Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Page 4
4
SUNNUDÁGASKÓLABLAÐ
En enn eru margar miljónir manna í heiminum, sem
enginn lærisveinn hefur sagt frá Guði eða frelsar-
anum. Við köllum þá heiðingja. Engir menn í heim-
inum eiga eins bágt og þeir.
En samt starfa margir kristniboðar á meðal heið-
ingjanna. Einn þeirra kannizt þið við, Jóhann Hann-
esson, sem nú er í Kína. Finnst ykkur ekki, að þegar
svo margt æskumanna annarra þjóða fer í stríðið,
þá ætti íslerizk æska að fórna sér fyrir málefni
Jesú Krists?
Ykkur verða sagðar sögur frá kristniboðinu öðru
hvoru, í Sunnudagaskólablaðinu. Og hér kemur fyrsta
sagan.
Einu sinni gerði heiðinn konungur boð eftir kristni-
boða, og bað hann að „gefa sér mat fyrir sál sína“.
Þið skiljið hvað hann átti við? Jesús sagðist vera
„brauð lífsins". Konungurinn hafði lengi leitað eftir
slíku brauði, en hvergi fundið það. Og þið getið því
nærri hve glaður hann varð, þegar kristniboðinn sagði
honum frá Jesú.
„Hvað eru mörg ár síðan þinni þjóð var sagt frá
Jesú?“ spurði svo konungurinn.
„Um það bil 900 ár,“ svaraði kristniboðinn.
Þá varð konungurinn hryggur og starði á hann og
sagði: „Hvers vegna sögðuð þið okkur það ekki fyrr?“
Nú má ekki láta heiðingjana bíða lengur. Nú verð-
um við að hjálpast öll að, til þess að gjöra allar
þjóðir að lærisveinum Jesú Krists.
Spurðu sunnudagaskólakennarann þinn hvað þú
getir gert. Ólafur Ólafsscm.
Útgef.: Bjarni Eyjólísson, Þórsgötu 4, Reykjavík. — Box 851.
Sími 3504. — Prentsmiðjan Edda h. f.