Tíminn - 16.09.1941, Qupperneq 4
368
TlMim, liriðjndagiim 16. sept. 1941
92. blað
Herstjórinn Hítier
(Framh. af 1. síðu)
hátt. Morgunverður hans er
kínverskt te, ljós hafragrautur,
steik, smjör og aldinmauk.Þessa
neytir hann í svefnstofu sinni.
Á miðdegisborði hans er ávallt
salat, egg, ávextir og óáfengur
bjór. Kvöldverður hans er mjög
svipaður, en þó snæðir hann
stundum súpu, hrísgrjón og
pönnukökur að kvöldinu. Hitler
þykja kökur góðar, en neytir
þeirra mjög sparlega. Með því
vill hann gefa þjóð sinni gott
fordæmi.
Ölgerð í Miinich býr til hinn
óáfenga bjór, sem Hitler neytir.
Gestir hans mega drekka hvað
þeim líkar, en alls ekki reykja.
Hitler telur reykingar örgustu
eitrun. Hann segir, að sér þyki
gaman að sjá óvini sína reykja,
en ekki vini sína.
Yfir matarborðinu segir hann
skrítlur og hermir eftir fólki,
og þykir vel takast. Húshald í
Berchtesgaden er í höndum
þriggja kvenna. Þjónustu-
meyjarnar eru allar ungar og
giftar og eiga börn.
Hitler gengur títt um gólf á
daginn og les ritara sínum fyr-
ir meðan hann þrammar yfir
■góifið. Sér tíll hressingar fer
hann I gönguferðir úti og
fyllir þá ávallt vasa sína af
hnetum handa íkornunum.
Þrátt fyrir herstjórn sína
hefir Hitler haft tíma til þess
síðasta misserið að líta á
myndablöð frá öllum löndum
heimsins, er honum eru send
eftir „diplomatiskum" leiðum.
Hann lítur yfir hið vikulega
fréttayfirlit, leggur drög að
herstjórnartilkynningunum og
hlustar á Wagnerhljómlist og
segir, að „Der Meistersinger“
sé hin sanna túlkun á því bezta,
sem þýzkt er. Óperusöngvari
sagði mér, að Hitler hefði hlýtt
á þessa óperu 200 sinnum.
Hann er jafn áhugasamur
um byggingarlist sem áður.
Engin stórbygging er reist í
Þýzkalandi, án hans samþykk-
ís. Þegar hann lagði samþykki
sítt á söngleikahúsbyggingu í
Bayreuth, lét hann færa fyrir-
hugaðan „bar“ úr hliðargangi
í kjallarann. Leiðtoginn gerði
þá grein fyrir þessu, að hér
vildi hann „sjá fagurlega búna
elskendur í söngleik, en ekki
síld og smurt brauð.“
Þegar Hitler hvarf frá stjórn-
málaforystu til herstjórnar, var
eftirlitið með ríkiskerfinu tekið
frá flokknum og selt í hendur
hernum. í dag er Þýzkaland á
valdi herstjóra. Flokksræðinu
tók að hraka strax og styrjöld-
ín hófst og er nú með öllu lok-
ið. Ley, Göbbels og Viktor
Lutze stormsveitarforingi
megnuðu elgi að stemma stigu
fyrir auknum afskiptum hers-
ins af ríkismálefnunum.
Straumur tímans hefir borið
Ley brott. Göbbels getur enn
haldið sínu sæti, en veröur að
starfa í samræmi við hið nýja
viðhorf. Flokksmennirnir hverfa
jafnt og þétt á hljóðlátan hátt
Fyrsta minnismerkið
(Framh. af 1. síðu)
staður þjóðarinnar, þó að þing-
ið sé flutt þaðan. Til þess að
þetta geti orðið, þarf m. a. að
bæta húsakost staðarins og
gerir nefndin ráð fyrir, að
reist verði veitingahús á fögr-
um tanga við vatnið, skammt
frá konungshúsinu. Þegar slík-
ur húsakostur væri kominn til
viðbótar þeim, sem nú er, væri
hægt að halda þar ýmsa fundi
stærri félaga og aðstaða öll
betri til hátíðahalda. Þá gerir
nefndin ráð fyrir, að völlunum
svonefndu verði breytt í í-
þróttasvæði, svo hægt verði að
halda þar stór þróttamót. Þá
hefir hún ætlað sérstakan stað
fyrir tjaldstað.
