Tíminn - 09.09.1941, Qupperneq 4
360
TÍMIVN, þriðjiidaginn 9. sept. 1941
90. blað
Síðasti söludagur í 7. ftokki í dag, HAPPDRÆTTIÐ.
Garðyrkjusýníngfin
Opin frá kl. 10—22.
Músik
allan
daginn.
Getftnið ekki til morguns, —
það sem þér getið gert í dag. |
Óvíst Iive lengi sýningin verður opin.
ÍTH BÆNUM
Garðyrkjusýninffin.
í dag er fimmti dagurinn, sem sýn-
ing Garðyrkjufélags íslands er opin.
Að hinum fyrstu boðsgestum frátöld-
um, hafa um 6000 manns séð sýning-
una, og róma allir mjög, hve glæsileg
hún er. Vafalaust eiga margir eftir að
koma i sýningarskálann ennþá, en ekkl
er að vita, hve lengi sýningin verður
opin. Er því vissara fyrir þá, sem hafa
í huga að sjá hana, að gera það sem
fyrst.
Tólf enskir blaðamenn
eru væntanlegir hingað í dag. Koma
þeir hingað í boði herstjórnarinnar.
Er aðalerindið að kynnast hervörnum
landsins og aðbúnaði setuliðsins. Þeir
munu ferðast um Norður- og Austur-
land. Meðan þeir dvelja í bænum munu
þeir sitja í boði íslenzkra blaðamanna.
Yfirmaður Bandarfkjahersins
hér á landi hefir tilkynnt að búið sé
að leiða fyrir herrétt hermennina
fjóra, sem hafa verið kærðir fyrir
nauðgun íslenzkrar konu.
Verðlækkun á dilkakjöti.
Hinn 8. þessa mánaðar gekk í gildi
verðlækkun á dilkakjöti, sem nemur
30 aurum á hvert kílógramm. Heild-
söluverð kjötsins verður því fyrst um
sinn kr. 3,70 hvert kílógramm. Þessi
verðlækkun var samþykkt á fundi
kjötverðlagsnefndar laugardaginn 6.
þ. m.
Bifreiðaþjófnaður.
Aðfaranótt síðastliðins sunnudags
var bifreiðinni G 49 stolið þaðan, sem
hún stóð fyrir utan hús í Hafnarfirði.
Bifreiðin fannst svo á sunnudaginn
skammt fyrir ofan Álafoss. Var hún
mikið skemmd og beigluð. Engin vegs-
ummerki hjá bifreiðinni bentu til þess
að þjófurinn (eða þjófarnir) hefðu
slasazt neitt verulega, þegar skemmd-
irnar urðu á bifreiðinni. Málið er enn
óupplýst.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberaö trúlofun sína
ungfrú Kristín Guðmundsdóttir, Auð-
unnarstöðum, Víðidal og Sigurður
Tryggvason starfsmaður hjá Kaup-
félagi Vestur-Húnvetninga, Hvamms-
tanga.
Trúlofun.
í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu hafa
opínberað trúlofun sína Sigurbjörg
Þorleifsdóttir, Svínhólum og Hannes
Erasmusson, Stafafelli.
Fundur . . .
(Framh. af 1. síðu)
og var hún þess efnis, að ís-
lenzk fiskiskip fengju að flytja
fisk til Bretlands frá höfnum
við Breiðafjörð og frá Suð-
vesturlahdi, þegar ensk fisk-
tökuskip væru þar ekki. Víð-
tækari krafa um þetta hefir
verið gerð til Breta af hálfu ís-
lenzku samningamannanna frá
upphafi samninganna, en henni
hefir ekki fengizt fullnægt. Er
ekki nema gott eitt um það að
segja, að útgerðarmenn sjálfir
taki undir þessa kröfu, því að
það styrkir aðstöðu nefndar-
innar.
Kommúnistar og nazistar
höfðu gert sér vonir um að fund
urinn myndi samþykkja tillög-
ur um að ríkisstjórnin segði af
sér, viðskiptanefndinni yrði
stefnt fyrir dómstólana o.s.frv.!
Hvað mundu peir
gera í London?
(Framh. á 2. síðu)
snertir sæmd og framtíð sinna
kvenna. Þannig myndast sam-
heldni heilla þjóða. Þannig mun
og myndast heilsusamlegt sam-
heldi íslenzku þjóðarinnar um
það óvenjulega ástand, að hafa
í og við höfuðborg landsins
hlutfallslega stærri erlendan
her, heldur en aðrar höfuð-
borgir hafa haft af að segja í
nokkurri styrjöld.
