Íþróttablað Hafnarfjarðar - 01.12.1947, Blaðsíða 1
IÞROTTABLAÐ HAFNARFJARÐAR
I. tölublað. Desember 1947 I. árgangur
íþróttabandalag Hafnarfjarðar
Við segjum hér að íþróttabandalag
Hafnarfjarðar hafi verið stofnað 1945. Og
móti því verður ekki mælt. En áður en sá
atburður gerðist var margt búið að gerast
hér í Hafnarfirði í íþróttamálum, sem
stefndi að því. Sem sagt, þar runnu undir
margar stoðir. Skal nú í fáum dráttum sagt
frá þeim aðdraganda: Við setumst upp í
„Tímavér og líðum aftur til ársins 1919. Þá
voru hér í Hafnarfirði stofnuð tvö Knatt-
spyrnufélög, þau: „Framsókn“ og „17. Júní“.
Þau lifðu ekki nema eitt smnar, þar til þeim
bar það að höndum, að verða nauðug viljug,
að hefjast handa mn byggingu knattspyrnu-
vallar. Á fundi í „17. Júní“ var því hreift í
janúar 1920 að þessu máli skyldi hrundið í
framkvæmd og verður þá til nefnd sú er köll-
uð var „Vallarráð“. Þetta ráð, sem var skipað
tveim mönnum frá hvoru þessara félaga og
einum oddamanni, sem kosinn var á sameigin-
legum fundi félaganna. Fundir þeir sem fé-
lögin héldu sameiginlega máttu með sanni
heita þing íþróttamanna Hafnarfjarðar, þeirra
tíma. „Vallarráð“ þetta hratt í framkvæmd
íþróttavallarbyggingunni. Vallarins, sem er á
Hvaleyrarholti og enn er notaður og enn er í
sömu stærð og hann var þá byggður.
„Vallarráðið“ hafði alla forgöngu um í-
þróttamál í Hafnarfirði á þessum árum. Sá um
rekstur vallarins, úthlutaði æfingartímum til
félaganna og sá um íþróttamót „Leikmót
Hafnarfjarðar“ voru þau kölluð. „Vallarráð“
þetta starfaði til ársins 1927, þá voru félög þau
er stofnuðu það hætt störfum. í 7 ár var svo
engin slík stofnun til hér í Hafnarfirði, sem
þetta „Vallarráð“ hafði verið.
1934 var svo af í. S. í. stofnað hér „íþrótta-
ráð Hafnarfjarðar“. Hlutverk þess var að
tengja íþróttafélögin hér saman og starfaði
það um 10 ára skeið. „íþróttaráðið var þó að
ýmsu frábrugðið „Vallarráðinu" gamla. „í-
þrótaráðið“ stóð ekki fyrir neinum mótum. Fé-
lögunum var falið að sjá um þau. Það hafði
heldur engin afskifti af íþróttavallarbygging-
um og sá heldur ekki mn rekstur íþróttavallar-
ins að neinu leyti. Það tók við skýrslum félag-
anna á þessmn árum. Og til þess gátu félögin
snúið sér með ýms mál, þar á meðal deilumál,
ef upp lcomu.
Síðasta verk þessa „íþróttaráðs“ var að
hrinda í framkvæmd stofnun „íþróttabanda-
lags Hafnarfjarðar“. Það gekk á bál og brann
til ösku, eins og fuglinn Fönix. En upp úr
öskunni sté annar fugl, fegurri og fullkomnari
miklu hinum fyrri
Qísli Sigurðsson
formaður
í. B. H.
ÍÞRÓTT ABANDALAG
HAFNARFJARÐAR
Strax á fyrsta fundi þess kom það í ljós að
það myndi vilja vera athafnasamt. Það tók
strax á fyrsta fundi skýra afstöðu til þeirra
mála er íþróttamönnum voru þá ríkust í huga.
Eins og sjá má af framanskráðu. Er „Knatt-
spyrnuvöllur“ sá sem nú er notaður, byggður
í fátækt og af vanefnum. Stærðin sú minnsta
sem vera má. Strax á fyrsta fundi í. B. H. var
borin fram tillaga og samþykkt um úrbætur á
þessu. Tillagan um kaup á Víðistöðum og
byggingu „íþróttavallar“ þar. „íþróttavallar“
sem hefði fulla stæfð og svo útbúinn, að fram
gætu farið öll þau íþróttamót, sem fyrir koma
hérlendis í knattspyrnu og frjálsum íþróttmn.
Á þeim tveim þingum í. B. H. síðari þingum
íþróttamanna í Hafnarfirði hefur þetta verið
það mál, sem fremst hefur verið sett. Enn hef-
ur þetta mál ekki náð fram að ganga. Enn þar
til þessu máli er til lykta leitt, mun það verða
mál málanna hjá íþróttamönnum hér í Hafn-
arfirði. Ekki er ólíklegt að tækifæri gefist til
þess að ræða þetta mál einstakt út af fyrir sig
í þessu blaði, og mun þá verða eins rækilega
um það skrifað og heimildir leyfa.
^ I
Nokkur dvarpsorð
Það hefur þótt við hrenna, að almenningur hefði eigi þann
skilning, sem skijldi, á gildi íþróttanna og starfi íþróttafélaganna, þótt
hins vegar hafi á orðið mikil hreyting til hetri vegar í þessu efni, sér-
staklega á hinum síðari árum.
Orsök þess að íþróttaiðkendur og unnendur íþrótta mæta
eigi þeim skilningi, sem góður málstaður verðskuldar, er fyrst og fremst
sú, að mikið hefir skort á að almenningi væri gefinn kostur á að fylgj-
ast með hugðarmálum íþróttamanna.
Til útgáfu þessa hlaðs er stofnað í þeim tilgangi, að sktjra
Hafnfirðingum frá starfi félagasamtaka íþróttaæskunnar í hænum og
ræða um viðfangsefni, sem nú er harist fyrir að leysa.
Blaðið mun koma út óreglulega og því aðeins, þegar sér-
stakar ástæður eru fyrir hendi.
Væntum vér þess, sem að hlaðinu stöndum, að hæjarbúar
taki þessari tilraun vel og vonum að þeir, sem blaðið lesa, verði nokk-
urs vísari um starf og fyrirætlanir hafnfirzkra íþróttamanna.
Stjórn íþróttabandalags Hafnarfjarðar
Gísli Sigurðsson Guðmundur Árnason
Gunnlaugur Guðmundsson
Hermann Guðmundsson
■
:■
■
:■
■
"*i * r*~ -*r*~ ii