Jafnhliða þessum fram-
kvæmdum þarf að vinna á-
fram að fegrun staðarins, eink-
um skógræktinni. Fallegur trjá-
lundur hjá Þingvallabæ, sem
séra Jón Thorsteinsen gróður-
setti um aldamótin, sýnir bezt
hvaða árangri má ná í þeim
efnum. Ætlun nefndarinnar er,
að komið verði upp sérstakri
uppeldisstöð fyrir trjáplöntur á
Þingvöllum og ætti það að
tryggja stórstígari framkvæmd-
ir en verið hafa. Þá mun Fögru-
brekku verða skipt í reiti, sem
skólarnir fá til umsjónar, og á
slíkt að geta skapað heilbrigða
keppni milli þeirra. Þá hefir
Jón Magnússon skáld fengið
sérstakan blett til skógræktar
og hefir hann gróðursett þar
plöntur í sumar. Myndi nefnd-
in taka því með þökkum, ef
fleiri vildu taka hann til fyrir-
myndar.
Þá hefir nefndin ákveðið að
engin byggð skuli vera milli
gjánna, önnur en Þingvallabær
og kirkjan. Verður reynt að
græða hraunið eftir föngum.
Gangstígi þarf að leggja um
það allvíða og hefir nefndin
komið sér saman um, hvar þeir
eiga að liggja.
Vestur með vatninu mun
verða leyfð bygging sumarbú-
staða. Hafa nokkrir verið reist-
ir þar í sumar og fleiri verða
rdjstir þar á næstunni. Mun
rísa þarna stórt sumarhýsa-
hverfi áður en langt um líður.
í Þingvallanefnd eiga sæti:
Jónas Jónsson alþm. (formað-
ur), Haraldur Guðmundsson
alþm. og Sígurður Kristjánsson
alþm.
úr valdastöðum sínum. Fyrir
tveim mánuðum féll Karl Bo-
mer, hinn ótrauði forustumað-
ur blaðadeildar útbreiðslumála-
ráðuneytisins, fyrir ofurborð.
Morguninn eftir að strok
Hess var gert heyrinkunnugt,
handtók lögregluliðið svo margt
fólk í Norður-Berlín, að eigi
dugðu færri en tuttugu vagn-
ar til þess að aka því brott. Þar
á meðal voru stormsveitarmenn
í einkennisbúningum. Öllum
þeim, sem Hitler var eigi að
skapi, var rutt úr vegi á einn
eða annan hátt, eftir að hann
tók að fjalla svo mjög um mál-
efni hersins.
Snndmál
Austurlands.
(Framh. af 2. síðu)
stórþarfa verki fyrr í ár en
næsta ár, ef fé fæst til þess. Nú
er Eiðaskóli ríkisstofnun og
laugin verður ríkiseign. Er því
enginn vafi á, hverjum hér ber
að greiða úr vandanum. Þá
mun eigi standa á ungmenna-
félögum og íþróttamönnum
eystra að leggja fram vinnu til
framkvæmdarinnar. En á Aust-
urlandi er nú vakning í félags-
málum og íþróttum, eins og
víðar.
Jökuldalur og Hérað, með að-
liggjandi sveitum, Seyðisfjörð-
ur, Reyðarfjörður, Eskifjörður
og Breiðdalur hafa greitt bíl-
vegasamband að Eiðum og eiga
þangað því auðvelda sókn til
sundnáms. Aftur er sókn þang-
að örðug frá hinum fjörðunum,
en þaðan þarf að flytja börnin
fyrst á bátum, til Reyðarfjarð-
ar t. d., en síðan í bílum að
Eiðum. Verður því næsta verk
í sundmálum Austurlands, eft-
ir Eiðalaugina eða jafnframt
henni, að koma upp sundþróm,
þar sem fjölmenni er mest og
örðugast um samgöngur. Má
gera ráð fyrir, að tvær slíkar
laugar komi á næstu árum, í
Neskaupstað í Norðfirði og að
Búðum við Fáskrúðsfjörð. Á
báðum þeim stöðum má fá
hita á sama hátt og í Þórshöfn.
Og á báðum stöðunum er þegar
tekið að vinna að málinu. —
Síðan er líklegt, að laugar komi
í Seyðisfirði, Stöðvarfirði og ef
til vill víðar. Eru þegar ráða-
gerðir um rafhitaða sundlaug á
Seyðisfirði, en raforku skortir
þar í bili og laugin hlýtur að
kosta mikiö fé. En þar til hún
kemur, bjargar Eiðalaugin
Seyðisfirði, en á milli er 35 km.
bílvegur, sem er þó aðeins fær
á sumrum.