Nú byrjar að reyna á forráða-
menn íslendinga. Hættan er
sönnuð, fyrst með þeim al-
mennu rökum, að svo marg-
mennur her, eins og hér er um
að ræða, hlýtur að skapa
heimaþjóðinni mikinn vanda,
jafnvel þó að hann sé vel tam-
inn og undir góðri stjórn. í
öðru lagi veit allt landið, allir
sem hafa opin augu og eyru um,
að náin kynni hafa skapazt,
kynni, sem hvorki eiga fortíð
né framtíð, kynni, sem eru
eingöngu talin niðrandi og
háslcasamleg fyrir íslenzkar
konur.
í ástamálum er konan mörg-
um sinnum ver sett heldur en
karlmaðurinn. Hún hefir veik-
ari heilsu. Sál konunnar er
bundin við heimili og börn.
Karlmenn, sem ná háum aldri,
geta myndað ástasambönd í
hálfa öld. Kona hefir tiltölu-
lega fá ár, þegar henni er unnt
að mynda heppileg kynni. Mis-
takist konunni heimilismyndun
á þessum fáu árum, þegar talið
er að hún standi í æskublóma,
hefir hún allar líkur til að
mega lifa einstæðingslífi, það
sem eftir er æfinnar, og fara á
mis við meginhamingju tilver-
unnar, að ala upp sín eigin börn.
Ef kona tekur þátt í formlaus-
um ástaræfintýrum, þá á hún
allt á hættu, en karlmaðurinn
tiltölulega lítið. Ef barn fæðist
vegna slíkrar kynningar, þá
getur faðirinn hlaupizt á burt,
og jafnvel neitað faðerninu, en
móðurin ber ábyrgð á barninu,
en fær litla virðingu mannfé-
lagsins í meðgjöf. Karlmaður,
sem borgar konu fyrir þátttöku
í ástalífi, er með öllu talinn
vítalaus. Konan, sem á allt á
hættu, er sek á allan hátt og
fær auk þess í nafngjöf bitr-
asta svívirðingarheiti málsins.
Og skugginn fylgir þeim langa
leið, oft alla æfi.
Enginn, sem leiðir hugann að
Torlacius og Finnbogi töluðu
líka á þá leið. Eru vonbrigði
kommúfnistablaðsins auðsj áan-
leg í morgun og lætur það m. a.
gremjuna bitna þannig á Thor-
lacius og Finnboga, að það
minnist ekki einu orði á þessa
menn, sem aðallega túlkuðu
skoðanir þess á fundinum!
því, hve hörmulega veika að-
stöðu konan í öllum menning-
arlöndum hefir í formlausri
kynningu við karlmenn, getur
lokað augunum fyrir því, að ís-
lenzka þjóðin stendur nú
frammi fyrir mikilli háskaraun.
Við höfuim beðið lengi og
lokað augunum fyrir hættunni.
Nú er ekki lengur undankomu
auðið. Nú er annað hvort að
sýna dug og dáð í verki, og
hjálpa íslenzkum konum til að
sneiða framhjá ljónagröfinni,
eða eiga á hættu að grotna
niður eins og allraveikustu
auðnuleysingjar í stórborgum
heimsins.
Hvað myndi ’Jón Sigurðsson
segja, ef svo færi um baráttu
hans til að gera íslendinga að
frjálsri og gifturíkri menning-
arþjóð. Ef illa á að fara er gott
að hann sefur vært undir þung-
um granitsteini i kirkjugarð-
inum í Reykjavík. J. J.
Gullna hliðið
(Framh. af 3. síðu)
hver dómur, sem vísvitandi hef-
ir ranglega verið upp kveðinn,
orsakar siðferðilegar slysfarir
geranda síns, hrindir honum
niður á við. Nautnaþrællinn
fer sömu leiðina, hræsnarinn
og hann, sem vitandi vits af-
vegaleiðir þreklitla og villu-
gjarna bræður sína. Allir þessir
fjarlægjast hið gullna hlið, það
himnaríki þroska og fullkomn-
unar, sem manneskjan í eðli
sínu þráir, þeir fjarlægjast það,
segi ég, því þeir hafa brotið iög-
mál náttúrunnar, lögmál hjart-
ans eða samvizkunnar, öðrum
orðum, og lifa í fjandskap við
sjálfa sig.
Bóndinn og Helga í þriðja
þætti eru andstæður þessara
einstaklinga. Þau eru börn
jarðarinnar, hinnar óspilltu
náttúru, sem að vísu vegur, en
vegur blind. Hún er því synd-
laus og sjálfri sér samkvæm,
þrátt fyrir allar sínar andstæð-
ur, og þeir, sem lifa í samræmi
við hana, hljóta hamingjuna
að launum. Og náttúran er
einnig lífgjafi, svo þeir, sem
hana elska og henni þjóna,
hljóta að vera í þjónustu lífs-
ins. En þjónusta við lífið er leið
til þroska, leið til fullkomnun-
ar, leiðin til himnarikis. Þang-
að ná þess vegna þau bóndinn
og Helga og það eins fyrir því,
þó þau væru aldrei sérlega
kirkjurækin í jarðlífinu, og þó
þeim finnist himnabúarnir
jafnvel heilagir um of.
