Mæðrablaðið - 23.05.1937, Blaðsíða 1
Útgefandi: Mæðrastyrksnefndin.
I. árg.
Siglufirði, á Mæðradaginn 23. maí 1937
]. tbl.
A V A R P.
Lesari góður! Hér er nýtt blad aö hefja göngu sína, ug uio,
sem aö þvi stöndum, viljum meö nokkrum oröum gera grein fgrir
starfsemi þess. MÆÐRABLAÐIÐ á aö vera, eins og nafn þess
bendir til. aöallega helgað málefnum mœðranna, og biðjum við
alla velunnara siglfirzkra. mceðra aö veita málefnum þeirra sitt
fyllsta lið. MÆÐRABLAÐIÐ mun ekki koma út oftar en einu
sinni á ári, á mœöradaginn, sem er fjórði sunnudagur í mai ár
hvert, og vonum vió, að á móti því verði tekið sem blómi vor-
boðans.
Siglufirði, 20. mai 1937.
/ Mœðradagsnefndinni:
Eirikssína Ásgrímssdóttir. Sigriður Jönsdóttir. Guðbjörg Eiriks-
dóttir. Þorfinna Dýrfjörð. Hólmfríður Sigurgeirsdóttir. Ólöf
Kristinsdóttir.
Mæðrada^urirm.
Tilvera hins svonefnda Mæðradags
árótsína að rekja til mildra og göf-
ugra hugsana þeirra einstaklinga,
sem bezt skilja kjör og kyrlátt starf
þeirra kvenna sem heiina sitja og
halda vörð um heimilisarininn.
Að mæðradagurinn er haldinn
hér á þeim tíma árs, þegar vorið
er á sinni siguileið, er að öllu
leyti vel til fundið, og í fullu sam-
ræmi við hlutverk þeirra, sem eiga
að hlynna að viðkvæmum blóm-
um og vaxandi meiðum sem inynda
eiga þjóðfélagið í framtíðinni,
Að þessu sinni virðist mæðra-
dagurinn ekki ætla að heilsa okkur
með sól í fangi og blóm við barm,
en mæður, sem nokkra reynzlu
eiga að baki, láta slíkt ekki raska
ró sinni, þær hafa svo oft fundið
næða um sig svalan blæ frá mis-
jöfnum kjörum og margvíslegum
vonbrigðum. Alltof margar þeirra
hafa líka séð fegurstu blómin sín
blikna við eina frostnapra vornótt.
Mæðradagurinn á erindi til allra
mæðra, á hvaða aldurs- og þroska-
stigi sem þær kunna að vera.
Hinar öldruðu mæður, sem heim-
iliskyrrðin hjálpar til að vera of
geymnar á daprar minningar, finna
svo oft viðkvæma strengi hljóma
í sál sinni. Til þeirra kemur mæðra-
dagurinn með þann samúðaryl, sem
eldra fólkið fær aldrei í of ríkum
mæli. Hinum yngri mæðrum heils-
ar þessi dagur sem gamall kunn-
ingi, sem endurskin hinna frjálsu,
áhyggjulausu æskudaga, sem þær
hafa kvatt og ef til vill sakna að
einhverju leyti, því að mörg ung
móðir heyrir útþrána kalla, þótt
rödd hennar sé fjarlægari en fyr,
og sér blasa við sér óleyst við-
fangsefni, sem kærustu æskuhug-
sjónir hennar voru tengdar við.
Hugljúf skylda kallar, en hugur-
inn reikar svo víða. Annars er
tæplega hægt að segja, að sú
hugsjón, sem Mæðradagurinn er
runninn upp af, sé enn orðinn að
virkileika, hún verður það eklci
fyr en hver móðir er losuð við
allar heimilisáhyggjur þennan dag,
og getur notið frelsi og gleði.
Það hvílir á herðum hinnar
ungu, uppvaxandi kynslóðar, að
bera þessa hugsjón fram til sigurs,
Þið ungu meyjar og sveinar!
Munið Mæðradaginn, munið það
ætið, að inóðír ykkar er alla daga
að fórna andlegum og líkamlegum
kröftum sínum ykkur til heilla og
blessunar, en Mæðradagurinn er
einmitt sérstakt tækifæri fyrir ykk-
ur til að veita móður ykkar gleði
og hvíld.
Enginn veit hvenær lifið skiftir
um Ieiksvið — móðir ykkar er
horfin, og þá hljóma í huga ykkar
orðin: »Aldrei framar-.
Veitið móður ykkar samúð og
gleði meðan tími er til. t