4. Austur-Skaftafellssýsla.
Þar er örðugast um hagfellda
lausn sundmálsins, vegna
strjálbýlis, fámennis og sam-
gönguörðugleika. Verður senni-
lega helzt að ráði, að bjargast
þar við kaldar tjarnir til sund-
kennslu og reisa við þær skýli
með upphituðum búningsklef-
um og heitum ræstiböðum. Yrði
svo í viðbót stefnt að því, að
senda öll skólabörn úr hérað-
inu til fullkomnunar í sundi í
hlýrri laug, t. d. fjórða hvert
ár. Fengi þá hvert barn slíkt
námskeið einu sinni á skóla-
tíma sínum. Gæti það verið al-
menn skemmti- og námsferð
um leið, en slíkar ferðir tíðk-
ast nú mjög.
Ég hefi talið rétt, að gera
þessa grein fyrir stefnu og
starfsáætlun í sundmálum
Austurlands, til þess að þeir,
sem látá sig þau mál skipta —
sveitastjórnir, æskulýðsfélög og
áhugasamir einstaklingar —
eigi hægra með að átta sig á
þeim og bindast samtökum um
að hrinda í framkvæmd því,
sem mest kallar að. En fram-
kvæmdir þær, sem hér er bent
á, þola ekki langa bið. Það er
óþolandi og óviðeigandi, að
174 Victor Hugo:
eins og skuggi kæmi í stað bjarma.
Henni vöknaði um augu. Varir hennar
herptust saman eins og hún væri í þann
veginn að bresta í grát. Skyndilega bar
hún fingurna að vörum sér og gaf Mo-
jettu merki um að koma.
Majetta kom, hrærð og þögul. Hún
læddíst hægt og gætilega á tánum eins
og hún nálgaðist líkbörur.
Sorglega sýn bar fyrir augu kvenn-
anna þriggja, er gægðust inn í Rottu-
holuna.
Kytran var lítil og óvistleg. Á stein-
gólfi sat kona á hækjum sér í einu
horninu. Hún huldi andlitið í höndum
sér eins og í örvæntingu. — Hún bar
tötralegan brúnlitan serk, sem huldi
hana nær alla. Langir, hæruskotnir
hárlokkar hennar héngu fram yfir höf-
uðið og náðu alveg niður að gólfi. Hún
líktist vofu eins og þeim, er maður sér
í draumi eða er lýst ritum Goyas: Þær
hallast bleikar, hreyfingarvana, og ó-
hugnanlegar upp að legsteini eða
fangelsisvegg. Þetta virtist hvorki vera
karl né kona, hvorki lifandi vera né
látin. Það gat að líta nakinn fót hvíla
á hrjúfu og köldu gólfinu. Sýn þessi
hlaut að vekja meðaumkun í hjarta sér-
hvers manns.
Vera þessi virtist sem hlekkjuð við
gólfið. Hún bærði ekki hið minnsta á
Esmeralda 175
sér, og það leit út sem hún myndi ekkl
einu sinni draga andann. Hún bar
þunnan léreftsserk um miðjan vetur og
lá þannig nær nakin á steingólfi. Eng-
inn eldur brann í fangaklefa þessum
og norðaustanvindurinn var hið eina,
er gat þrengt sér inn í hann til konunn-
ar. Geislar sólarinnar náðu aldrei að
skína þar inn. Það var eins og þessi
manneskja gæti ekki lengur þjást,
hefði engar tilfinningar framar. Mað-
ur gat haldið, að hún væri orðin að
steini, líkt og vistarvera hennar var
sannarlegt íshús á vetrum. Hend-
urnar voru krepptar, augun sem freðin.
Við fyrstu sýn mátti ætla hana vera
afturgöngu, en líkneski við nánari
skoðun.
Annað veifið bærði hún helbláar var-
irnar og dró að sér andann. Hún skalf
við. En þessar bláu varir voru sem dauð-
ar væru og hreyfðust á jafn lífvana hátt
og bókarblöð, sem blakta í golu. En í
frosnum augunum brá öðru hvoru fyrir
ólýsanlegu leiftri. Það funaði, heitt,
harmþrungið, ótruflað, og var ávallt
beint að skúmaskoti í klefakytrunni, er
eigi varð eygt utan frá. í þessu augna-
ráði voru duldar allar hinar myrkustu
hugsanir þessarar hrjáðu veru.
