Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Side 4

Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Side 4
4 SUNNUDÁGASKÓLABLAÐ En enn eru margar miljónir manna í heiminum, sem enginn lærisveinn hefur sagt frá Guði eða frelsar- anum. Við köllum þá heiðingja. Engir menn í heim- inum eiga eins bágt og þeir. En samt starfa margir kristniboðar á meðal heið- ingjanna. Einn þeirra kannizt þið við, Jóhann Hann- esson, sem nú er í Kína. Finnst ykkur ekki, að þegar svo margt æskumanna annarra þjóða fer í stríðið, þá ætti íslerizk æska að fórna sér fyrir málefni Jesú Krists? Ykkur verða sagðar sögur frá kristniboðinu öðru hvoru, í Sunnudagaskólablaðinu. Og hér kemur fyrsta sagan. Einu sinni gerði heiðinn konungur boð eftir kristni- boða, og bað hann að „gefa sér mat fyrir sál sína“. Þið skiljið hvað hann átti við? Jesús sagðist vera „brauð lífsins". Konungurinn hafði lengi leitað eftir slíku brauði, en hvergi fundið það. Og þið getið því nærri hve glaður hann varð, þegar kristniboðinn sagði honum frá Jesú. „Hvað eru mörg ár síðan þinni þjóð var sagt frá Jesú?“ spurði svo konungurinn. „Um það bil 900 ár,“ svaraði kristniboðinn. Þá varð konungurinn hryggur og starði á hann og sagði: „Hvers vegna sögðuð þið okkur það ekki fyrr?“ Nú má ekki láta heiðingjana bíða lengur. Nú verð- um við að hjálpast öll að, til þess að gjöra allar þjóðir að lærisveinum Jesú Krists. Spurðu sunnudagaskólakennarann þinn hvað þú getir gert. Ólafur Ólafsscm. Útgef.: Bjarni Eyjólísson, Þórsgötu 4, Reykjavík. — Box 851. Sími 3504. — Prentsmiðjan Edda h. f.

x

Sunnudagaskólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagaskólablað
https://timarit.is/publication/2076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.