1. Ekki hef- ur heyrzt að sala hafi farið fram. En skyldu útsvörin hafa verið greidd? Væri fróðlegt fyrir gjaldendur í bæn- um að fá fréttir af því. ► Enginn veit sína ævina . . . Það hefur vakið mikið umtal í bænum, að G. Sv., sem flutti tillög- una í sumar að reka bæjarstjórann m. a. fyrir kaup á bifreið fyrir kr. 300 þús. skyldi á eigin ábyrgð senda togara í „klössun" fyrir kr. 3,3 millj. án þess að hafa nokkra samþykkt. — Kaupin á bifreiðinni vom gerð með samþykki meirihluta bæjarráðs og hefur hún á hálfu ári skilað meir en helmingi kaupverðsins í beinum hagnaði. — „Klössunin" á Bj. Ól. verður hins vegar talin til hinna mestu fjármálaafglapa og lengi til hennar vitnað. ► Hvað þarf að fela? Þegar kosið var i nefndir og önn- ur trúnaðarstörf í bæjarstjóminni í febrúar benti Sigurður Guðmundsson á þá almennu venju að gefa minni- hlutanum kost á að tilnefna endur- skoðanda og fulltrúa i kjördeildir. Væri þetta algengt t. d. i Reykjavik. Jón Ámason neitaði slíku og kvað hvergi tíðkast. Var þetta fullyrðing út í bláinn. Af 3 endurskoðendum í Rvik eru 2 frá minnihlutaflokkunum. 1 kjördeildum er fulltrúum skipt milli allra flokka og talið nóg að hver flokkur eigi þar einn fulltrúa. Að ryðja andstæðingunum úr kjördeild- um og neita þeim um endurskoð- anda er litilmannlegt ofstæki, sem engin fordæmi mun eiga. Þarf bœj- arstjórnarmeirihlutinn aS fela eitt- hvaS? HvaS er hér óhreint á ferS- inni? Þannig spyrja bœjarbúar svo lengi sem minnihlutanum er ekki gefinn kostur á endurskoSanda. Það eitt getur upprætt alla tortryggni. Það er ennfremur brot á heiðarlegri kosningaframkvæmd að útiloka minnihlutann frá þátttöku í kjör- deildum en láta einn flokk eiga þar tvo fulltrúa. Hér er seilzt heldur lengra en sæmilegt er, eins og stund- um áður. ► Stjórnarhættir frá Kongó. Byltingin á Akranesi i sumar bar upp é sömu dagana og óstjómin hófst í Kongó. Þóttu hvort tveggja mikil tiðindi. Akranes var af ýmsum um þær mundir nefnt Litla-Kongó. Ýmislegt er likt með krataforingjun- um hér og svertingjunum í Kongó, og meira en almenningur veit. Þeir viku úr embætti sitt á hvað og var oft erfitt að fylgjast með því, hver var í embætti og hver rekinn. H. Sv. tók þá til fyrirmyndar, eins og bréf þetta sýnir: Akranesi, 12. sept 1960. „ÞaS tilkynnist ySur hér meS aS fyrrverandi bœjarstjóri, Daníel Ágústínusson, skoSast ekki lengur í stjórn sameignarfélagsins Mal- bik, sem fulltrúi Akraneskaup- staSaé. V irSingarfyllst, H. SVEINSSON, bœjarstjóri á Akranesi. Til stjórnar Malbiks sef, Reykjavík." Bréf þetta er meðal fyrstu em- bættisafglapa H. Sv., eins og dagsetn- ingin ber með sér. 1 fyrsta lagi vegna þess, að D. Á. var ekki kjörinn i stjóm Malbiks af Akraneskaupstað, heldur af fulltrú- um 9 kaupstaða í landinu og réði Akranes ekkert yfir starfi þessu. 1 öðm lagi, að fyrir bréfi þessu er engin samþykkt i bæjarstjóm, held- ur virðist H. Sv. skrifa bréfið é eigin ábyrgð, sem er mjög vitavert. — Bréf þetta var þvi markleysa ein, sem vakti góðlátlegan hlátur hjá stjóm Malbiks. En það var bókað, sem ævarandi minnisvarði um höf- undinn. Já, krataforingjamir á Akra- nesi og svertingjamir í Kongó eiga sitt hvað sameiginlegt. ► Flóttinn frá tölunni 13. Guðm. Sv. hefur um nokkurt skeið verið formaður iþróttabandalagsins. Á þingi þess i fyrra sagði öll stjóm- in af sér nema G. Sv. Á þinginu i ár sagði enn öll stjómin af sér nema hann, sem hlaut kosningu með 13 atkv. af 26 greiddum. ► Bæjarútgerðin og Framtak. Einhver furðulegasti þvættingur, sem lengi hefur sézt á prenti er gVeinin um málefni bæjarútgerðar- innar