Þannig leit hún út, þessi manneskja,
er kölluð var einsetukonan, eða stund-
BÓKABÚÐ
KRON
Álþýðnhnsinn
Nokkrar góðar gamlar ís-
lenzkar bækur:
Bókmenntasaga Finns
Jónssonar, 1. og 2. hefti,
kr. 3.50.
Bragfræði Finns Jónsson-
ar, kr. 1.00.
Goðafræði Finns Jónson-
ar, kr. 3.00.
íslenzkar ártíðarskrár, all-
ar á kr. 4.00.
Sólarljóð. Útg. af B. M. Ol-
sen, kr. 1.50.
#
Varningsbók Jóns Sigurðs-
sonar 1860, kr. 1.00.
Kvæði eftir Stefán Ólafs-
son, 1885, I—II, á kr.
6.00.
Jarðskjálftar á íslandi,
eftir Þorv. Thoroddsen,
kr. 2.75.
Fornaldarsagan, H. Mel-
sted, kr. 2.50.
Norðurlandasagan, P. Mel-
sted, kr. 2.50.
Ýmsar aðrar niðursettar
bækur höfum við til, t. d.
íslendingar í Danmörku,
eftir dr. Jón Helgason,
kostar nú aðeins kr. 3.00
Jarðarmatsbók alls lands-
ins. Stórfróðleg bók, sem
kostar einar 3 kr. —
o. fl. o. fl.
Bókabúð KRON
Alþýðuhúsinu
--------- ----------------
OKKAR innilegasta þakklæti
viljum við flytja þeim Öxfirð-
ingum, sem nú í sumar sýndu
okkur vinarþel með því að
sækja okkur heim um langan
veg og heiðra okkur með gjöf-
um, veiziuhaldi, ræðum og söng,
í tilefni af 30 ára búskaparaf-
mæli okkar hér að Hraun-
tanga.
Níels Sigurgeirsson
og fjölskyida.
Austurland njóti ekki sömu að-
stöðu til sundnáms og aðrir
landshlutar, að því leyti sem
það er hægt.
Aðalsteinn Sigmundsson.
Rseða biskups
(Framh. af 2. síðu)
fórnarinnar, sigur kærleikans,
sigur lífsins yfir dauðanum.
Þjóðin hefir þegar búið eín-
um sona sinna gröf á þessum
stað — skáldinu og ættjarðar-
vininum Einari Benediktssyni.
Vér komum í dag og söfnumst
um leiði hans við góðar minn-
ingar um það, sem hann gjörði
fyrir þjóð sína, í minningu um
ljóð, sem aldrei munu gleymast,
um söng, sem ei mun deyja. —
Hingað til hefir leiðið verið lágt,
og engin merki sést um það,
hver hér var lagður í gröf. Nú
hefir nafn hans verið greipt í
þenna stein, sem íslenzkar
hendur hafa unnið, minningar-
steinjinn með því nafni, sem
hann risti sjálfur í íslenzk
hjörtu, er lagður á gröf hans. —
Hingað munu íslendingar allir,
þeir, sem Þingvelli sækja heim,
ganga á komandi árum og öld-
um og þakka honum ljóðin, sem
hann kvað um ísland og ís-
lenzku þjóðina, um hugsjónir
andans og eilíf markmið lífs-
ins. Því hátt stefndi hugur
hans minnugur þess, „að him-
ininn skín yfir leiðum vors
anda.“
Um þenna helga reit mun
vaxa fagur gróður, fagrir ís-
lenzkir trjástofnar munu festa
hér rætur og vaxa hátt. Mætti
minningin um Einar Benedikts-
son og aðra sonu og dætur ís-
lands, sem hér kunna að hvíla
á komandi tímum, vekja þrótt,
fegurð, hugprýði, drengskap og
frelsisást — hinn fegursta gróð-
ur andans í brjóstum íslenzkra
manna og stuðla að því að
skapa sanna þegna„ sem unna
íslandi og af fórnfúsum huga
vilja starfa fyrir land vort og
^^GAMLA BÍÓ-
Ærsladrósín
-NÝJABÍÓ.
Frægðarbrautín
„Paris Honeymoon“
Aðalhlutv. leika:
BING CROSBY,
FRANCISKA GAAL,
AKIN TAMIROFF
Og
SHIRLEY ROSS.
