Mæðrablaðið - 23.05.1937, Blaðsíða 1

Mæðrablaðið - 23.05.1937, Blaðsíða 1
Útgefandi: Mæðrastyrksnefndin. I. árg. Siglufirði, á Mæðradaginn 23. maí 1937 ]. tbl. A V A R P. Lesari góður! Hér er nýtt blad aö hefja göngu sína, ug uio, sem aö þvi stöndum, viljum meö nokkrum oröum gera grein fgrir starfsemi þess. MÆÐRABLAÐIÐ á aö vera, eins og nafn þess bendir til. aöallega helgað málefnum mœðranna, og biðjum við alla velunnara siglfirzkra. mceðra aö veita málefnum þeirra sitt fyllsta lið. MÆÐRABLAÐIÐ mun ekki koma út oftar en einu sinni á ári, á mœöradaginn, sem er fjórði sunnudagur í mai ár hvert, og vonum vió, að á móti því verði tekið sem blómi vor- boðans. Siglufirði, 20. mai 1937. / Mœðradagsnefndinni: Eirikssína Ásgrímssdóttir. Sigriður Jönsdóttir. Guðbjörg Eiriks- dóttir. Þorfinna Dýrfjörð. Hólmfríður Sigurgeirsdóttir. Ólöf Kristinsdóttir. Mæðrada^urirm. Tilvera hins svonefnda Mæðradags árótsína að rekja til mildra og göf- ugra hugsana þeirra einstaklinga, sem bezt skilja kjör og kyrlátt starf þeirra kvenna sem heiina sitja og halda vörð um heimilisarininn. Að mæðradagurinn er haldinn hér á þeim tíma árs, þegar vorið er á sinni siguileið, er að öllu leyti vel til fundið, og í fullu sam- ræmi við hlutverk þeirra, sem eiga að hlynna að viðkvæmum blóm- um og vaxandi meiðum sem inynda eiga þjóðfélagið í framtíðinni, Að þessu sinni virðist mæðra- dagurinn ekki ætla að heilsa okkur með sól í fangi og blóm við barm, en mæður, sem nokkra reynzlu eiga að baki, láta slíkt ekki raska ró sinni, þær hafa svo oft fundið næða um sig svalan blæ frá mis- jöfnum kjörum og margvíslegum vonbrigðum. Alltof margar þeirra hafa líka séð fegurstu blómin sín blikna við eina frostnapra vornótt. Mæðradagurinn á erindi til allra mæðra, á hvaða aldurs- og þroska- stigi sem þær kunna að vera. Hinar öldruðu mæður, sem heim- iliskyrrðin hjálpar til að vera of geymnar á daprar minningar, finna svo oft viðkvæma strengi hljóma í sál sinni. Til þeirra kemur mæðra- dagurinn með þann samúðaryl, sem eldra fólkið fær aldrei í of ríkum mæli. Hinum yngri mæðrum heils- ar þessi dagur sem gamall kunn- ingi, sem endurskin hinna frjálsu, áhyggjulausu æskudaga, sem þær hafa kvatt og ef til vill sakna að einhverju leyti, því að mörg ung móðir heyrir útþrána kalla, þótt rödd hennar sé fjarlægari en fyr, og sér blasa við sér óleyst við- fangsefni, sem kærustu æskuhug- sjónir hennar voru tengdar við. Hugljúf skylda kallar, en hugur- inn reikar svo víða. Annars er tæplega hægt að segja, að sú hugsjón, sem Mæðradagurinn er runninn upp af, sé enn orðinn að virkileika, hún verður það eklci fyr en hver móðir er losuð við allar heimilisáhyggjur þennan dag, og getur notið frelsi og gleði. Það hvílir á herðum hinnar ungu, uppvaxandi kynslóðar, að bera þessa hugsjón fram til sigurs, Þið ungu meyjar og sveinar! Munið Mæðradaginn, munið það ætið, að inóðír ykkar er alla daga að fórna andlegum og líkamlegum kröftum sínum ykkur til heilla og blessunar, en Mæðradagurinn er einmitt sérstakt tækifæri fyrir ykk- ur til að veita móður ykkar gleði og hvíld. Enginn veit hvenær lifið skiftir um Ieiksvið — móðir ykkar er horfin, og þá hljóma í huga ykkar orðin: »Aldrei framar-. Veitið móður ykkar samúð og gleði meðan tími er til. t

x

Mæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mæðrablaðið
https://timarit.is/publication/837

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.