Síðasti þáttur leiksins er ef
til vill torskildastur. Hvernig
stendur til dæmis á því, að kerl-
ingin skuli geta gert Jón sinn
sáluhólpinn, enda þótt hann,
samkvæmt lögum himnarkis,
sé dæmdur til útskúfunar? Ef
til vill liggur skýringin í orðum
þeim, sem skáldið leggur post-
ulanum Páli í munn, eftir að
kerlingin hefir leikið á Pétur og
kastað skjóðunni inn fyrir hlið-
ið: „kærleikurinn er langlynd-
ur, trúir öllu, vonar allt, umber
allt. Hans er mátturinn og
dýrðin.“ En Jón hefir einnig
sínar málsbætur. Haim er
hreinn og beinn og hræsnislaus
og lestir hans eru ekki sjálf-
skapaðir, heldur eru þeir sam-
félaginu og lífskjörunum að
kenna. Hann hefir drýgt yfir-
sjónir sínar í sjálfsvörn, ef svo
mætti segja. Og þó hann hljóti
að verða dæmdur samkvæmt
bókstaf laganna, má sýkna
hann samkvæmt anda þeirra.
í múrvegg þeirra finnst smuga,
sem hægt er að komast gegn-
um, og verðirnir vita það.
Röggsemi þeirra slævist. Þeir
gefa gömlu konunni færi á að
koma fram vilja sínum og hún
notar sér það. Allt skal í söl-
urnar leggja fyrir lífsförunaut-
inn, jafnvel sáluhjálpina sína,
ef með þyrfti. Slík ást eða fórn-
fýsi er að vísu ekkert nýtt fyr-
irbrigði í bókmenntunum, enda
er sjónleikur Davíðs Stefáns-
sonar ekki fyrst og fremst
byggður utan um það atriði.
Plann fjallar um manns-sál-
irnar í öllum þeirra marg-
breytileika, um óskir þeirra og
ástríður, um fegurð þeirra og
herfileika, um baráttu þeirra,
ófarir og sigra.
Ég tel, að með bók þessari
hafi Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi áunnið sér sæti
meðal fremstu leikritaskálda,
og mun nú íslenzka þjóðin óska
honum hjartanlega til ham-
ingju með sinn nýja, stóra
bókmenntasigur.
Guðm. Daníelsson
frá Guttormshaga.
Á krossgötnm
(Framh. af 1. slðu)
á svokölluð Hvítingsmið. Höfnin er
ágæt, algerlega sjálfgerð, djúp og lygn.
Mest af fiskinum hefir verið saltað í
landi og hefir sú fiskvinna veitt þorps-
búum mikla atvinnu um margra ára
168 Victor Hugo:
ingjann sjálfan, eins og siðvenja er
meðal Múhameðstrúarmanna.
Þegar Chautefleur bárust þessar
fregnir, hætti hún að gráta. Hún bærði
aðeins varirnar, eins og hún hygðist að
hefja máls, án þess þó að mæla orð.
— Þetta var hræðileg saga, sagði Ov-
darda. — Hún gæti næstum því fengið
steinhjarta til þess að vikna.
— Mig undrar það ekki, þótt þið ótt-
izt Tatarana, mælti Gervaisa.
— Þið ættuð að gæta Eustache vel,
því að nú eru Tatarar frá Póllandi á
ferð hér, sagði Ovdarda.
— Nei, þetta er ekki rétt hjá þér.
Það er sagt, að þeir séu frá Spáni eða
Katalóníu, mælti Gervaisa.
— Kataloníu? Já, það kann vel að
vera, svaraði Ovdarda. — Pólland,
Katalónía, Podolía, ég ruglast æfinlega
í þessum þrem héruðum. En það eitt er
þó víst, að þetta eru Tatarar.
— Og það er líka víst, að þeir hafa
nægilega langar tennur til þess að eta
lítil börn með, hélt Gervaisa áfram
máli sínu. Mig skyldi ekki undra það,
þótt Esmeralda hefði gert sig seka um
að leggja sér slíka fæðutegund til
munns.
Majetta var þögul. Hún var niður-
sokkin í hugsanir sínar eins og hennar
Esmeralda 165
unum í flaustrinu. Þegar hún kom aft-
ur heim og heyrði ekkert til barnsins,
hélt hún að það svæfi enn. En henni
brá í brún, þegar hún kom að opnum
dyrunum. Hún æddi inn full örvænt-
ingar. Barnið var burtu úr rúminu.