Sýnd kl. 5, 7 os 9.
(ROAD TO GLORY).
Amerísk stórmynd, er
gerist á vígvöllunum í
Frakklandi 1914—T8.
Aðalhlutv. leika:
FREDRIC MARCH,
WARNER BAXTER,
LIONEL BARRYMORE,
JUNE LANG.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn fá ekki affgang.
Bókautgáfa
Menningarsjóðs og
ÞjóðvinaSélagsins
Úrvalsrit Jónasar Hallgrímssonar og Mannfélagsfræffi
eru komin út.
Áskrifendur í Reykjavík vitji bókanna í anddyri Lands-
bókasafnsins, opið kl. 1—7, og í Hafnarfirði 1 verzl. Vald. Long.
Gjalddagi skatta.
Athygli er hér með vaklii á þvi, að tekju-
og elguaskattur, tekju- og eignaskatts-
auki, stríðsgróðaskattur, fasteignaskatt-
ur til ríkissjóðs, lestagjald, lífeyrissjóðs-
gjald og námsbókagjald fyrir árið 1941
féllu í gjalddaga 15. águst ji. á. Þá eru
fallin i gjalddaga kirkjugarðsgjöld fyrir
árið 1941 og sóknargjöld og utanþjóð-
kirkjumannagjald fyrir fardagaárið
1940—’41.
Framangreindum gjöldum er veitt við-
taka á tollstjóraskrifstofunni, sem er á 1.
hæð í llafnarstræti 5. Skrifstofan er oftin
virka daga kl. 10—12 og 1—4, nema laugar-
daga kl. 10—12.
TOLLSTJÓRm I REYKJAVÍK,
15. september 1941.
KjólataU" Cheviot
og svart kamgarn í peysuíataírakka
nýkomið.
6efjnn - Iðnnn
Aðalstræti
Strandferðir ríkis-
skipanna
(Framh. af 1. siðu)
verður mikill rekstrarhalli á
Súðinni, og ræður þar um
mestu, að hún brennir kolum.
Annars er rétt, fyrst farið er
að tala um Súðina og kolaeyðslu
hennar, að segja frá tillögu,
sem ég hefi verið að reyna að
koma á framfæri nú síðustu
mánuðina.
Súðin er gamalt skip, eins og
stundum hefir verið minnzt
á í blöðunum og víðar. Var hún
að því að hefja þjóðina hærra
í lífi hennar og breytni, í ást á
guði og landinu, sem hann gaf
henni.
Með þeim óskum bið ég dótt-
ur skáldsins, sem hér er við-
stödd í dag að afhjúpa stein-
inn, sem lagður hefir verið á
gröfina. Vér þökkum í nafni al-
þjóðar þann arf, sem Einar
Benediktsson hefir látið núlif-
andi og komandi kynslóðum
eftir.
Jafnframt því, sem vér vott-
um ástvinum hans samúð vora
hér við gröf hans, bið ég guð
að blessa þeim og allri þjóð-
inni minningu hans.
keypt fyrir 11 árum, þá mjög
ódýrt, og hefir síðan verið stöð-
ugt í strandferðum, sem slítur
öllum skipum, enda eru katlar
og vélar skipsins mjög farin
að láta á sjá. Hins vegar var
skrokkur skipsins mjög vel
byggður og sterkur frá upphafi,
og mikið af honum endurnýj-
að nú upp á síðkastið. Tillaga
mín er því í stuttu máli sú, að
Súðin verði endurbyggð og gert
úr henni mótor-kæliskip.
Keyptar verði vélar og annað,
sém til slíkrar breytingar þarf,
nú þegar, meðan slíkt er fáan-
legt, og verkið svo framkvæmt
við hentugleíka. Fengist þann-
ig nálega svo gott sem nýtt
strandferðaskip fyrir hluta af
því, sem nýtt skip mundi kosta.
Líka má búast við, að erfitt
verði að fá ný skip í náinni
framtíð, jafnvel í nokkurn
tíma eftir að styrjöldinni lýk-
ur. Slíkar breytingu á skipinu
á að vera hægt að framkvæma
hér heima.
4 krossgötum
(Framh. af 1. síðu)
mannaeyja 8 daga á leiðinnl. En ekki
er vitað hve lengi hinn báturinn var
til lands. Þetta er í annað sinn, sem
skipi þessa sama skipstjóra er sökkt.