Skessuhorn - 19.05.2004, Blaðsíða 9
JHÍ.331JI1U...
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004
9
KJaSi/iotntS
Grímsá í Borgarfirði:
Hreggnasi bauð 40,5 milljónir
„Vlð viljum þakka þeim
íjölmörgu sem gerðu tilboð í
Grímsá og við munum kíkja á
hæstu tilboðin á næstu dög-
um,“ sagði Þorsteinn Þor-
steinsson formaður Veiðifé-
lags Grímsár, er tilboðin í ána
voru opnuð á lögmannastof-
unni Lex, fyrir helgi. En
nokkrir ffamámenn í veiði-
heiminum mættu á svæðið til
að kanna hverjir hefðu boðið
í ána.
Það var Hreggnasi sem
bauð hæst, eða 40,5 milljónir,
síðan kom Færi með 39,0
milljónir og loks Laxá, með
37,5 milljónir. Þar svolítið
fyrir neðan voru meðal ann-
ars Stangaveiðifélag Reykja-
víkur, Sporður, Tinna,
Brynjólfur Markússon og
Svartistokkur, svo einhverjir
séu tíndir til.
Meðal þeirra sem eru á
bakvið Hreggnasa eru
feðgarnir Júlíus Jóns-
son og Jón Þorsteinn
Júlíusson, en þeir
leigja Ulfarsá og
Korpu í nágrenni
Reykjavíkur.
Verður Langá
aftur efst?
Það styttist í að lax-
veiðin byrji fyrir al-
vöru. Það eru ekki
nema tvær vikur og
við skulum aðeins
kíkja á efstu laxveiði-
árnar síðasta sumar:
Langá á Mýrum gaf
flesta laxana eða 2263, síðan
kom Þverá í Borgarfirði með
1872 laxa, Rangá með 1723
laxa, svo Eystri-Rangá með
1720, loks Laxá í Kjós með
1656 laxa og Selá í Vopnafirði
með 1558 laxa. Næsta lax-
veiðiá er einnig í Vopnafirði;
Hofsá og gaf hún 1483 laxa,
síðan kom Norðurá í Borgar-
firði með 1444 laxa, þvínæst
Laxá í Dölum með 1394 laxa
og Grímsá og Tunguá með
Umsjón: Gunnar Bender
1156 laxa.
Það verður spennandi að sjá
hvort Langá á Mýrum haldi
toppsætinu í sumar. Laxveiðin
er að byrja innan tíðar og
fyrstu laxar sumarsins á leið-
inni. Er hægt að hafa það
betra? Eg held ekki.
Skessuhorn/Gunnar Bender
Veiðimenn við Langá á Mýrum en áin var sú fengsæiasta síðasta sumar og gaf 2263 laxa. Hvernig verður
veiðin í sumar hjá Ingva Hrafni og fjölskyldu?
/\ (jisti- og veitingastaður
e' Irl \8*.UU. Sími 437 2345
110 * ' www.motelvenus.net
Alltafmeð bestu pizzatilboðin..!
Vilt þú auglýsa hér?
Sími 433 5500