í síðasta Framtaki. Þar segir m. a.: „vinstri flokkarnir gáfust upp“ og látið liggja að þvi, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi tekið að sér björgun- arstarf. Ætli það sé fólgið i því að láta selja b.v. Bjama Ól. á nauðung- aruppboði fyrir kr. 3,6 millj.? Ekk- ert finnst í greininni um þá nauð- ungarsölu, sem telst þó til stórtíðinda. Af hverju er Framtak feimið við að segja frá henni, svona rétt eftir að björgunarstarfið hefst? Hins vegar viðurkennir blaðið, að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi tekið fulla ábyrgð á framkvæmdastjóm G. Sv. og kallar vantraust á hann „skripaleik“. — Aldrei hefur hagur bæjarútgerðar- innar verið bágbomari en eftir að Sjálfstæðismenn tóku að sér málefni bæjarins á s.l. sumri og mun aðeins eitt fyrirtæki finnast i bænum, sem stendur á svipuðu stigi fjárhagslega. ► Framsóknarvist. Næsta Framsóknarvist og hin síð- asta að þessu sinni verður að Rein sunnudagskvöldið 30. april og hefst kl. 8,30. — Hljómsveit leikur fyrir dansinum. Öllum heimill aðgangur. Hverjir bera ábyrgðina? Á bæjarstjórnarfundi 15. marz s.l. fluttu þeir SigurSur Guðmundsson og Daníel Ágústínusson svofellda tillögu: „Þar sem upplýst er, aS GuSmundur Sveinbjörnsson hefur ákveSiS viSgerS á togaranum Bjarna Ölafssyni fyrir ca. kr. 3,3 millj. án samráSs viS útgerSarráS, bæjarráS eSa bæjarstjórn, vanrækt aS gera ráSstafanir til öflurtar fjár til greiSslu á viS- gerSarkostnaSinum, en togarinn legiS í óhirSu í erlendri höfn mánuSum saman á ábyrgS bœjarsjóSs, þá samþykkir Bœjarstjórn Akraness aS víta GuSmund Sveinbjörnsson framkvœmdastjóra útgerSarinnar fyrir þessa ráSstöfun og felur bœjarráSi aS koma í veg fyrir aS slíkt endurtaki sig.“ Tillagan var felld með 4:3 atkv. Agnar Jónsson greiddi henni atkv. auk flutningsmanna. Þessir bæjarfulltrúar felldu hana: H. Sv., Geirl. Á., Jón Á. og Sigr. Auðuns. Hjá sátu Valg. Kr. og G. Sv. Um útgerðarmálin urðu langar og harðar umræður. H. Sv. og G. Sv. varð svara- fátt, en eftirgreindum spurningum var m a. beint til þeirra: 1. Hverjar eru horfur með að losa Bj. Ól. úr haldi í Bretlandi? Svar: Málið í athugun, ekkert hægt að segja. 2. Eru margir skipverjar á kaupi hjá útgerðinni i vetur? Ekkert svar. 3. Hvers vegna var ekki fengin samþykkt fyrir „klössun“ á Bj. Ól.? H. Sv. svaraði: „Það talaði maður við mann.“ Gjaldendur bæjarins, sem eiga að borga hverja einustu krónu af þessari ráðsmennsku krefjast þess að fá að vita, hverjir bera ábyrgðina, auk H. Sv. og G. Sv. Var talað við Jón Árnason? Var talað við Geirl. Árnason? Var talað við Sigríði Auð- uns? Þessir bæjarfulltrúar hafa lýst sér- stöku trausti sínu á framkvæmdastjórn út- gerðarinnar. Verður eltki komizt hjá því að sækja þá til ábyrgðar á störfum hennar. Tíminn er nú óumdeilanlega glœsilegasta dagblaö landsins. Þeir sem vildu kynnast því af eigin raun, geta fengiö blaöiö sent heim ókeypis til nœstu mánaÖamóta. Taliö viö afgreiöslumanninn, GUÐMUND BJÖRNSSON, kennara, Jaöarsbraut 9, — sítni 199. TILKYNNING Frá 4. apríl n. k. hefur verið ákveðið að af- greiðslutími Sparisjóðsins verði þannig: Alla virka daga nema laugardaga kl. 10 til 11 og 12,30 til 15. Á laugardögum er opið kl. 10 til 11. — Þó verður alveg lokað á laugar- dögum á tímabilinu frá 15. júní til 15. sept- ember. Viðtalstími kl. 10 til 11. SPPARISJÓÐUR AKRANESS. Þýzka ullargarnið er komið aftur, margar gerðir. Verzlunin GRÍMA, Akranesi

x

Magni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Magni
https://timarit.is/publication/789

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.