Hún hljóp út úr herberginu, niður
tröppurnar og rak sig á vegginn í flýt-
inum.
— Barnið mitt! Barnið mitt! hrópaði
hún. — Hver hefir tekið barnið mitt?
Strætið var mannlaust og enginn
heima í húsinu. Enginn gat gefið henni
minnstu upplýsingar. Hún hljóp gegn-
um borgina og leitaði alls staðar eins
og dýr, sem er rænt unga sínum. Hún
reikaði í spori og andvarpaði þungan.
Hár hennar féll í flyksum niður í augu
og eyru. Það var hryllilegt að sjá hana.
Eldur brann í augum hennar, sem
þurrkaði tárin. Hún nam staðar og
hrópaði til þeirra, sem framhjá fóru:
— Dóttir mín! Barnið mitt. — Fall-
ega, litla barnið mitt! Gefið mér barnið
mitt, og ég skal verða ambátt ykkar.
Hróp hennar voru nístandi kvalaóp.
Ovdarda og allir aðrir kenndu sárt í
brjósti um hana. Vesalings móðirin! —
Hún kom ekki heim aftur, fyrr en síðla
kvölds. Ein grannkona hennar hafði séð
tvær Tatarakonur laumast inn í hús-
ið, meðan hún var burtu fyrr um dag-
- _ RAMI.A RtG . - , ívrV.TA ntíb -
ÆSKM DANSAR Óðnr hjartans.
(DANCING CO-ED.) (Music in my Haert).
Aöalhlutverkin leika: LANA TURNER, RICHARD CARLSON, ARTIE SHAW og danshijómsveit hans. Amerísk söngVakvik- mynd. Aðalhlutv. leika: Tenorsöngvarinn TONY MARTIN, RITA HAYWORTH.
AUKAMYND: Winston Churchill og Roosevelt hittast á Atl- antshafi og koma Church- ills til íslands. Aukamynd: Ensk frétta- mynd með fréttum úr ýmsum áttum, meðal ann- ars frá ferðalagi tslenzku blaðamannanna í Englandi.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ——.— —--— ——4
Frá Reykjavíkurhöín
Hér með tilkynnist öllum vöruiim-
flytjcndum til Reykjavíkur, að vegna
samninga þeirra, er Reykjavíkurhöfn
• Iiefir gert við laerstjórn Randaríkja
hér á landi, veröur framveg'is ekki
leyft aSi hafa vörur gcymdar á hafn-
arlóðunum lengur en 3 sólarhringa
frá þvl er affermingu skips er lokið.
Þær vörur, sem eigi liafa verið hirtar
innan þess tíma, verða fluttar á stakk-
stæði suður hjá Haga (á Melunum) og
geymilar fiar á kostnað og ábyrgð
eigenda.
Skip jiau. er flytja timbur, verða
eigi tekin upp að bryggju til afgreiðslu,
nema farmseigendur flytji timbrið
beint á geymslupláss utan hafnarsvæð-
isins.
Reykjavík, 8. sept. 1941
Hafnarstjórinn
Sérlega vandaða kennslu
í tungumálum og bókfærslu, veitir
llarry Willemsen,
Lindargötu 52 — Sími 2787.
Viðtalstimi á kvöldin klukkan 8—9.
Umsóknum um ellilaun og örorkubætur skal skilaö á
bæjarskrifstofuna fyrir lok þessa mánaðar. Athygli
skal vakin á því, að allir, sem notið hafa ellilauna eða
örorkubóta á þessu ári, og óska að fá þau framvegis,
verða að sækja um styrk á ný fyrir árið 1942. Um-
sóknaeyðublöð fást í Góðtemplarahúsinu alla virka
daga kl. 10—12 og 2—5, nema á laugardögum ein-
göngu kl. 10—12.
Rorgarstjórinn I Reykjavík.
Járníðnaðarpróí
Þéir, sem óska að ganga undir próf í: eirsmíði, járnsmíði,
málmsteypu, plötu- og ketilsmíði, rennismíði og vélvirkjun, sendi
umsóknir sínar til ÁSGEIRS SIGURÐSSONAR, forstjóri Land-
smiðjunnar, fyrir 15. þ. mánaðar.
skeið. Kaupfélagið selur fiskinn fyrir
bátaeigendurna, en sjálfar hafa báts-
hafnirnar bryggjur, sem bátunum er
lagt við, og þarf aldrei að setja þá
„upp“, nema á haustin. Allan annan
tíma ársins eru þeir ýmist við bryggj-
urnar eða við dufl úti á laginu, þegar
þeir eru ekki í róðrum.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
minna mjög á játningu iðrandi
syndara. Annað mál er svo það,
hvort þessi iðrun muni vara
lengi og hvaða orsakir liggja til
hennar.