Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Blaðsíða 1

Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Blaðsíða 1
* SUNNUDAGASKÖLABLAB 1. tbl. PÁLMASUNNUDAQUR1944 1. árg. TIL LESENDA Það er gömul og góð venja, að blöð segi í uvvhafi frá því, hver tilgangur þeirra er. Það er auðvelt með tilliti til þessa litla blaðs, sem kemur nú í fyrsta sinni þér í hendur. Blaðið heitir „Sunnudagaskólablað“. Það segir þér skýrt hvaða starfssvið blaðinu er ætlað. Það á að verða barnablað — og þó sérstaklega blað þeirra barna, sem sœkja sunnudagaskóla og aðrar kristilegar barna- samkomur. Það vill þó gjarnan ná til fleiri barna, og eínnig til foreldra barnanna. Nafnið bendir þér lika á annað. Það gefur tíl kynna, að blaðinu er œtlað að vinna ákveðið fyrir sérstakt málefni, en það er sunnudagaskólastarfið. Blaðinu er œtlað að vera einskonar tengiliður þess starfs hér á landi, sem vill leitast við að vinna börnin fyrír Jesúm Krist með því að boða þeim og frœða um fagnaðar- erindið um Jesúm Krist, Guðs son og endurlausnara syndugra manna. Blaðið mun koma út vikulega á veturna og verður selt í lausasölu. Það mun flytja stuttar hugleiðingar um sunnudagaskólatextana, frásögur og fréttir frá sunnudagaskólastarfinu og sögur, allt eftir þvl sem kringumstœður leyfa. Ég vona að bömum muni þykja vœnt um blaðið og að starfsmenn barnastarfsíns og foreldrar barn- anna skílji þýðingu þá, sem slíkt blað getur haft, og stoð þá, sem það getur orðíð í starfinu. LANDSEOKASAFN JVl ; ' 9381

x

Sunnudagaskólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagaskólablað
https://timarit.is/publication/2076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.