Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 19.05.2004, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 20 tbl. 7. árg. 19. maí 2004 Kr. 250 í lausasölu Elleíu tilboð í Grímsá Ellefu tilboð bárust í Grímsá í Borgarfirði en til- boðin voru opnuð fyrir helgi. Hæsta tilboðið átti Hreggnasi, 40,5 milljónir. Sjá nánar í veiðihorni Gunn- ars Bender á bls. 9 Störfiim fjölgar Búist er við að störíúm hjá HB Granda á Akranesi fjölgi um 30 - 40 með tilkomu nýrrar flæðilínu og vakta- vinnufyrirkomulags. Sjá bls 2 Rætt um veitu Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur bæjar- stjórn Snæfellsbæjar óskað eftir viðræðum við Grund- arfjarðarbæ um möguleika á að leiða heitt vatn frá Ber- serkseyri til Snæfellsbæjar. Erindið var tekið fyrir á síð- asta fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar og var sam- þykkt samhljóða að fela bæj- arstjóra að ræða við bæjar- stjóra Snæfellsbæjar. „Við getum í raun ekkert sagt fyrr en við fáum niður- stöður úr rannsóknum Dr. Kristjáns Sæntundssonar hjá Islenskum orkurannsóknum á borholunni á Berserks- eyri,“ segir Björg Agústs- dóttir bæjarstjóri Grundar- fjarðar. Hún segir að við- ræðurnar muni snúast um hvort sameiginleg hitaveita fyrir Grundarfjörð og Snæ- fellsbæ sé tæknilega mögu- leg og íjárhagslega hag- kvæm en í þeim felist engin skuldbinding. GE Stungu af á ofsahraða Síðastliðinn fimmtudag fékk lögreglan í Borgarnesi ábend- ingu frá vegfarendum við bæinn Skorholt í Leirár- og Melasveit, um að ökumenn tveggja mótor- hjóla hafi verið þar á ofsahraða. Lögreglan tók sér stöðu og sat fyrir meintum ökuþórum við Mótel Venus í Hafharskógi og mældist hraði hjólanna þar vera 140 km/klst. Okumenn sinntu ekki stöðvunarmerkjum lög- reglu og upphófst þá æsilegur eltingarleikur upp héraðið, áleiðis norður í land. Lögregl- unni á Blönduósi og Búðardal var gert viðvart ef för þeirra leiddi inn á umráðasvæði þeirra. Eftir að lögreglumenn úr Borgarnesi komu að sýslumörk- um á Holtavörðuheiði sneru þeir við. Við Hraunsnef í Norð- urárdal óku mótorhjólakapparn- ir hins vegar í flasið á þeirn, ef svo má segja, og reyndust þeir þá hafa stungið sér í skjól á fá- förnum stað og talið sig hólpna, en voru teknir tali strax og þeir létu sjá sig aftur. Að sögn Stein- ars Snorrasonar, varðstjóra í lögreglunni voru ökufantar þessir ekki af Vesturlandi. „Þeir mega búast við himinháum þár- sektum fyrir ofsaakstur og að hafa ekki sinnt stöðvunarmerkj- urn lögreglu,“, sagði Steinar í samtali við Skessuhorn. MM Nokkur hópur manna á Akranesi hefur keypt sér svokallaðar sæþotur. Hér er um að ræða kraftmikil tæki sem hægt er að ná ógnarhraða á og þykja hin skemmtilegustu leiktæki. Hér er einn sæþotugarpur með farþega f eftirdragi. Mynd: Hilmar Sigv.s. Sláttur í maí Ferðaþjónustubændur í Fljótstungu í Hvítársíðu, hjón- in Kristín og Bjarni, hófu slátt á heimatúninu sl. mánudag. Sláttur þessi verður að teljast með fyrra fallinu en þó skal tek- ið ffam að ekki var þó heyað til nytja að þessu sinni, því hér var um almennan þrifaslátt að ræða á bæjartúninu. Að sögn Bjarna þjónaði sláttur þessi ekki hags- munum ferfætlinga, heldur er ætlað að gleðja augu ábúenda og gesta þeirra. MM Grillandi tilboi Góð Kaup! Verð áður: Lúxus grísasteik...................948 kg. 1298 kg. Djúpkr. grísakótil................1099 kg. 1249 kg. Ostapylsur.........................799 kg. 997 kg. Grillpylsur........................799 kg. 943 kg. Goöa pylsur 10 stk..............30% afsl. 868 kg. Hamborgarar 10 stk..................989,- 1164,- Kartöflusalat 500 gr................249,- 288,- Góð Kaup! Verð áður: Gourmet lambal.sn.................30%afsl. 1776 kg. Gourmet framp.sn.................30% afsl. 1356 kg. Rauðvínsl. grísakótilettur.......30% afsl. 1495 kg. Kínakál..........................249 kg. 369 kg. Vatnsmelónur.....................149 kg. 249 kg. Caxton súkkulaöikex..................249,- Nýtt- Tilbo in gilda fr 19. ma til 25. ma eamean birg ir endast. c,rmdaVg/ Hyrnutorgi Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.