Bergmálið - 20.06.1916, Page 4

Bergmálið - 20.06.1916, Page 4
4 fiergmálið. j. tbl Símskeyti til ,Bergmálsins‘. Siglufirði 19. júní, kl 3,40 síðdegís. , Herskip sveima úti fyrir Eyjafirði. Beituleysi norðanlands. Lítill afli. Norsk flutningaskip lögð af stað hingað. Nefnd manna frá ýmsum löndum semur í Bergen um viðskifti pjóðanna. Stríðið geisar grimt. Rússar nýlega unnið stórsigra á Austur- ríkismönnum, og sökt 10 pýskum skipum í Eystrasalti. Pjóðverjar sækja á Verdun. Barist á allri herlínu Rússlands norðanverðu. ítalir unnið af Austurríkismönnum. Síminn í ólagi. Nánar næst. Afgreiðslumenn fjarðarbátsins „Hrólfur Krakí“: Akureyri: Eggert Einarsson, verksmiðjueigandi. Austan Eyjafjarðar: Svalbarðseyri: Páil Halldórsson, framkvæmdarstjóri. Nollarvík: Björn Jóhinnesson, útvegsbóndi. Kljáströnd: Höfðabræður. Grenivík: Tryggvi Indriðason, útvegsbóndi. Svfnárnesi: Þorsteinn Gíslason, útvegsbóndi. Grímsnesi: Jón Halldórsson, útvegsbóndi. Látrum: Tryggvi Jónasson, útvegsbóndi. Þorgeirsfirði: Gfsli Gíslason, útvegsbóndi. Flatey: Jónas Jónsson, faktor. Húsavik; Bjarni Benediktsson, kaupmaður. Vestan Eyjafjarðar: Hjalteyri: Tryggvi Benediktsson, kaupmaður. Hrísey: Ólafur Þorsteinsson, kaupmaður. Dalvík: Stefán Jónsson, verzlunarfulltrúi. Olafsfirði: Arni Bergsson, verzlunarmaður, Siglufirði: Jón Guðmundsson, faktor. Akureyri 15, júní 1916. Bjarni Einarsson. er besta og ódýrasta lífsábyrgðarfélagið. Komið og sannfærist! Umboðsmaður: • Jóh. Sch. Jóhannesson. arlm an nafatnaðir eru væntanlegir með 1 »Goðafoss« næst 7 í verslun Sig. Sigurðssonar, Siglufirðj. heyvinnu yfir sumarið og hirtu fé á vetrum, óku á völl, kembdu, prjónuðu, voru í sendiferðum o. s. frv. Ekki voru vorbúðir þær, er sjómenn þá héldu til í, girnilegar. Hlaðnar úr torfi og grjóti og engin fjöl í þeim. Rúmbálkar voru stórir og i þeim drusiur tómar. Ekkert var þar eldstæði. Mat- ur allur stinn kaldur. Og ekkert hægt að þurka. Urðu menn oft að leggjast svitastorknir til svefns í sjóbúðum þess- um ískö.ldum, er þeir komu heitir úr róðrunum. Má nærri geta hve notalegt það hefir verið og heilsusamlegt. Var það einkum á haustin, að þær voru óvistlegar. Draugar voru einnig alltíð- ir gestir í grenjum þessum. Ekki var mata sjómanna æfinlega rífleg. Gekk fleirum illa að treyna hana. Og mikl- ir matmenn átu það upp á 3—4 dög- um, er þeir skyldu enda í viku. Og horfði það ofát stundum til vandræða fyrir félaga þeirra. Mikill var munur á úttekt manna úr kaupstað þá og nú. Menn átu það sem þeir framleiddu og keyptu lítið að kaupmönnum. Var kaupstaðarút- tekt frá litlum heimilum yfir árið í þá daga oft ekki meiri en svo, að koma mátti á einn hest. Lítið var þá drukk- ið af kaffi, sykur afarlítið notaður, brauð sumstaðar sjaldgæft og margt af því, sem nú er notað daglega sást sumt sjaldan og sumt aldrei. Fjalla- gros voru þá mikið tínd og etin. Á Löngumýri kom varla svo dropi úr lofti, að ekki væri heill hópur af vinnufólki rekinn af stað í grasaleit. Þóttist bóndi ekki geta án grasagrauta verið, svo holl kvað hann sér fjalla- grösin, fyrir utan búdrýgindin. Voru grasaferðir þessar næsta erfiðar og oft ábætir á önnur nægilega mikil dags- verk. Voru vinnukonurnar oftar hafð- ar í fjallferðir þessar. Var það ekki uotalegt, að vera fleiri tfma að verki þessu, oft gagndrepa af votviðri. Og rogast evo með stóra poka fulla með grös. Einusinni höfðu vinnukonur á Löngu- mýri ausið skít á túnið fyrrihluta dags og fram undir kvöld. Kom þá rigning. Voru þær þá sendar í grasaleit. Komu þær ekki úr þeirri ferð fyr en nokkuð var liðið á nótt. Þannig var grasa- ferðunum bætt á þær að Ioknu dags- verki. Seint um sumar fóru þær sem oft- ar á grasafjall Hafði húsmóðirin venju fremur lagt ríkt á við þær að vera duglegar að tína. Vildu þær ógjarnan koma með Iítið heim. Prentsmiðja Odds Björnssonar.

x

Bergmálið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmálið
https://timarit.is/publication/1292

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.