Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Side 3

Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Side 3
SUNNUDAGASKÓLABLAÐ 3 vinaskara. En þeir, sem voru næst Jesú, sáu tár hrynja af augum hans. Hann horfði inn í framtíðina og sá hina miklu baráttu, sem vinir hans yrðu að heyja og alla þá þjáningu, sem þeir yrðu að þola. Hann sá óvinaskara fylkja sér gegn vinum hans og reisa her- virki sín. En Jesús var kominn til þess að sigra allt óvinarins veldi. Hann var kominn til þess að heyja hina hörð- ustu baráttu og ganga í gegnum hinar mestu þján- ingar til eilífs hjálpræðis öllum þeim, er honum fylgja. Krossinn á Golgata varð hásæti hans hér á jörð. í dag, á þessum pálmasunnudegi, fylkja allir vinir Jesú og stríðsmenn sér um kross Krists. Undir því hermerki er sigurinn vís. Hvar hefur þú skipað þér í fylkingu? I. Á. KRISTNIBOÐIÐ Öll börn ættu að vita það, að Pálmasunnudagur- inn er kristniboðsdagurinn okkar. Þá tölum við um kristniboðið, biðjum fyrir því og söfnum peningum til þess. Ert þú með? Eða finnst þér, að kristniboðið komi þér ekkert við? Þú hefur heyrt það, að rétt áður en Jesús fór upp til himins, sagði hann við lærisveinana sína: „Farið og gjörið allar þjóðir að lærisveinum“. Þyki okkur vænt um frelsarann, þá er ómögulegt annað en að okkur þyki vænt um kristniboðið, málefnið hans í heiminum. Það eru bráðum liðin þúsund ár síðan lærisveinar hans komu til íslands. Við þökkum Guði fyrir það.

x

Sunnudagaskólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagaskólablað
https://timarit.is/publication/2076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.