Bergmálið - 20.06.1916, Blaðsíða 1
1. tölublað.
Siglufirði og Akureyri, 20. júní.
♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦
♦ ♦♦♦♦♦*•♦♦•* ♦'*#♦ ♦♦♦•♦♦♦
! 1916.
Menningartæki.
mar Atvinna.
Kaupskapur.
S. Goos
tekur áreiðanlegar stúlkur í síldarvinnu á Siglu*
firði yfir síldartímann. Pær fá ókeypis húsnæði,
sem lýst er með rafljósum og hitað með gufu.
Og vinna á ágætum síldarsöltunarstað.
}Cátt kaup borgað.
S. Goos kaupir
þorskalyfur og
tóm olíuföt
og borgar hæsta hlaupaverði. Alt borgað út í hönd.
Blöðin eru eitt helsta menningar-
taeki nútíðarinnar. Þau eru boðberar
^ugsananna milli manna. í þeim má
*esa vit, tilfinningalíf og vilja þjóðar-
>nnar. Þau eru spegilmynd af andlegu
l'fi hennar. A þeim má sjá vónir þjóð-
arinnar, endurminningar og framfara-
tnöguleika. Þau fræða menn um hvað
gerist í umheiminum. Og eru nauð-
synlegur ráðgjafi og hugsanamiðill í
ýmsum málum. Þau endurhljóma á-
stand og gerðir manna. Kenna hvað
skuli gera og hvað varast. Og eins
°g líf mannanna er margbreytilegt,
þannig er efni blaðanna margskonar.
En flest hafa þau viss áhugamál, sem
þau vinna fyrir.
Þetta blað, sem nú í fyrsta sinn
teggur á stað út í heiminn, vill eink-
Un> skemta mönnum. Og einnig fræða.
^að ætlar ekki að verða á ferðinni
nema yfir sumarið. Það er smávaxið.
En langað til að stækka. Það er ó-
vfsl enn þá,^hve oft það lætur sjá
sig. En að líkindum verður það einu
sinni í viku. Og væntir það að menn
veiti sér alment viðtöku í þau fáu
skifti sem það kerrur út.
Ú t 1 i t i ð.
Sumarið er komið. Snjórinn minkar
óðum. Jörðin grænkar. Loftið kveður
við af fuglasöng. Sólin hellir geislum
sínum yfir landið, og lífgar alt, sem
getur lifnað. Og bráðum fyllist loftið
blómaangan. Menn eru byrjaðir að
^raga fé úr Ægismundum. Og sumir
hyggja gott til framtíðarinnar. En
kinir eru líka margir sem eiga von á
illu. Stríðið geysar enn með mikilli
grimd og leiðir bölvun og fjártjón
Vfir þjóðirnar. Og ófriðaröldurnar verka
toikið á hlutlausu löndin. Valda ýms-
Um glundroða á vöruverði, samgöng-
Um og hag almennings. Menn spá
j ýmsu. En engínn veit hvernig alt þetta
endar. En vonandi er að hildarleikur
sá hinn mesti, er sögur fara af, hætti
bráðlega.
Útlitið virðist vera líkt og undan-
farið. Trúlegt að vöruverð verði líkt
og síðasta ár. Og líklegt að fleiri
þjóðir eigist ekki ilt við að sinni. —
Rússar hafa t. d. óskað eftir meiri
vinsamlegum viðskiftum við Svía. En
þó verið talið, að grunt væri á því
góða þar á milli. Utanríkisráðherra
Rússa hefir sagt að Rússar hefðu ekki
frekar f huga að ráðast á Svíþjóð en
tunglið. Og er það vel farið. Salt og
kornvöru hafa Rússar mikið og gott
væri að hafa greiðan gang þangað.
En Þjóðverjar munu gæta Eystrasalts.
Menn eru einkum hræddir um vöntun
á kolum og salti. Og sú vöntun get-
ur tilfinnanlega hamlað útgerð hér á
landi á meðan stríðið stendur yfir.
Á Spitzbergen eru miklar kola-
birgðir. Og hægt að ná þeim þaðan
yfir sumarið. Undanfarin ár voru þau
dýrari þar en annarstaðar. Námurnar
unnar og kolin geymd. En nú verða
kolin seld. Og er gott að allir þurfa
ekki að knékrjúpa Englendingum með