Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Síða 3
SUNNUDAGASKÓLABLAÐ
3
vinaskara. En þeir, sem voru næst Jesú, sáu tár hrynja
af augum hans. Hann horfði inn í framtíðina og sá
hina miklu baráttu, sem vinir hans yrðu að heyja
og alla þá þjáningu, sem þeir yrðu að þola. Hann sá
óvinaskara fylkja sér gegn vinum hans og reisa her-
virki sín.
En Jesús var kominn til þess að sigra allt óvinarins
veldi. Hann var kominn til þess að heyja hina hörð-
ustu baráttu og ganga í gegnum hinar mestu þján-
ingar til eilífs hjálpræðis öllum þeim, er honum fylgja.
Krossinn á Golgata varð hásæti hans hér á jörð.
í dag, á þessum pálmasunnudegi, fylkja allir vinir
Jesú og stríðsmenn sér um kross Krists. Undir því
hermerki er sigurinn vís.
Hvar hefur þú skipað þér í fylkingu? I. Á.
KRISTNIBOÐIÐ
Öll börn ættu að vita það, að Pálmasunnudagur-
inn er kristniboðsdagurinn okkar. Þá tölum við um
kristniboðið, biðjum fyrir því og söfnum peningum
til þess.
Ert þú með? Eða finnst þér, að kristniboðið komi
þér ekkert við?
Þú hefur heyrt það, að rétt áður en Jesús fór upp
til himins, sagði hann við lærisveinana sína: „Farið
og gjörið allar þjóðir að lærisveinum“. Þyki okkur
vænt um frelsarann, þá er ómögulegt annað en að
okkur þyki vænt um kristniboðið, málefnið hans í
heiminum.
Það eru bráðum liðin þúsund ár síðan lærisveinar
hans komu til íslands. Við þökkum Guði fyrir það.